Ný kynslóð sérfræðinga í endurnýjanlegri orku

Sigrún Nanna Karlsdóttir er fagstjóri meistaranáms í endurnýjanlegri orku
Sigrún Nanna Karlsdóttir er fagstjóri meistaranáms í endurnýjanlegri orku Ljósmynd/Aðsend

Í Há­skóla Íslands er boðið upp á meist­ara­nám í end­ur­nýj­an­legri orku. Námið er ein­stakt tæki­færi fyr­ir nem­end­ur með ým­iss kon­ar bak­grunn til að sér­hæfa sig á sviði end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa.

„Það sem ger­ir meist­ara­námið í end­ur­nýj­an­legri orku við Há­skóla Íslands svo sér­stakt er þessi sterka þverfag­lega nálg­un,“ seg­ir Sigrún Nanna Karls­dótt­ir fag­stjóri náms­ins. „Nem­end­ur fá kennslu og hand­leiðslu frá sér­fræðing­um og kenn­ur­um úr öfl­ug­um rann­sókn­art­eym­um inn­an HÍ og það þvert á svið. Þannig fá þau ekki bara tæki­færi til að sér­hæfa sig í eig­in kjör­sviði held­ur vinna þau líka í verk­efn­um með fólki úr öðrum grein­um. Það þjálf­ar þau í að fást við raun­veru­leg, þverfag­leg verk­efni sem end­ur­nýj­an­leg orka krefst í dag, hvort sem er á sviði jarðhita, vatns­afls, raf­orku eða sjálf­bærni.“

Hún seg­ir námið bjóða upp á dýr­mæt tæki­færi fyr­ir þá sem vilja leggja sitt af mörk­um til orku­skipta og sjálf­bærr­ar þró­un­ar, bæði inn­an­lands og utan. „Við fáum nem­end­ur með bak­grunn í verk­fræði, raun­vís­ind­um og hag­fræði sem vilja ein­mitt þróa end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa, hanna lausn­ir og meta áhrif þeirra. Þau sem ljúka þessu námi hafa farið út í fjöl­breytt störf svo sem í rann­sókn­um á virkj­ana­kost­um, um­hverf­is­mati, hönn­un og fram­kvæmd orku­mann­virkja og mati á sam­fé­lags­leg­um og hagræn­um áhrif­um.“

At­vinnu­lífið tek­ur þess­um nem­end­um fagn­andi

Það er ekki til­vilj­un að ís­lenskt at­vinnu­líf hafi tekið út­skrifuðum nem­end­um úr þessu námi fagn­andi. „Það er mik­ill skort­ur á sér­hæfðu fag­fólki á þessu sviði og okk­ar nem­end­ur eru eft­ir­sótt­ir starfs­kraft­ar hjá orku­fyr­ir­tækj­um, ráðgjaf­ar- og iðnfyr­ir­tækj­um, stofn­un­um, sveit­ar­fé­lög­um og ráðuneyt­um bæði hér á landi og er­lend­is.“

Sigrún Nanna legg­ur áherslu á tengsl náms­ins við at­vinnu­lífið. „Við höf­um til dæm­is þverfag­legt verk­efna­nám­skeið þar sem nem­end­ur vinna í hóp­um að raun­veru­leg­um verk­efn­um með fyr­ir­tækj­um sem eru leiðandi í orku­mál­um. Þetta eru verk­efni sem byggj­ast á raun­veru­leg­um áskor­un­um og gera nem­end­um kleift að tengja fræðin við störf og aðstæður í at­vinnu­líf­inu. Auk þess fara þau í vett­vangs­ferðir og fá kynn­ingu frá sér­fræðing­um í ork­u­nýt­ingu og innviðum á Íslandi.“

Úr nám­inu hafa einnig sprottið fjöl­mörg rann­sókn­ar- og ný­sköp­un­ar­verk­efni sem hafa nýst í þróun end­ur­nýj­an­legr­ar orku hér á landi. „Við höf­um séð verk­efni sem tengj­ast hönn­un og best­un gufu­lagna­kerfa, grein­ingu á virkni varma­skipta, orku­öfl­un í ljósi vax­andi eft­ir­spurn­ar, efna­sam­setn­ingu jarðhita­vatns og sjálf­bærni­grein­ingu virkj­un­ar­kosta. Fjöldi þess­ara verk­efna hef­ur verið unn­inn í sam­starfi við stofn­an­ir og fyr­ir­tæki og nýt­ist í raun í stefnu­mót­un og inn­leiðingu nýrra lausna.“

Fólk með ólík­an bak­grunn tek­ur sam­talið

„Við mennt­um fólk sem get­ur tekið þátt í að leysa stór­ar áskor­an­ir framtíðar­inn­ar. Þetta eru nem­end­ur sem hafa lært að vinna þvert á grein­ar, hafa öðlast dýpt í sinni sér­hæf­ingu og hafa lært að meta og stjórna flókn­um verk­efn­um í sam­vinnu við aðra sér­fræðinga. Þau eru til­bú­in til að verða leiðandi á sínu sviði og leggja sitt af mörk­um til að nýta orku á sjálf­bær­an hátt.“

Meist­ara­námið býður upp á nokk­ur kjör­svið sem end­ur­spegla breidd­ina í end­ur­nýj­an­legri orku. Til dæm­is geta nem­end­ur sér­hæft sig í orku­verk­fræði, þar sem lögð er áhersla á hönn­un og skipu­lag vatns- og vindorku­virkj­ana, eða í jarðhita­verk­fræði þar sem fókusað er á nýt­ingu jarðvarma og hönn­un tækja­búnaðar. Einnig er í boði sér­hæf­ing í orku­hag­fræði, orku­stefn­um og sjálf­bærni með áherslu á sam­fé­lags­lega og efna­hags­lega grein­ingu orku­kosta. Þá er sér­stök áhersla á jarðeðlis- og jarðefna­fræði fyr­ir þá sem vilja kafa djúpt í nátt­úru­leg­an upp­runa ork­unn­ar og þróun henn­ar með jarðvís­ind­in að vopni.

„Það skipt­ir máli að fólk með ólík­an bak­grunn taki þátt í sam­tal­inu um framtíð orku­mála,“ seg­ir Sigrún Nanna að lok­um. „Það er það sem þetta nám snýst um, að byggja brýr milli greina og þjálfa næstu kyn­slóð fag­fólks sem get­ur leitt veg­inn í sjálf­bærri ork­u­nýt­ingu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert