„Eigendur verði sérfræðingar í sínum dýrum“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Frá ár­inu 1995 hafa Dýr­heim­ar verið umboðsaðilar Royal Can­in á Íslandi og boðið upp á fag­lega þjón­ustu, sér­vald­ar vör­ur og traust ráð til að hund­um og kött­um líði sem best. „Heilsa dýrs­ins þíns er ómet­an­leg,“ seg­ir Theo­dóra Ró­berts­dótt­ir dýra­hjúkr­un­ar­fræðing­ur.  

    „Hjá Dýr­heim­um eru dýr­in þín hluti af fjöl­skyld­unni okk­ar en frá upp­hafi höf­um við haft mik­inn metnað fyr­ir því að bjóða upp á aðeins það besta fyr­ir dýr­in. Við erum með vís­inda­miðað fóður fyr­ir hunda og ketti, sér­fræðiþjón­ustu, hunda­skóla, nær­ing­ar­ráðgjöf og heilsu­far­stékk fyr­ir hunda og ketti,“ seg­ir Theo­dóra. 

    Fyr­ir­byggj­andi umönn­un dýra er lyk­ill­inn að heil­brigðu lífi þeirra 

    Theo­dóra hlaut mennt­un sína sem dýra­hjúkr­un­ar­fræðing­ur í Þýskalandi. „Þegar ég kem til starfa hjá Dýr­heim­um, þá vild­um við vera með víðtæk­ari nálg­un í þjón­ustu við gælu­dýr, með því að bjóða til viðbót­ar við al­menna nær­ing­ar­ráðgjöf upp á heilsuráðgjöf fyr­ir hunda og ketti. Dýra­hjúkr­un­ar­fræðing­ar eru oft fyrsti snertipunkt­ur eig­enda gælu­dýra við heilsu­far þeirra. Í Heilsutékki Dýr­heima er hægt að fá grunn­mat á heilsu dýrs­ins þar sem m.a. tann­heilsa, holdafar, vöðva- og feldástand er metið. Nær­ing­ar­ráðgjöf er veitt eft­ir þörf­um í heilsutékk­inu, en nær­ing spil­ar stór­an þátt í heil­brigði og vellíðan hunda og katta.“  

    Theo­dóra seg­ir sér­fræðinga Dýr­heima mikla dýra­vini og að eitt hlut­verk fyr­ir­tæk­is­ins í dag sé að halda utan um öfl­ugt sam­fé­lag hunda- og katta­eig­enda, sem velja ein­ung­is það besta fyr­ir dýr­in sín. „Ég er fædd í hvolpa­kass­an­um ef svo mætti segja, en ég var alin upp með hund­um þegar ég var yngri og á nú sjálf tvo hunda og einn kött. Dýr hafa þannig fylgt mér lengi. Ég er einnig hunda­rækt­andi og sýn­inga­dóm­ari, þannig að ég þekki all­ar hliðar þess að halda dýr­um í frá­bæru ástandi, að fóðra þau rétt og þjálfa,“ seg­ir hún.  

    „Við trú­um því að traust sam­fé­lag ábyrgra hunda- og katta­eig­enda stuðli að góðu lífi dýr­anna og það sem við vilj­um ná fram með reglu­legu Heilsutékki er að eig­end­ur verði sér­fræðing­ar í sín­um dýr­um til að geta stutt sem best við þau heima fyr­ir. Með því að auka þekk­ingu og sjálfs­traust eig­enda á heilsu dýra sinna má þannig fyr­ir­byggja í mörg­um til­fell­um stærri vanda­mál og auðvelda eig­end­um að þekkja hvenær er svo þörf á að leita til dýra­lækn­is.“

    Dýr­in eru hluti af fjöl­skyld­unni 

    Theo­dóra hef­ur lokið viðbót­ar­námi í nær­ingu smá­dýra frá bresku dýra­lækna­sam­tök­un­um og seg­ir hún fóður skipta meira máli en marga grun­ar þegar kem­ur að líðan gælu­dýra. Fóður­markaður­inn skipt­ist í raun í tvennt – ann­ars veg­ar vör­ur sem byggja á vís­inda­leg­um rann­sókn­um og hins veg­ar vör­ur sem eru að mestu markaðssett­ar út frá hug­sjón, tísku­straum­um og óstaðfest­um full­yrðing­um. En áhrif falskr­ar markaðssetn­ing­ar virðast hafa gíf­ur­leg áhrif þótt eng­ar rann­sókn­ir séu að baki full­yrðing­um þeirra að henn­ar sögn. 

    „Dýr­heim­ar hafa lagt ríka áherslu á að hvetja eig­end­ur til að vera gagn­rýn­ir á markaðssetn­ingu og velja nær­ingu sem sann­ar­lega gagn­ast dýr­un­um þeirra. Full­yrðing­ar um inni­halds­efni í fóðri eru oft óskýr­ar, og það er ekki alltaf aug­ljóst hvað „al­vöru kjöt“ eða „nátt­úru­legt fóður“ raun­veru­lega þýðir eða hverj­ir kost­ir þeirra eiga að vera um­fram raun­veru­leg­ar nær­ing­arþarf­ir dýr­anna,“ seg­ir hún.  

    „Við erum umboðsaðilar Royal Can­in sem er leiðandi vörumerki í fóðrun hunda og katta. Royal Can­in er með nær 60 ára reynslu í að þróa nær­ing­ar­ríkt fóður sem er sér­sniðið að þörf­um mis­mun­andi hunda og katta. Með djúpa þekk­ingu á heilsu dýra og nær­ing­ar­fræði býður Royal Can­in upp á fóður sem bygg­ir á vís­ind­um og er þróað í sam­starfi við dýra­lækna og nær­ing­ar­fræðinga. Í versl­un Dýr­heima í Kópa­vogi má einnig finna ým­is­legt annað sem dýrið gæti þurft á að halda, t.d. þrosk­andi og skemmti­legt dót fyr­ir and­lega heilsu þeirra,“ seg­ir Theo­dóra.   

    Rétt sam­sett nær­ing er lyk­il­atriði í upp­vexti og heilsu dýr­anna og gegn­ir mik­il­vægu hlut­verki í að styðja við end­ur­heimt eft­ir eða við veik­indi og er mik­il­væg­ur áhrifaþátt­ur í sjúk­dóms­stjórn­un sé dýrið með t.d. liðvanda­mál, hjartveiki, skerta nýrn­a­starf­semi o.s.frv. Nær­ing er í dag tal­in fimmta „lífs­markið“ sem meta skal í hverri dýra­lækna­skoðun, þar sem met­in er þörf á frek­ara mati á ákveðnum þátt­um þar sem nær­ing skipt­ir enn meira máli að sögn Theo­dóru. „Slík­ir þætt­ir eru m.a. ald­ur, virknistig, sjúk­dóm­ar, húð og feld­vanda­mál, sé dýrið á lyfj­um eða fæðubót­ar­efn­um. Hund­ar og kett­ir þurfa nauðsyn­lega um 40 nær­ing­ar­efni sem geta komið úr mis­mun­andi inni­halds­efn­um til þess að viðhalda heil­brigðri lík­ams­starf­semi. Til þess að ná réttri sam­setn­ingu nær­ing­ar­efna þarf að velja sam­an inni­halds­efni eins og t.d. kjúk­ling og/​eða ann­an prótein­gjafa, græn­meti, korn­meti, víta­mín og steinefni í rétt­um hlut­föll­um en einnig tryggja ör­yggi og gæði inni­halds­efn­anna til þess að mæta nær­ing­arþörf­um dýr­anna.“  

    Fyrsta skrefið til að verða hluti af sam­fé­lag­inu 

    Theo­dóra seg­ir mark­mið Dýr­heima skýr. Dýr­heim­ar sé staður þar sem hunda- og katta­eig­end­ur geta sótt þær vör­ur og þjón­ustu sem þeir þurfa til að ann­ast dýr­in sín með ör­ugg­um hætti, tryggja vel­ferð þeirra og heilsu, bæði and­lega og lík­am­lega. „Við veit­um stuðning í hverju skrefi og erum til staðar með fjöl­breytta þjón­ustu sem er sér­sniðin að hverju gælu­dýri. Ég vil því hvetja alla gælu­dýra­eig­end­ur til þess að vera vak­andi fyr­ir heilsu dýr­anna sinna og sinna fyr­ir­byggj­andi umönn­un. Séu þeir óviss­ir eða vanti ráðgjöf má ávallt leita til okk­ar í Vík­ur­hvarf 5 eða bóka Heilsutékk á vefsíðu okk­ar www.dyr­heim­ar.is“ seg­ir Theo­dóra Ró­berts­dótt­ir, dýra­hjúkr­un­ar­fræðing­ur að lok­um. 

    Royal Can­in fóðrið má nálg­ast hjá Dýr­heim­um í Vík­ur­hvarfi 5 sem og hjá fjölda góðra end­ur­söluaðila sem má finna á vefsíðu Dýr­heima. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert