Mikilvægt að grípa viðskiptavinina

Viðtal við Díönu Olsen deildastjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Mannauðslausnum …
Viðtal við Díönu Olsen deildastjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Mannauðslausnum Advania.

Við veitum persónulega og góða þjónustu og viljum alltaf standa fyrir framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Þjónustuborðið okkar er opið frá níu til fjögur og við reynum að grípa öll mál sem koma til okkar og svara þeim hratt og vel,“ segir Díana Björk Olsen, deildarstjóri ráðgjafar og þjónustu hjá Mannauðslausnum Advania.

„Við erum sautján í teyminu og erum með H3 launa og mannauðskerfi, Bakvörð, Vinnustund, Matráð, Samtal og Flóru. Ráðgjafar okkar hafa mjög fjölbreytta sérhæfingu og faglega þekkingu sem og dýrmæta reynslu sem gagnast viðskiptavinum okkar. Fimm verkefnastjórar sjá svo um innleiðingar á nýjum viðskiptavinum og samþættingar við kerfi okkar sem og önnur kerfi. Þetta er einstakt teymi sem vinnur ótrúlega vel saman.“

Veita meiri þjónustu þegar við á

Spurð um algeng hrósyrði sem deildin fái svarar Díana:

„Fólk er mjög ánægt með skjót og greinargóð svör og almennt með aðstoðina sem það fær. Við erum fljót að tengjast umhverfi þess og getum aðstoðað fólkið með gögn sín eftir þörfum hvers og eins. Það er alltaf jafn skemmtilegt að heyra hrós um það hvað teymið mitt er frábært og hvað það er alltaf gott að leita til þess.“

Díana segir að mikilvægur hluti af þjónustunni sé að reyna að vera skrefi á undan. „Sem dæmi má nefna að þegar við sjáum út frá þjónustubeiðnum að það sé þörf fyrir frekari kennslu eða þjálfun höfum við samband við viðskiptavininn og bjóðum fram aðstoð þess efnis. Þannig aukum við þekkingu viðskiptavina okkar á kerfum okkar, sem dregur úr handavinnu og þannig gefst meiri tíma í annað.

„Við fylgjumst til dæmis með því þegar nýir launafulltrúar koma inn hjá fyrirtækjum sem nota H3. Við viljum vera á undan að bjóða þeim stuðning, fræðslu og kennslu á kerfið og að halda í höndina á þeim á meðan þeir vinna fyrstu launavinnsluna,“ útskýrir Díana.

Viljum vera skrefi á undan

„Viðbótarþjónusta sem við höfum boðið upp á og fundið að þörf er fyrir er stuðningur þegar veikindi og frí launafulltrúa koma upp á vinnustöðum þar sem oft er engin afleysing. Þá höfum við stokkið inn og aðstoðað. Slíkar beiðnir hafa komið inn til okkar með mjög stuttum fyrirvara, enda gera veikindi ekki alltaf boð á undan sér og höfum við séð um að greiða út laun eftir nokkra daga. Með þessu erum við að veita framúrskarandi þjónustu. Við árstíðabundnar sveiflur veitum við meiri stuðning í launavinnslu, eins og með desemberuppbót og orlof. Einnig bjóðum við upp á fjölmörg námskeið sem viðskiptavinir okkar eru duglegir að nýta sér,“ segir Díana. „Við erum alltaf til staðar og tilbúin að aðstoða, því það er mikilvægt að grípa viðskiptavinina þegar þörf er á.“

Viðtal við Díönu Olsen deildastjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Mannauðslausnum …
Viðtal við Díönu Olsen deildastjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Mannauðslausnum Advania.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert