Sérfræðingar í að gera viðburði að stórkostlegri upplifun

Starfsmenn HljóðX eru fagmenn í faginu. Frá vinstri: Eyvindur Eggertsson, …
Starfsmenn HljóðX eru fagmenn í faginu. Frá vinstri: Eyvindur Eggertsson, hljóðmeistari, Örn Ingólfsson, ljósameistari, Jóhann Örn Ólafsson, sölu og markaðsstjóri og Ingólfur Arnarson, framkvæmdastjóri. mbl.is/Arnþór Birkisson

HljóðX er tæp­lega 20 ára gam­alt fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem sér­hæf­ir sig í leigu, sölu og upp­setn­ingu á hljóð-, ljósa-, mynd- og sviðsbúnaði. HljóðX hef­ur lengi verið leiðandi fyr­ir­tæki á þessu sviði og sinn­ir viðburðum af öllu stærðum og gerðum. HljóðX þjón­ust­ar ein­stak­linga jafnt sem fyr­ir­tæki, fé­lög og stofn­an­ir við að setja upp tækja­búnað fyr­ir hvers kyns til­efni.

„Við höf­um séð um marga flotta viðburði í gegn um tíðina og þeir hafa all­ir verið skemmti­leg­ir - hver á sinn hátt,“ seg­ir Jó­hann Örn Ólafs­son, sölu- og markaðsstjóri HljóðX.

„Það er alltaf gam­an að sjá um vel heppnaða árs­hátíð eða þorra­blót og breyta venju­legu íþrótta­húsi í glæsi­leg­an veislu­sal en skemmst er að minn­ast þess þegar við fór­um á Þjóðhátíð í sum­ar og sáum um hljóðkerfið og LED skjá­ina sem var mjög skemmti­legt. Á dög­un­um tók­um við svo stór­an þátt í úti­fundi Kvenna­frí­dags­ins á Arn­ar­hóli sem var sér­lega ánægju­legt. Við sett­um upp sviðsvagn, LED skjái og stórt hljóðkerfi og sáum til að þess að gríðarleg­ur mann­fjöldi fengi góða upp­lif­un af þess­um magnaða fundi,“ út­skýr­ir Jó­hann.

HljóðX sinnir viðburðum af öllum stærðum og gerðum.
HljóðX sinn­ir viðburðum af öll­um stærðum og gerðum. Ljós­mynd/​Jó­hann Örn Ólafs­son

Skapaðu ógleym­an­lega upp­lif­un með HljóðX

HljóðX býr yfir mik­illi reynslu og þekk­ingu þar sem starfs­fólk brenn­ur fyr­ir að gera stóra sem smáa viður­burði að ógleym­an­legri upp­lif­un. Starf­semi HljóðX er þrískipt í grunn­inn en þar gegn­ir tækjaleig­an stærsta hlut­verk­inu og fer aðal­starf­semi henn­ar fram í Dranga­hrauni 5 í Hafnar­f­irði.

„Við fáum að vera þess heiðurs aðnjót­andi að vinna með helstu skemmti­kröft­um lands­ins auk þess að kynn­ast er­lend­um stjörn­um og þjón­usta marga frá­bæra viðskipta­vini,“ seg­ir Jó­hann og bend­ir á að starf­sem­in væri kraft­minni ef ekki væri fyr­ir frá­bæra starfs­menn og þann góða tækja­kost sem fyr­ir­tækið hef­ur byggt upp í gegn­um árin.

Örn Ingólfsson, ljósameistari hjá HljóðX hefur víðtæka reynslu og þekkingu …
Örn Ing­ólfs­son, ljósa­meist­ari hjá HljóðX hef­ur víðtæka reynslu og þekk­ingu á hvers kyns ljósa­búnaði. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Viðburðir af öll­um stærðargráðum

„Starfs­menn HljóðX eru fag­menn fram í fing­ur­góma sem búa yfir ára­tuga­langri reynslu,“ seg­ir hann og tel­ur þekk­ingu og reynslu skipta sköp­um þegar upp­setn­ing á stór­um sem smá­um sam­kom­um á sér stað.

„HljóðX sinn­ir viðburðum af öll­um stærðargráðum. Fyr­ir minni viðburði eru geta viðskipta­vin­ir sótt búnað til okk­ar sjálf­ir eða fengið starfs­menn HljóðX til að sjá um það. Fyr­ir stærri viðburði eins og árs­hátíðir og þorra­blót í íþrótta­hús­um ann­ast HljóðX alla upp­setn­ingu og niður­tekt auk þess að sjá um ljósa- og hljóðmennsku,“ seg­ir Jó­hann.

Nýlega tók HljóðX þátt í að varpa nýju ljósi á …
Ný­lega tók HljóðX þátt í að varpa nýju ljósi á Heimaklett í Vest­manna­eyj­um í til­efni af 50 ára gosaf­mæli bæj­ar­ins. Ljós­mynd/​Tói Vídó

Sala á tækni­lausn­um í fyr­ir­tæki og stofn­an­ir

Ann­ar stór hluti í starf­sem­inni er HljóðX lausn­ir sem þjón­ust­ar stofn­an­ir og fyr­ir­tæki með sölu, hönn­um og upp­setn­ingu á vönduðum tækni­búnaði fyr­ir sam­komu- og íþrótta­hús, versl­an­ir, versl­un­ar­miðstöðvar, veit­inga- og skemmti­staði, ráðstefnu­sali og fund­ar­her­bergi á hót­el­um. Hljóðkerfi, ljós, fjar­funda­búnað og upp­lýs­inga­kerfi.

„Sem dæmi hef­ur HljóðX sett upp í fjöl­mörg­um kirkj­um víðs veg­ar um land, hljóðkerfi og búnað fyr­ir streymi sem nýt­ist í mess­um eða við jarðarfar­ir.“

Ára­tuga göm­ul versl­un með hljóðfæri og hljóðkerfi

Þriðji hluti starf­sem­inn­ar er versl­un­in HjóðX Rín á Grens­ás­vegi 12 sem sel­ur hljóðfæri, hljóðkerfi og fylgi­hluti. Rín var stofnuð 1942 svo haldið var upp á 80 ára af­mæli versl­un­ar­inn­ar á síðasta ári.

„Starf okk­ar bygg­ist mikið upp á öfl­ug­um birgj­um og fram­leiðend­um hágæða tækni­búnaðar. HljóðX er umboðs- og dreif­ing­araðili Harm­an á Íslandi sem býður upp á merki eins og JBL, AKG, Mart­in. Einnig flyt­ur HljóðX inn Roland og fleiri góð vörumerki í þess­um bransa.“

Eyvindur Eggertsson, hljóðmeistari hjá HljóðX er einn færasti hljóðmaður landsins.
Ey­vind­ur Eggerts­son, hljóðmeist­ari hjá HljóðX er einn fær­asti hljóðmaður lands­ins. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Sérstaða í stór­um útiviðburðum

HljóðX er fjöl­skyldu­rekið fyr­ir­tæki sem hef­ur skapað sér mikla sér­stöðu á markaðnum með út­leigu á hágæða sviðsvögn­um frá kanadíska merk­inu Stage Line.

„Sam­keppn­in í okk­ar bransa er nokkuð mik­il og þá er gott að búa yfir sér­stöðu á ein­hverj­um sviðum. HljóðX hef­ur verið leiðandi í leigu á traust­um og öfl­ug­um útisviðsvögn­um sem þola ís­lensk­ar aðstæður og öll veður­skil­yrði. Þess­ir vagn­ar eru frá­bær­ir þegar haldn­ar eru stór­ar úti­sam­kom­ur eins og tón­leik­ar á Menn­ing­arnótt eða stóra fundi eins og var á Arn­ar­hóli á Kvenna­frí­dag­inn,“ lýs­ir Jó­hann og seg­ir HljóðX jafnt og þétt vera að bæta nýj­um og gagn­leg­um búnaði við flot­ann.

Heimaklettur var lýstur upp með 20 Martin Mac Ultra ljósum …
Heimaklett­ur var lýst­ur upp með 20 Mart­in Mac Ultra ljós­um sem HljóðX ferjaði yfir til Vest­manna­eyja og skapaði stór­kost­lega upp­lif­un fyr­ir íbúa og gesti. Ljós­mynd/​Tói Vídó

Ný­lega tók HljóðX einnig nýja og glæsi­lega heimasíðu í gagnið. Þar eru all­ar upp­lýs­ing­ar um lausn­ir og þjón­ustu sem fyr­ir­tækið býður upp á.

„Við hvetj­um alla sem eru að huga að viðburði eða vant­ar hljóðkerfi eða ann­an búnað um að kíkja þar við, skoða úr­valið og hafa sam­band við okk­ur,“ seg­ir Jó­hann Örn að lok­um.

Smelltu hér til að fara á heimasíðu HljóðX

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert