Eftirsóttar ævintýraferðir um víða veröld

Guðmundur Gunnlaugsson, sölumaður í skíðadeild Fjallakofans og fararstjóri hjá Fjallakofanum-Ævintýraferðum.
Guðmundur Gunnlaugsson, sölumaður í skíðadeild Fjallakofans og fararstjóri hjá Fjallakofanum-Ævintýraferðum. mbl.is/Eyþór Árnason

„Útivist er í mikl­um blóma á meðal Íslend­inga. Fram­boðið af æv­in­týra­ferðum er fjöl­breytt og fólk vill búa sér til skemmti­leg­ar minn­ing­ar og njóta þess sem ver­öld­in býður upp á. Við erum væn­leg­ur kost­ur og með margra ára reynslu í þeim efn­um,“ seg­ir Guðmund­ur Gunn­laugs­son, sölu- og far­ar­stjóri hjá Fjalla­kof­an­um-Ævin­týra­ferðum. 

Ferðaskrif­stof­an Fjalla­kof­inn-Ævin­týra­ferðir sér­hæf­ir sig í úti­vist­ar- og æv­in­týra­ferðum sem hreyfa við hug og hjört­um æv­in­týra­fólks á öll­um aldri. Úrval ferða sem boðið er upp á hjá Fjalla­kof­an­um-Ævin­týra­ferðum eru af fjöl­breytt­um toga og henta öll­um þeim sem hafa gam­an af úti­vist. 

Skíðaferðir með Fjallakofanum-Ævintýraferðum eru sígildar og mjög vinsælar.
Skíðaferðir með Fjalla­kof­an­um-Ævin­týra­ferðum eru sí­gild­ar og mjög vin­sæl­ar. Sam­sett mynd

Fjöl­breytt úr­val æv­in­týra­ferða

„Ferðirn­ar sem ég kem að eru fjöl­breytt­ar, hvort sem það eru göngu-, hjóla- eða skíðaferðir, en einnig menn­ing­ar­ferðir,“ seg­ir Guðmund­ur sem hef­ur í góð 30 ár verið viðloðandi úti­vist­ar­brans­ann.

„Ég hef alltaf haft ástríðu fyr­ir úti­vist og hreyf­ingu og má þá sér­stak­lega nefna skíðaferðirn­ar, en í seinni tíð hafa bæst við göngu- og hjóla­ferðir. Ég hef verið lán­sam­ur í því að ferðir á mín­um veg­um hafa verið eft­ir­sótt­ar og meðal áfangastaða í þeim æv­in­týra­ferðum sem ég mun stýra eru helstu göngu- og skíðap­ara­dís­ir Ítal­íu, Aust­ur­rík­is, Frakk­lands og Þýska­lands,“ seg­ir hann og er með þétt­bókað daga­tal í far­ar­stjórn á veg­um Fjalla­kof­ans-Ævin­týra­ferða út árið 2024. 

Leiðir þeirra Guðmundar og Halldórs Hreinssonar, eiganda Fjallakofans, hafa oft …
Leiðir þeirra Guðmund­ar og Hall­dórs Hreins­son­ar, eig­anda Fjalla­kof­ans, hafa oft legið sam­an í gegn­um tíðina. Enda tala þeir sama tungu­mál þegar úti­vist og hreyf­ing er ann­ars veg­ar. mbl.is/​Eyþór Árna­son

„Í upp­hafi nýs árs er á dag­skrá skíðaferð á æðis­legt skíðasvæði í Cort­ina d‘Am­pezzo í fe­brú­ar. Í ág­úst verð ég svo með hjóla- og göngu­ferð ná­lægt Trier í Suður Þýskalandi og í sept­em­ber ætla ég svo með hóp í menn­ing­ar­ferð til Munchen, en þar ætla ég að fara á Októ­ber­fest, stærstu bjór­hátíð í heimi. Það er stór­kost­leg upp­lif­un sem all­ir ættu að prófa að minnsta kosti einu sinni á lífs­leiðinni,“ list­ar hann upp og seg­ist jafn­framt vera far­inn að und­ir­búa skíðaferð í janú­ar 2025 svo það er nóg um að vera fram und­an hjá Fjalla­kof­an­um-Ævin­týra­ferðum.

„Núna eiga menn­ing­ar­ferðir af ýms­um toga vax­andi fylgi að fagna og eru ýms­ar út­færsl­ur ferða í boði. Til dæm­is háfjalla­ferðir og margs kon­ar fjöl­skyldu-, árs­hátíðar- og fyr­ir­tækja­ferðir sem hef­ur fjölgað hjá okk­ur þar sem við sníðum utan um þarf­ir hvers hóps. Við höf­um getað sýnt fram á þetta tvennt sem skipt­ir svo miklu máli þegar að fara skal með hóp er­lend­is, það er sann­gjarnt verð og vönduð vinnu­brögð.“

Guðmundur hefur mikla unun af því að ganga á fjöll …
Guðmund­ur hef­ur mikla unun af því að ganga á fjöll um víða ver­öld í góðum fé­lags­skap. Sam­sett mynd

Reynsla og fag­mennska núm­er eitt

Guðmund­ur er reynslu­mik­ill far­ar­stjóri og úti­vist­armaður sem brenn­ur fyr­ir al­mennri úti­vist og hreyf­ingu. 

„Þegar ég var barn­ung­ur var leik­svæðið mitt á fjöll­um. Þar gat ég verið að elt­ast við kind­ur í smala­mennsku og síðan tóku skíðin við um leið og snjór­inn lagðist yfir fjöll­in,“ minn­ist hann en Guðmund­ur er fædd­ur og upp­al­inn á Ísaf­irði þar sem alls staðar gafst kost­ur á úti­vist og fjalla­mennsku í nærum­hverf­inu. Þau for­rétt­indi seg­ir hann hafa ýtt und­ir áhug­ann á úti­vist sem hann hef­ur lagt í vana sinn að stunda all­an árs­ins hring, óháð árstíðum. 

Þú færð allt fyrir útivistina í verslun Fjallakofans.
Þú færð allt fyr­ir úti­vist­ina í versl­un Fjalla­kof­ans. mbl.is/​Eyþór Árna­son

„Ég myndi segja að það sé mér í blóð borið að stunda al­menna úti­vist. Mér þykir sér­lega gam­an að fara í göngu­ferðir með frá­bær­um göngu­fé­lög­um. Á sumr­in bæt­ist svo hjólið við en á vet­urna er það skíðaiðkun sem tek­ur að mestu yfir, hvort sem það eru svig,- göngu- eða fjalla­skíði. Allt er þetta mjög gef­andi, en fyr­ir mig er það ekki síst fé­lags­skap­ur­inn og allt það góða sem heil­næm hreyf­ing og úti­vist gef­ur manni sem kall­ar á mig og hvet­ur til úti­vist­ar,“ seg­ir Guðmund­ur sem einnig hef­ur mikla reynslu í skíðaþjálf­un. 

„Skíðaiðkun er stór hluti í mínu lífi og keppti ég lengi með skíðadeild ÍR á sín­um tíma. Seinna meir fór ég út í skíðaþjálf­un og í 21 ár þjálfaði ég börn og ung­linga til keppni, bæði í Reykja­vík og á lands­byggðinni,“ seg­ir hann.

„Það er fátt sem ég hef gert sem hef­ur gefið mér meira en ein­mitt að fylgj­ast með auk­inni færni og getu barna og ung­linga á skíðum og oft hitti ég fólk sem er fullt þakk­læt­is fyr­ir þenn­an góða tíma. Það var nú ekki mikið spurt um laun fyr­ir þessa vinnu enda hef­ur mikið starf á veg­um skíðadeild­anna verið unnið í sjálf­boðavinnu,“ lýs­ir Guðmund­ur sem seg­ist full­ur til­hlökk­un­ar fyr­ir aðkomu sinni í næstu ferðum á veg­um Fjalla­kof­ans-Ævin­týra­ferða.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir býður upp á margs konar skemmtilegar ferðir þar sem …
Fjalla­kof­inn-Ævin­týra­ferðir býður upp á margs kon­ar skemmti­leg­ar ferðir þar sem úti­vist og hreyf­ing er í for­grunni. Sam­sett mynd

Mik­il til­hlökk­un

„Mín­ar ferðir eru hugsaðar sem hrein viðbót við þær fjöl­breyttu ferðir sem hafa verið í boði hjá skrif­stof­unni í gegn­um árin. Í þær eru all­ir vel­komn­ir, byrj­end­ur sem lengra komn­ir. Ég hef alltaf litið svo á að mitt fram­lag sem far­ar­stjóri sé að færa ferðirn­ar til þeirra sem vilja njóta þess að búa til góðar minn­ing­ar hvort sem er í skíðaferðum eða öðrum hreyfi­ferðum og þannig er stefnt að því að aðild mín að Fjalla­kof­an­um-Ævin­týra­ferðum verði,“ seg­ir hann og bæt­ir við:

„Ég er stolt­ur og auðmjúk­ur að stíga inn í þau verk­efni sem mér eru fal­in hjá Fjalla­kof­an­um-Ævin­týra­ferðum og mun gera það af fag­mennsku,“ seg­ir Guðmund­ur að lok­um.

Á heimasíðu ferðaskrif­stofu Fjalla­kof­ans-Ævin­týra­ferða eru hag­nýt­ar upp­lýs­ing­ar um úr­val ferða og bók­un­ar­ferlið. Einnig er hægt að senda tölvu­póst á net­fangið fer­d­ir@fjalla­kof­inn.is til þess að skrá þátt­töku og/​eða fá nán­ari upp­lýs­ing­ar um ferðir á döf­inni eða sér­sniðnar ferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert