Að minnka áhrif páskaeggjaátsins

„Nú þegar allir eru að borða páskaegg þá vil ég …
„Nú þegar allir eru að borða páskaegg þá vil ég að fólk njóti þess og borði með meðvitund og athygli en hugi á sama tíma að þarmaflórunni og mikilvægi meltingarvegsins,“ segir Dr. Birna G. Ásbjörnsdóttir eigandi Jörth. mbl.is/Eggert

Dr. Birna G. Ásbjörns­dótt­ir er einn helsti sér­fræðing­ur þjóðar­inn­ar þegar kem­ur að heil­brigðri þarma­flóru og heilsu í gegn­um melt­ing­ar­veg­inn. Bæti­efn­in frá Jörth eru svör­in og lausn­in henn­ar við svo mörgu af því sem fólk hef­ur leitað til henn­ar með síðustu þrjá ára­tug­ina.

„Nú þegar all­ir eru að borða páska­egg þá vil ég að fólk njóti þess og borði með meðvit­und og at­hygli en hugi á sama tíma að þarma­flór­unni og mik­il­vægi melt­ing­ar­veg­ar­ins,“ seg­ir Birna G. Ásbjörns­dótt­ir eig­andi Jörth en hún lauk doktors­gráðu í heil­brigðis­vís­ind­um frá Há­skóla Íslands, meist­ara­gráðu í nær­ing­ar­lækn­is­fræði frá Sur­rey-há­skóla, meist­ara­námi við Oxford-há­skóla og var gest­a­rann­sak­andi við Har­vard Medical School um tíma. „Það er mjög mik­il­vægt að eiga ein­hverja leið til að styrkja melt­ing­ar­veg­inn þegar við leyf­um okk­ur að borða syk­ur,“ seg­ir hún.

Bætiefnin frá Jörth eru svörin og lausnin við svo mörgu …
Bæti­efn­in frá Jörth eru svör­in og lausn­in við svo mörgu af því sem fólk hef­ur leitað til Dr. Birnu með síðustu þrjá ára­tug­ina. Jörth-bæti­efn­in eru til sölu á heimasíðu Jörth og í lyfja­versl­un­um og á nokkr­um góðum stöðum. mbl.is/​Aðsend

„Mér finnst fólk mjög mót­tæki­legt um leiðirn­ar sem í boði eru til að leyfa nátt­úr­unni að græða okk­ur. Heil­brigð þarma­flóra er ein af for­send­um fyr­ir betri líðan, bæði lík­am­lega og and­lega, og þú get­ur bætt flór­una þína með hágæða nátt­úru­leg­um bæti­efn­um sem ég hef verið að þróa um skeið,“ seg­ir Birna sem hef­ur haldið nám­skeið og verið með fræðslu um þarma­flór­una í tæp­lega þrjá ára­tugi.

Birna segir það mjög gefandi að geta leiðbeint öðrum.
Birna seg­ir það mjög gef­andi að geta leiðbeint öðrum. mbl.is/​Eggert

„Ég byrjaði að tala um þarma­flór­una fyr­ir mörg­um ára­tug­um þegar mál­efnið var ekki mikið í umræðunni hér heima og er­lend­is, og hafa viðtök­urn­ar alltaf verið mikl­ar og góðar. Þarma­flór­an hef­ur áhrif á meira en bara melt­ing­una, hún hef­ur áhrif á okk­ur bæði and­lega og lík­am­lega.“

Sjálf lif­ir Birna eft­ir þeirri heim­speki sem Jörth boðar. Hún býr í Smiðshús­um á Eyr­ar­bakka sem er ein­stak­lega fal­legt hús í miðri nátt­úrup­ara­dís ásamt eig­in­manni sín­um, Guðmundi Ármanni Pét­urs­syni. „Jörth varð til á sunnu­dags­morgni þar sem við vor­um, eins og svo oft áður, að velta fyr­ir okk­ur tengsl­um mataræðis og heilsu og höfðum verið að skoða bæti­efni fyr­ir melt­ing­una en okk­ur fannst alltaf eitt­hvað vanta. Guðmund­ur er með meist­ara­gráðu í um­hverf­is­fræðum en hann er einnig rekstr­ar­fræðing­ur og menntaður í líf­ræn­um land­búnaði. Það má því segja að þekk­ing okk­ar, per­sónu­leg­ur bak­grunn­ur og sam­eig­in­leg­ur áhugi okk­ar á nátt­úr­unni og síðast en ekki síst löng­un til að láta gott af okk­ur leiða hafi myndaði jarðveg­inn sem Jörth spratt upp úr,“ seg­ir Birna.

Birna býður upp á námskeið í Smiðshúsum á Eyrarbakka þar …
Birna býður upp á nám­skeið í Smiðshús­um á Eyr­ar­bakka þar sem hún býr. Á nám­skeiðunum kenn­ir hún nú­vit­und, að hlusta á nátt­úru­hljóðin og að núllstilla sig og fer yfir mik­il­vægi nær­ing­ar og hvernig nær­ing hef­ur áhrif á heils­una í gegn­um melt­ing­ar­veg­inn. mbl.is/​Karítas

Þarma­flór­an hef­ur áhrif í all­ar átt­ir

Hvað get­ur þú sagt okk­ur um bæti­efn­in sem þú hef­ur búið til?

„Í þá tæp­legu þrjá ára­tugi sem ég hef starfað við ráðgjöf og fræðslu hef ég heyrt tals­vert marg­ar um­kvart­an­ir og um alls kon­ar heilsu­far­svanda­mál og það sem mér fannst standa upp úr var hvað marg­ir voru með ein­hver óþæg­indi út frá melt­ing­ar­veg­in­um.

Það var upp­haf­lega kveikja þess að fyrsta var­an okk­ar, Abdom-bæti­efnið, kom á markaðinn. Rót­in að vanda okk­ar er svo oft út frá melt­ing­ar­veg­in­um okk­ar. Abdom-bæti­efnið styrk­ir melt­ing­ar­veg­inn, efl­ir þarma­flór­una og kem­ur jafn­vægi á melt­ing­una. Það er búið til úr hágæðahrá­efn­um sem græða þig inn­an frá, eitt skref í einu. Heil­brigður melt­ing­ar­veg­ur ásamt öfl­ugri melt­ing­ar­flóru er svo grunn­ur­inn að góðri heilsu.“

Birna hefur verið með fræðslu og fyrirlestra hjá Endurmenntun og …
Birna hef­ur verið með fræðslu og fyr­ir­lestra hjá End­ur­mennt­un og víðar. Hún er kenn­ari við Há­skóla Íslands ásamt því að reka Jörth með eig­in­manni sín­um, Guðmundi Ármanni Pét­urs­syni. Bæði hafa þau mikla trú á því að nátt­úr­an græði. mbl.is/​Aðsend

Mæl­ir þú þá með Abdom fyr­ir þau sem fá magaþembu og verða svöng strax eft­ir að hafa borðað súkkulaði?

„Það get­ur verið mjög góð hug­mynd. Ef maður fær þessi ein­kenni sem þú lýs­ir eft­ir að borða syk­ur þá bend­ir það til þess að þarma­flór­an mætti vera öfl­ugri. Eðli­lega þegar maður borðar mikið af sæt­ind­um þá hef­ur það áhrif á blóðsyk­ur­inn. Þegar maður er hraust­ur þá finn­ur maður ekki svo mikið fyr­ir þess­um sveifl­um. Ef hins veg­ar eitt­hvað ójafn­vægi er í gangi hjá manni þá eru meiri lík­ur á að blóðsyk­ur­inn taki stærri sveifl­ur. Fari hátt upp eft­ir syk­ur­inn, þá dæl­ir lík­am­inn út insúlíni og þegar það ger­ist þá fell­ur blóðsyk­ur­inn niður fyr­ir það stig sem hann er vana­lega í og þá verður maður svang­ur og vant­ar eitt­hvað til að hífa hann upp aft­ur. Þá leita marg­ir í syk­ur aft­ur og blóðsyk­ur­inn rýk­ur upp aft­ur og þetta jójó-ástand held­ur áfram.“

Abdom bætiefnið styrkir meltingarveginn, eflir þarmaflóruna og kemur jafnvægi á …
Abdom bæti­efnið styrk­ir melt­ing­ar­veg­inn, efl­ir þarma­flór­una og kem­ur jafn­vægi á melt­ing­una. Það er búið til úr hágæðahrá­efn­um sem græða þig inn­an frá, eitt skref í einu. Heil­brigður melt­ing­ar­veg­ur ásamt öfl­ugri melt­ing­ar­flóru er grunn­ur­inn að góðri heilsu, bæði lík­am­legri og and­legri. mbl.is/​Aðsend

„Þarma­flór­an hef­ur áhrif í all­ar átt­ir. Hún hef­ur áhrif á efna­skipt­in og horm­óna­bú­skap­inn, ónæmi- og tauga­kerfið, og hvað við ger­um við það sem fer ofan í melt­ing­ar­veg­inn.“

Bæti­efni sem efl­ir ónæmis­kerfið

Eft­ir að Abdom kom á markaðinn komu í fram­hald­inu fleiri bæti­efni frá Jörth, sem dæmi Imm­un, Nerv, Dorm og Focuz. „Þegar við erum að eiga við af­leiðing­ar af viðkvæm­um melt­ing­ar­vegi, og við erum búin að laga hann eða koma hon­um í jafn­vægi þá upp­lifa marg­ir ónæmis­kerfið ekki al­veg í sínu topp­formi. Það myndi lýsa sér í óþarf­lega mörg­um sýk­ing­um og um­gangspest­um, önd­un­ar­færa­sýk­ing­um og kvefi svo dæmi sé tekið. Þá get­ur verið gott að taka inn Imm­un sem er mjög öfl­ug vara sem efl­ir ónæmis­kerfið með öfl­ugri blöndu af gerjaðri brodd­mjólk, lysozyme og ovotrans­fer­ríni. Brodd­mjólk­in ver ný­fædd af­kvæmi fyr­ir sýk­ing­um og sjúk­dóm­um. Lysozyme er líf­virkt ensím sem finnst nátt­úru­lega í ýms­um lík­ams­vess­um eins og tár­um og munn­vatni og hef­ur öfl­uga sýkla­varn­ar­eig­in­leika. Lactó­fer­rín er fjöl­virkt prótein sem finnst meðal ann­ars í brodd­mjólk og öðrum lík­ams­vess­um. Það bind­ur járn og haml­ar vöxt bakt­ería. Ovótrans­fer­rín er prótein sem finna má í eggja­hvítu sem hindr­ar út­breiðslu sýkla.“

Focuz er öflugt bætiefni sem eykur fókus og skýra hugsun …
Focuz er öfl­ugt bæti­efni sem eyk­ur fókus og skýra hugs­un með öfl­ugri blöndu af þurr­gerjuðum mysu­prótein­um, sér­hannaðri míkró­hjúpaðri góðgerla­blöndu ásamt L- týtósíni og B-víta­mín­um. Focuz er fyr­ir þá sem vilja auka ein­beit­ingu og ná há­marks frammistöðu yfir dag­inn. Focuz hent­ar þér ef þú vilt meiri orku og skýr­leika í öllu sem þú ger­ir. mbl.is/​Aðsend

Imm­un er því ör­veru- og bólgu­eyðandi og styður varn­ir lík­am­ans á sama tíma og það ver þig gegn sýk­ing­um og eyk­ur al­menna vellíðan. Brodd­mjólk­in græðir og bygg­ir upp heil­brigðan melt­ing­ar­veg. Svo eru öfl­ug víta­mín og steinefni í Imm­un, svo sem sink, A-víta­mín og bíó­tín sem viðhalda heil­brigðri slím­húð í önd­un­ar­fær­um, melt­ing­ar­vegi og þvag­fær­um. Þetta bæti­efni má nota dag­lega en er sér­stak­lega mik­il­vægt á álags­tím­um eða til að verj­ast um­gangspest­um. Rann­sókn­ir sýna að þetta bæti­efni er bæði fyr­ir­byggj­andi en einnig breiðvirk vörn og er sér­stak­lega gott fyr­ir þá sem eru með krón­ísk vanda­mál og lang­vinn­ar bólg­ur. Imm­un get­ur verið vatns­los­andi og við sem tök­um bæti­efnið finn­um þessi bólgumild­andi áhrif þegar það er tekið að staðaldri.“

Immun er einstakt bætiefni sem eflir ónæmiskerfið með öflugri blöndu …
Imm­un er ein­stakt bæti­efni sem efl­ir ónæmis­kerfið með öfl­ugri blöndu af gerjaðri brodd­mjólk, lysozyme og ovotrans­fer­ríni. Með ör­veru­eyðandi og bólgu­eyðandi áhrif­um styður Imm­un við heil­brigðar varn­ir lík­am­ans, ver þig gegn sýk­ing­um og eyk­ur al­menna vellíðan. mbl.is/​Aðsend

Fyr­ir þá sem vilja efla tauga­kerfið þá seg­ir Birna bæti­efnið Nerv vera kraft­mikið og veita jafn­vægi og ró með blöndu af gerjaðri brodd­mjólk, tr­í­bút­eríni, góðgerl­um, þía­míni og bíó­tíni. „Efn­in í þessu bæti­efni eru nauðsyn­leg fyr­ir okk­ur þegar við erum ekki með góða þarma­flóru því þá erum við ekki með nóg af ör­ver­um sem fram­leiða þessa efna­sam­setn­ingu. Nerv gagn­ast bæði þeim sem eru viðkvæm­ir í melt­ing­ar­veg­in­um, þeim sem eru að blása upp af öllu sem þeir eru að borða en geta ekki tekið inn góðgerla. Þetta er mild­ara bæti­efni en marg­ir hafa áður prófað en samt sem áður með mjög öfl­uga virkni.“  

Birna seg­ir áhuga­vert að verða vitni að því hvað viðkvæm­ur melt­ing­ar­veg­ur get­ur verið ná­tengd­ur því að vera út­sett­ur fyr­ir streitu. „Þess vegna taka marg­ir viðskipta­vina Jörth Nerv bæti­efnið á álags­tím­um eða þegar mik­il streita er í um­hverf­inu.

Dorm er hágæða bæti­efni sem hjálp­ar þér að slaka á og ná betri svefn­gæðum. Með þurr­gerjuðum ís­lensk­um mysu­prótein­um, sér­hannaðri ör­hjúpaðri góðgerla­blöndu og amínó­sýr­un­um L-tryptóf­an og L-þean­ín hjálp­ar Dorm þér að ná dýpri slök­un ásamt betri end­ur­heimt,“ seg­ir Birna.

Dorm er hágæða bætiefni sem hjálpar þér að slaka á …
Dorm er hágæða bæti­efni sem hjálp­ar þér að slaka á og ná betri svefn­gæðum. Með þurr­gerjuðum ís­lensk­um mysu­prótein­um, sér hannaðri ör­hjúpaðri góðgerla­blöndu og amínó­sýr­un­um L-tryptóf­an og L-þean­ín hjálp­ar Dorm þér að ná dýpri slök­un ásamt betri end­ur­heimt. mbl.is/​Aðsend

Heils­an það dýr­mæt­asta sem við eig­um

Tek­ur þú öll bæti­efn­in frá Jörth sam­an?

„Já, ég er í þeirri frá­bæru stöðu að geta tekið þau öll sam­an og finnst mér bæti­efn­in vinna mjög vel sam­an og vera breiðvirk þegar þau eru tek­in þannig.

Ég hef þó alltaf á bakvið eyrað að það er dýrt fyr­ir hinn al­menna viðskipta­vin að kaupa öll bæti­efn­in og hef ég þá mælt með að byrja á einu eða tveim­ur teg­und­um í senn. Svo get­ur maður bætt við eða skipt á milli teg­unda inn­an Jörth-bæti­efn­anna.

Það er þó mik­il­vægt að átta sig á því að heils­an er það dýr­mæt­asta sem við eig­um og þegar hún er ekki í lagi þá hef­ur það svo mik­il áhrif á allt annað í líf­inu. Þannig að fólk lít­ur kannski ekki á fjár­fest­ingu í heils­unni öðru­vísi en fjár­fest­ingu í ferðalög­um eða merkja­vöru. Þetta kost­ar allt eitt­hvað og svo er bara spurn­ing­in hvaða áhrif það hef­ur á okk­ur,“ seg­ir Birna.  

Það get­ur verið gott að panta ráðgjöf hjá Birnu með hvaða bæti­efni er best að taka miðað við þær áskor­an­ir sem fólk er að fara í gegn­um í líf­inu hverju sinni. „Eins og ef mann­eskja sef­ur ekki er alltaf best að fást við svefn­leysið áður en allt annað er skoðað, því það er svo mik­il­vægt að leysa úr svefn­flækj­um og sofa vel.“

Það getur verið gott að panta ráðgjöf hjá Birnu með …
Það get­ur verið gott að panta ráðgjöf hjá Birnu með hvaða víta­mín er best að taka miðað við áskor­an­ir sem fólk er að fara í gegn­um í líf­inu hverju sinni mbl.is/​Aðsend

„Öll bæti­efn­in mín miða að því að efla heils­una í gegn­um melt­ing­ar­veg­inn. Líkt og Focuz sem er öfl­ugt bæti­efni, það eyk­ur at­hygl­ina og býr til skýra hugs­un með öfl­ugri blöndu af þurr­gerjuðum mysu­prótein­um, sér­hannaðri míkró­hjúpaðri góðgerla­blöndu ásamt L-týtósíni og B-víta­mín­um.“

„Við þurf­um að borða alla liti jurta­rík­is­ins“

Hvernig mataræði mæl­ir þú með að fólk borði með Jörth-bæti­efn­un­um?

„Ég mæli með því að fólk borði reglu­lega. Lík­am­inn okk­ar elsk­ar rútínu og reglu. Við erum ekki öll eins og sum­um hent­ar að borða morg­un­mat á meðan öðrum hent­ar það ekki. Flest­ir þurfa að huga að því að borða meðal ann­ars prótein og fitu í öll mál. Ef maður er að borða of mikið af kol­vetn­um, þá er maður í raun­inni að valda þess­um blóðsyk­ur­sveifl­um sem get­ur verið flókið að koma sér úr.“

Stefnt er að útflutningi með Jörth á þessu ári og …
Stefnt er að út­flutn­ingi með Jörth á þessu ári og er því mik­il vinna í gangi núna við að þýða heimasíðuna og all­ar upp­lýs­ing­ar um bæti­efni Jörth á er­lenda tungu. Var­an mun án efa hafa já­kvæð áhrif á ásýnd lands­ins alþjóðlega. mbl.is/​Aðsend

„Eitt gott dæmi get­ur verið að borða hafra­graut á morgn­ana sem er holl­ur og góður mat­ur. Hann hent­ar ekki öll­um því sum­ir verða bara glor­hungraðir og mátt­laus­ir klukku­tíma eft­ir að borða hann. En með slurk af rjóma út á hafra­graut­inn og hnet­ur og fræ, þá er maður bú­inn að breyta miklu og fá prótein og fitu í máltíðina. Egg geta einnig verið góð.

Varðandi þarma­flór­una, þá er alltaf best að huga að fjöl­breytni og reyna að borða alla liti jurta­rík­is­ins. Rann­sókn­ir sýna að borða 30 teg­und­ir af fæðuteg­und­um úr jurta­rík­inu eða meira á viku reyn­ist gott til að efla og byggja upp þarma­flór­una okk­ar.“

Birna veit fátt dásamlegra en að vera úti í náttúrunni …
Birna veit fátt dá­sam­legra en að vera úti í nátt­úr­unni að hlusta á nátt­úru­hljóðin. mbl.is/​Karítas

„Við þurf­um því alltaf að vera á hött­un­um eft­ir nýj­um teg­und­um af græn­meti, ávöxt­um, hnet­um, fræj­um og korni. Við meg­um ekki bara fest­ast í epl­um, app­el­sín­um og bön­un­um, ag­úrk­um og tómöt­um. Við þurf­um að fara og kaupa okk­ur peru, mel­ónu og bara alls kon­ar græn­meti og að rótera því sem við erum að borða yfir vik­una. Ég trúi því að allt ójafn­vægi byrji í melt­ing­ar­veg­in­um og tel ég ekki góða blöndu að borða lé­lega fæðu og að taka inn bæti­efn­in frá Jörth. Við ger­um ekk­ert ein­göngu með bæti­efn­um en get­um svo sann­ar­lega bætt við og hjálpað til, eflt og styrkt ónæmis­kerfið, tauga­kerfið og melt­ing­una, með góðum bæti­efn­um.

Það er einnig mik­il­vægt að borða gerjað og sýrt mataræði, eins og súr­kál og kombucha og  hrein­ar mjólkuraf­urðir sem eru sýrðar, sem dæmi gríska jóg­úrt.“

Birna mælir með fjölbreyttu mataræði og að borða alla liti …
Birna mæl­ir með fjöl­breyttu mataræði og að borða alla liti jurta­rík­is­ins. Hægt er að vera í aðild hjá Jörth og vera í áskrift að bæti­efn­um. Áhuga­söm­um er bent á að skoða heimasíðu Jörth. mbl.is/​Karítas

„Við gerðum sem dæmi rann­sókn á veg­um Há­skóla Íslands þar sem við vor­um með þrjá hópa af heil­brigðum ein­stak­ling­um á aldr­in­um 50 til 70 ára. Einn hóp­ur­inn fékk Abdom-bæti­efnið, ann­ar hóp­ur­inn bætti við sig sex skömmt­um af gerjuðu mataræði á dag og þriðji hóp­ur­inn var viðmiðun­ar­hóp­ur sem breytti engu. Það voru tekn­ar blóðpruf­ur og saur­sýni fyr­ir rann­sókn­ina á meðan hún átti sér stað og svo eft­ir. Eft­ir 2-3 mánuði höfðu bólguþætt­ir í blóðinu lækkað í hópn­um sem tók Abdom og hjá hópn­um sem hafði aukið neyslu af gerjuðum mat. Það voru eng­ar breyt­ing­ar hjá viðmiðun­ar­hópn­um. Það sama átti við um þarma­flór­una, hún var heil­brigðari í þess­um tveim­ur hóp­um á meðan viðmiðun­ar­hóp­ur­inn breytt­ist ekki.

Þessi rann­sókn seg­ir okk­ur hvað ger­ir okk­ur gott en það skal tekið fram að það er mjög mik­il vinna að borða sex skammta af gerjuðum mat á dag og ef þú get­ur gert bæði; aukið við gerjaðan mat og tekið Abdom-bæti­efnið þá verður þú lík­leg­ast í mjög góðum mál­um að sögn vís­ind­anna,“ seg­ir Birna G. Ásbjörns­dótt­ir, ann­ar stofn­enda Jörth að lok­um.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert