Brauðmeti og bakkelsi sem færa þér jólin

Sigþór Andri Sigþórsson, bakari hjá Bakarameistaranum.
Sigþór Andri Sigþórsson, bakari hjá Bakarameistaranum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bak­ara­meist­ar­inn hef­ur verið í far­ar­broddi í bakstri á brauðmeti og bakk­elsi í yfir 45 ár. Þrátt fyr­ir að versl­an­ir Bak­ara­meist­ar­ans séu yf­ir­full­ar af góm­sæt­um kræs­ing­um allt árið um kring þá fær­ist vöru­úr­valið í jóla­bún­ing í aðdrag­anda jóla þar sem boðið er upp á ómót­sæðilegt góðgæti sem minn­ir bragðlauk­ana á jól­in.

„Við erum mjög stolt af jóla­vör­unni okk­ar enda klass­ísk og góð vara þó ég segi sjálf­ur frá. Íslenskt smjör er í há­veg­um haft og öll jóla­var­an okk­ar er hand­gerð af mik­illi natni,“ seg­ir Sigþór Andri Sigþórs­son bak­ari hjá Bak­ara­meist­ar­an­um.

Hjá Bakarameistaranum er ferskleikinn í fyrirrúmi.
Hjá Bak­ara­meist­ar­an­um er fersk­leik­inn í fyr­ir­rúmi. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Jólakræs­ing­ar órjúf­an­leg­ur hluti jól­anna

Að sögn Sigþórs eru nokkr­ar jóla­vör­ur hjá Bak­ara­meist­ar­an­um sem eru vin­sælli en aðrar og mörg­um þykir órjúf­an­leg­ur hluti jóla­hátíðar­inn­ar. 

„Lag­tert­urn­ar okk­ar eru gíf­ur­lega vin­sæl­ar. Um er að ræða fjöl­skyldu­upp­skrift sem kem­ur frá lang­ömmu minni Rósu Árna­dótt­ur á Húsa­vík,“ seg­ir Sigþór sem er sá þriðji í Bak­ara­meist­ara­fjöl­skyld­unni sem út­skrif­ast sem bak­ari í bein­an karllegg.

„Við bjóðum upp á þrjár teg­und­ir af lag­tert­um; brúna með smjörkremi og sveskjusultu, og svo bara með smjörkremi og svo hvít­ar lag­tert­ur með sveskjusultu,“ seg­ir hann en að hans sögn eru smá­kök­urn­ar frá Bak­ara­meist­ar­an­um ekki síður vin­sæl­ar, ásamt ávaxta­kök­un­um og Stol­len-jóla­brauðinu sem þykir eitt það allra jóla­leg­asta sem fólk fær.

Lagterturnar frá Bakarameistaranum eru gerðar eftir gamalli fjölskylduuppskrift og eru …
Lag­tert­urn­ar frá Bak­ara­meist­ar­an­um eru gerðar eft­ir gam­alli fjöl­skyldu­upp­skrift og eru sér­lega góm­sæt­ar. Ljós­mynd/​Bak­ara­meist­ar­inn

„Stol­len er upp­haf­lega þýskt jóla­brauð og til í ótelj­andi teg­und­um. Brauðið inni­held­ur kokteilá­vexti og rús­ín­ur sem fá að liggja í rommi í nokkr­ar vik­ur, marsíp­an, og er svo toppað með flór­sykri sem ger­ir það rosa­lega jóla­legt og fal­legt á jóla­borði. Svo þegar það er sneitt niður þá blasa við lit­rík­ir kokteilá­vext­ir.“

Sigþór seg­ir smá­kök­urn­ar frá Bak­ara­meist­ar­an­um al­ger­lega hafa fest sig í sessi hjá ís­lensku þjóðinni. Enda með ein­dæm­um þægi­legt að þurfa ekki að standa í margra sorta smá­köku­bakstri á anna­söm­um tíma en geta samt fengið rétta bragðið af jól­un­um.

„Bessastaðakök­urn­ar, súkkulaðibita­kök­urn­ar og mömm­u­kök­urn­ar eru sér­stak­lega vin­sæl­ar. Þá er ekki hægt að nefna vin­sæl­ustu vör­urn­ar nema minn­ast á ensku ávaxta­kök­una sem er gljáð með koní­aki en þeir allra hörðustu halda áfram að mar­in­era hana fram að jól­um,“ seg­ir Sigþór og bend­ir á að gam­an sé að gleðja ást­vini sína með góm­sætri gjöf á þess­um anna­sama árs­tíma.

Smákökurnar hafa löngu fest sig í sessi hjá íslensku þjóðinni.
Smá­kök­urn­ar hafa löngu fest sig í sessi hjá ís­lensku þjóðinni. Ljós­mynd/​Bak­ara­meist­ar­inn

Góm­sæt­ar gjaf­ir

„Það er fátt dá­sam­legra en að fá nýbakaða jóla­vöru til að létta und­ir press­unni fyr­ir jól­in. Við bjóðum upp á fal­lega jóla­poka í tveim­ur stærðum sem er til­val­in gjöf til að grípa með sér fyr­ir sæl­ker­ana.“

Bak­ara­meist­ar­inn býður fyr­ir­tækj­um einnig upp á þjón­ustu á til­bún­um bökk­um af jóla­vöru og heitu kakói. Þá hafa jóla­vör­urn­ar frá Bak­ara­meist­ar­an­um líka verið mjög vin­sæl­ar fyr­ir­tækja­gjaf­ir síðustu ár.

„Vegna anna í des­em­ber er gott að hafa góðan fyr­ir­vara á pönt­un­um. Það hef­ur færst í auk­ana síðustu ár að fyr­ir­tæki gefi starfs­fólki sínu bragðgóðar gjaf­ir og við get­um líka sér­merkt jóla­vör­urn­ar okk­ar fyr­ir fyr­ir­tæki svo þau geti gefið gjaf­ir út­bún­ar af okk­ur en í sín­um bún­ingi.“

Stollen-jólabrauðið er einstaklega fallegt og jólalegt og ekki skemmir bragðið …
Stol­len-jóla­brauðið er ein­stak­lega fal­legt og jóla­legt og ekki skemm­ir bragðið fyr­ir. Ljós­mynd/​Bak­ara­meist­ar­inn

Há­markaðu hátíðarmat­inn

Brauðið frá Bak­ara­meist­ar­an­um hef­ur verið eins kon­ar punkt­ur­inn yfir i-ið á hátíðar­borðum Íslend­inga síðustu ár. Sigþór seg­ir það hafa færst í auk­ana að fólk næli sér í rúg­brauð fyr­ir skötu­veisl­una á Þor­láks­messu, lít­il súp­urúnstykki til að hafa með for­rétt­in­um á aðfanga­dag, sér­sniðið út­flatt smjör­deig fyr­ir well­ingt­on-steik­ina og kran­sa­köku fyr­ir veislu­borðið á Gaml­árs­dag. 

„Það er mjög gott að panta þess­ar vör­ur nokkra daga fyr­ir jól til að tryggja sér hana. Það er ekki gam­an að sitja eft­ir með sárt ennið á sjálf­um jól­un­um,“ seg­ir hann.

Þá seg­ir Sigþór að viðskipta­vin­ir Bak­ara­meist­ar­ans geti ávallt gengið að því vísu að fá ferska og góða vöru, fram­leidda af fag­lærðum bök­ur­um sem not­ast ein­ung­is við hágæða hrá­efni.

„Við erum með ein­vala teymi bak­ara sem fram­leiða vör­una sem við klár­um svo að baka í búðunum og við bök­um all­an dag­inn. Svo það er alltaf hægt að treysta á fersk­leik­ann hjá Bak­ara­meist­ar­an­um.“ 

Kransakaka á áramótaborðið frá Bakarameistaranum er ljúffengt veisluprýði.
Kran­sakaka á ára­móta­borðið frá Bak­ara­meist­ar­an­um er ljúf­fengt veisluprýði. Ljós­mynd/​Bak­ara­meist­ar­inn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert