Oftast hrósað fyrir gott verð

Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Home & You á Íslandi.
Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Home & You á Íslandi. mbl.is/Árni Sæberg

Ný­lega opnaði hús­búnaðar- og gjafa­vöru­versl­un­in Home & You í glæsi­legu 400 fer­metra versl­un­ar­rými í Smáralind. Ingi­björg Salóme Sig­urðardótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Home & You á Íslandi, seg­ir viðtök­urn­ar við versl­un­inni hafa farið fram úr björt­ustu von­um.

„Það hef­ur verið fullt út úr dyr­um hjá okk­ur alla daga frá því versl­un­in opnaði og mikið fjör,“ seg­ir hún. „Við erum af­skap­lega ánægð að vera orðin hluti af þessu frá­bæra sam­fé­lagi sem Smáralind­in er og Íslend­ing­um finnst ómiss­andi að heim­sækja fyr­ir jól­in.“

Versl­an­ir Home & You eru orðnar hátt í 200 tals­ins víða um Evr­ópu og hef­ur vöxt­ur þeirra verið gríðarlega hraður. Ingi­björg seg­ir þá þróun helst til­komna vegna hag­stæðs vöru­verðs og fjöl­breytts vöru­úr­vals sem versl­un­ar­keðjan er þekkt fyr­ir.

„Vin­sæld­ir Home & You hafa verið að aukast mikið síðustu ár enda geta all­ir fundið fal­leg­ar vör­ur við sitt hæfi hjá okk­ur og plús­inn er sá að þær eru á viðráðan­legu verði. Viðskipta­vin­ir okk­ar hafa hrósað okk­ur í há­stert og aðallega fáum við að heyra hvað verðið er gott. Home & You legg­ur nefni­lega áherslu á fal­leg­ar og góðar vör­ur á góðu verði.“

Vöruúrval Home & You er mjög litskrúðugt en náttúrulegir litir …
Vöru­úr­val Home & You er mjög lit­skrúðugt en nátt­úru­leg­ir lit­ir eru ekki síðar heill­andi og vin­sæl­ir. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Heim­il­isprýði og gull­fal­leg­ar gjaf­ir

Frá því versl­un­in Home & You opnaði í Smáralind í lok nóv­em­ber hafa tæp­lega 2000 ný vör­u­núm­er bæst við vöru­úr­valið. Þar er að finna allt til að fegra heim­ilið eða flikka upp á ein­stök rými því í Home & You fást smá­vör­ur af ýmsu tagi sem setja punkt­inn yfir i-ið. 

„Guðdóm­legu ilm­kert­in okk­ar voru til dæm­is að lenda og við feng­um fullt af nýj­um ilm­um sem ekki er hægt að lýsa með orðum, þau ilma svo vel og á svo ólík­an hátt,“ seg­ir Ingi­björg og nefn­ir að ilm­kerti eru sí­gild­ar og fín­ar jóla­gjaf­ir fyr­ir fag­ur­kera og þau sem eiga allt.

„Við erum með al­veg gríðarlega fjöl­breytt úr­val og í raun­inni er erfitt að segja til um hvaða vör­ur eru vin­sæl­ast­ar því það er hreyf­ing á öllu mögu­legu. Hand­klæðin okk­ar hafa verið að selj­ast mjög vel og öll fal­legu glös­in,“ seg­ir Ingi­björg.

Handklæðin frá Home & You eru frábær í jólapakkann. Sígild …
Hand­klæðin frá Home & You eru frá­bær í jólapakk­ann. Sí­gild og end­ing­argóð. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Full­komnaðu jól­in

Í aðdrag­anda jóla seg­ir Ingi­björg að dúk­ar og lö­ber­ar hafi rokið út. Enda séu fal­lega dekkuð hátíðar­borð órjúf­an­leg­ur hluti jóla­hátíðar­inn­ar hjá mörg­um.

„Það skipt­ir marga mjög miklu máli að hafa fal­legt veislu­borð yfir hátíðirn­ar. Hjá Home & You eru fá­an­leg­ir fal­leg­ir dúk­ar í ýms­um út­færsl­um, kerti og skreyt­ing­ar sem setja sann­kallaðan hátíðarbrag á heim­ilið,“ seg­ir hún.

„Það sem mér finnst skipta svo miklu við að út­búa fal­legt hátíðar­borð er að vera með fal­leg­an dúk, jafn­vel lö­ber og/​eða diskamott­ur í stíl við dúk­inn. Við eig­um mikið úr­val af geggjuðum dúk­um sem halda sér vel og liggja fal­lega á borði.“

Hvers kyns húsbúnaðarvörur eru fáanlegar í Home & You.
Hvers kyns hús­búnaðar­vör­ur eru fá­an­leg­ar í Home & You. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Síðustu vik­ur hafa jóla­vör­urn­ar sett svip á vöru­úr­valið í Home & You. „Það er svo gam­an að koma í Home & You og gleyma sér í því að skoða all­ar vör­urn­ar. Jóla­vör­urn­ar gleðja augað á þess­um árs­tíma enda erum við með mikið úr­val af fal­legri og ein­stakri jóla­vöru þar sem ljósa- og lita­dýrðin svík­ur eng­an.“

Hjá Home & You fást góðar og fal­leg­ar jóla­gjaf­ir sem gleðja unga sem aldna á breiðu verðbili. Ingi­björg hvet­ur þá sem eiga eft­ir að finna hina full­komnu jóla­gjöf handa ást­vin­um sín­um til að líta við í Home & You.

„Hjá okk­ur er hægt að fá allt í jólapakk­ann. Hvort sem um litla vin­konu­gjöf er að ræða eða eitt­hvað aðeins stærra eins og veg­leg­ur og flott­ur lampi. Þú finn­ur hina full­komnu jóla­gjöf fyr­ir fag­ur­ker­ann hjá okk­ur. Kíktu við hjá okk­ur - sjón er sögu rík­ari.“   

Jólavörurnar eru einstakar og litadýrðin gleður augað.
Jóla­vör­urn­ar eru ein­stak­ar og lita­dýrðin gleður augað. mbl.is/Á​rni Sæ­berg


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert