Leyfðu Stoð að styðja þig!

Ásthildur Gunnarsdóttir og Eygló Hallgrímsdóttir hjá Stoð, Draghálsi 14-16.
Ásthildur Gunnarsdóttir og Eygló Hallgrímsdóttir hjá Stoð, Draghálsi 14-16. mbl.is/Arnþór Birkisson

Stoð er rót­gróið þjón­ustu­fyr­ir­tæki á heil­brigðis­sviði sem sér­hæf­ir sig í sölu og fram­leiðslu á ýms­um stoð- og hjálp­ar­tækj­um. Hjá Stoð starfar fjöldi fag­lærðra sér­fræðinga og inn­an starf­sem­inn­ar er rík áhersla lögð á þverfag­lega sam­vinnu við að finna bestu og hent­ug­ustu lausn­irn­ar fyr­ir fjöl­breytt­an hóp viðskipta­vina.

Hjá Stoð er að finna fjöl­breytt úr­val af þrýstifatnaði sem fyr­ir­byggj­andi meðferð á bláæðavanda­mál­um, blóðtöpp­um, vökv­asöfn­un og bjúg á borð við fitu- og sogæðabjúg. 

„Þrýstimeðferðir eru í raun hent­ug­ar fyr­ir all­an lík­amann og eru sér­stak­lega góðar til að meðhöndla sogæðabjúg og æðahnúta en ekki síður fitu­bjúg,“ seg­ir Eygló Hall­gríms­dótt­ir, versl­un­ar­stjóri og söluráðgjafi þrýst­ingsmeðferða hjá Stoð.

„Það ættu í raun all­ir að nota þrýst­ings­vör­ur því slík­ar vör­ur gera bara gott. Auk­in vit­und fólks um fitu­bjúg er af hinu góða því það er svo auðvelt að laga slíkt og líða bet­ur,“ seg­ir Eygló og bend­ir á lítið hafi verið talað um fitu­bjúg þar til fyr­ir tveim­ur árum. 

Þrýstingsvörurnar sem fást hjá Stoð koma frá þýska framleiðandanum Medi …
Þrýst­ings­vör­urn­ar sem fást hjá Stoð koma frá þýska fram­leiðand­an­um Medi sem er leiðandi á heimsvísu í þrýst­ingsmeðferðum og fatnaði. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Fitu­bjúg­ur en ekki vefjagigt

Eygló hef­ur víðtæka sérþekk­ingu á þrýst­ings­fatnaði við bláæða- og bjúgvanda og seg­ir mik­il­vægt að til­fell­in fái skjóta meðhöndl­un til að forðast stig­vöxt á vanda­mál­inu.

„Fitu­bjúg­ur leggst gjarn­an á kon­ur vegna horm­óna­breyt­inga og er oft mjög sárs­auka­full­ur. Hann er oft­ast bund­inn við fæt­ur eða upp­hand­leggi og get­ur valdið mik­illi af­lög­un á þess­um svæðum. Fitu­bjúg­ur get­ur líka fram­kallað mar­bletti án áreynslu og oft er hann rang­lega greind­ur sem vefjagigt,“ út­skýr­ir hún og seg­ir það miður hversu lít­il þekk­ing er á fitu­bjúg inn­an heil­brigðis­kerf­is­ins hér á landi og tak­markaðar for­send­ur á úrræðum. 

Þrýstingsfatnaður hefur sýnt fram á góða raun hjá þeim sem …
Þrýst­ings­fatnaður hef­ur sýnt fram á góða raun hjá þeim sem glíma við bjúg- og bláæðavanda. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

„Það hef­ur eng­inn hér á landi leyfi eða þekk­ingu til að fram­kvæma fitu­sog í lækn­is­fræðileg­um til­gangi en ekki til fegr­un­ar. All­ar þess­ar aðgerðir eru fram­kvæmd­ar er­lend­is og sjúk­ling­ar þurfa að greiða fyr­ir þær úr eig­in vasa,“ seg­ir hún.

„Þrýst­ings­vör­ur veita aðhald og stuðning um húðina sem hjálp­ar þá æðakerf­inu við að pumpa blóðinu aft­ur upp í æðaþrep­in og lok­ar þeim, svo blóðið falli ekki aft­ur til baka og fari að mynda bólg­ur, bjúg eða mikla vökv­asöfn­un sem gjarn­an valda verkj­um og óþæg­ind­um. Slík vanda­mál geta líka undið upp á sig og orðið að stærri vanda ef ekki er gripið inn í.“

Eygló bend­ir á að þrýst­ings­sokk­ar séu ekki lækn­ing við fitu­bjúg held­ur meðferð og meðhöndl­un á þeim vanda sem steðjar að. „Þrýst­ings­sokk­ar gera ástandið mun betra og hjálpa til við að halda formi á út­lim­um sem eru þjáðir.“

Hjá Stoð er að finna fjölbreytt úrval af stoð- og …
Hjá Stoð er að finna fjöl­breytt úr­val af stoð- og hjálp­ar­tækjalausn­um af ýmsu tagi. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Mik­ill ávinn­ing­ur og auk­in lífs­gæði

Þrýst­ings­sokk­arn­ir koma frá þýska vörumerk­inu Medi sem er leiðandi á heimsvísu í þrýst­ingsmeðferðum og fatnaði. Sokk­arn­ir eru fá­an­leg­ir í nokkr­um þrýst­ings­flokk­um og geta dregið veru­lega úr þreytu og bjúg á fót­leggj­um. Einnig býður Stoð upp á sérsaumaðan þrýst­ings­fatnað enda geta til­fell­in verið jafn mis­jöfn og þau eru mörg.

„Við eig­um til staðlaðar lausn­ir en svo er líka hægt að sérsauma. Það er svo flatsaum­ur­inn sem er hent­ug­ast­ur fyr­ir til­felli fitu­bjúgs eða al­var­leg­an æðavanda,“ seg­ir Eygló sem fram­kvæm­ir mæl­ing­ar á viðskipta­vin­um sem þjást af bjúg- og bláæðavanda.

„Í verstu til­fell­un­um sem við sjá­um er af­lög­un á fót­um orðin mjög mik­il og þá þarf að leita til bæklun­ar­stoðtækja eins og bæklun­ar­skó og annað. Það get­ur tekið mjög á sál­ar­lífið hjá okk­ar viðskipta­vin­um,“ seg­ir hún en þrýst­ingsmeðferðir hafa sýnt fram á mik­inn ávinn­ing og auk­in lífs­gæði þeirra sem fá slíka meðhöndl­un.

„Með þrýst­ings­sokk­un­um er hægt að létta á eymsl­un­um og hjálpa til við að halda þess­um vanda í skefj­um.“

Medi framleiðir einnig þrýstingssokka fyrir hlaup, göngur, skíði og almenna …
Medi fram­leiðir einnig þrýst­ings­sokka fyr­ir hlaup, göng­ur, skíði og al­menna hreyf­ingu und­ir vörumerk­inu CEP. Þrýst­ings­sokk­arn­ir búa yfir mörg­um eig­in­leik­um og létta m.a. á verkj­um og eymsl­um og hraða end­ur­heimt. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Lækka verð og skora á Sjúkra­trygg­ing­ar

Í maí á þessu ári ákváðu Sjúkra­trygg­ing­ar Íslands að hætta greiðsluþátt­töku á þrýst­ings­fatnaði fyr­ir þá sem glíma við fitu­bjúg. Fram að því gátu viðskipta­vin­ir fengið beiðni frá heim­il­is­lækni fyr­ir þrýst­ingsmeðferð hjá Stoð.  

„Skyndi­lega hættu Sjúkra­trygg­ing­ar að samþykkja beiðnir um þrýst­ings­fatnað vegna fitu­bjúgs. Við höf­um verið að fá til okk­ar kon­ur sem hafa stuðst bæði við þrýst­ings­sokka­bux­ur og -erm­ar sem fá allt í einu ekki meðferðar­tæk­in sín niður­greidd eins og áður. Þetta get­ur verið mjög kostnaðarsam­ur fatnaður og ekki á allra færi að kaupa slíkt þó svo að þetta sé mörg­um nauðsyn­legt,“ seg­ir Ásthild­ur Gunn­ars­dótt­ir, markaðsstjóri Stoðar, og gagn­rýn­ir ákvörðun Sjúkra­trygg­inga.

„Við ætl­um að bregðast við og lækka verð hjá okk­ur tíma­bundið á flatsaums­flík­um og þrýsta þar með á Sjúkra­trygg­ing­ar og heil­brigðisráðuneytið að end­ur­skoða þessa ákvörðun og gera viðeig­andi breyt­ing­ar á reglu­verk­inu hið fyrsta. Í nú­ver­andi reglu­gerð hjá þeim er fitu­bjúg­ur ekki viður­kennd­ur sjúk­dóm­ur. Það þykir okk­ur ekki góð þróun,“ seg­ir Ásthild­ur. „Þó er von til þess að breyt­ing­ar verði í framtíðinni þar sem stýri­hóp­ur um mál­efnið hef­ur verið sett­ur á lagg­irn­ar.“

Stoð leggur ríka áherslu á framúrskarandi þjónustu, mælingar og ráðgjöf.
Stoð legg­ur ríka áherslu á framúrsk­ar­andi þjón­ustu, mæl­ing­ar og ráðgjöf. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Al­hliða lausn­ir á ein­um stað

„Okk­ar hlut­verk er að vera stoð og stytta þeirra sem þurfa á stuðningi að halda. Við þjón­ust­um fólk sem er að fást við fjölþætt­an vanda, allt frá göngu­grein­ing­um, fram­leiða og sér­sníða inn­legg, veita ráðgjöf og úrræði við kæfis­vefni, selj­um stóma- og þvag­leggja­vör­ur, hjóla­stóla, göngugrind­ur, gervi­brjóst og þrýst­ings- og eftiraðgerðarfatnað svo eitt­hvað sé nefnt,“ lýs­ir Ásthild­ur og seg­ir Stoð bjóða upp á al­hliða stoð- og hjálp­ar­tækjalausn­ir á ein­um og sama staðnum.

„Við hjá Stoð kapp­kost­um að veita viðskipta­vin­um okk­ar framúrsk­ar­andi og per­sónu­lega þjón­ustu með fag­mennsku og sérþekk­ingu að vopni ásamt vönduðu vöru­úr­vali. Þú færð lausn­ina hjá okk­ur.“

Smelltu hér til að bóka tíma í mæl­ingu vegna þrýst­ingsmeðferða

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert