Snjöll lausn við skordýrabitum

Með heat-it er hægt að meðhöndla skordýrabit og stungur frá …
Með heat-it er hægt að meðhöndla skordýrabit og stungur frá lúsmýi og fleiru en tækið má nota á fullorðna og börn. Ljósmynd/Aðsend

Nátt­úr­an er byrjuð að vakna til lífs­ins eft­ir vet­ur­inn, öll­um til mik­ill­ar gleði en þó eru ekki all­ir fylgi­fisk­ar vors og sum­ars sem vekja eins mikla gleði, til að mynda blessað lús­mýið. Til allr­ar lukku er orðið mun auðveld­ara að meðhöndla bit og stung­ur með töfra­tæk­inu heat-it en hægt er að nota það til að meðhöndla skor­dýra­bit og stung­ur frá lús­mýi, moskítóflug­um, bý­flug­um og geit­ung­um, svo eitt­hvað sé nefnt.

Strax er hægt að meðhöndla bitið með því að setja heat-it í USB-C tengi á sím­an­um og þar með ræsist for­ritið sem tækið not­ar. Tækið er síðan sett á bitið í nokkr­ar sek­únd­ur en tækn­in bygg­ist á því að nota of­ur­hita (hypert­hermia) til að meðhöndla kláða og sárs­auka. Sama húðsvæði má hins veg­ar ekki meðhöndla oft­ar en fimm sinn­um á hverri klukku­stund og ávallt skal bíða í að minnsta kosti tvær mín­út­ur á milli meðferða.

Rannsóknir benda til þess að heat-it dragi úr áreiti í …
Rann­sókn­ir benda til þess að heat-it dragi úr áreiti í húð sem ger­ir það að verk­um að þörf­in til að klóra sér minnk­ar veru­lega. Ljós­mynd/​Aðsend

Alltaf við hönd­ina

Rann­sókn­ir benda til þess að heat-it dragi úr áreiti í húð sem ger­ir það að verk­um að þörf­in til að klóra sér minnk­ar veru­lega. Til að ná sem best­um ár­angri er mælt með að nota heat-it strax eft­ir bitið því það get­ur dregið úr og jafn­vel komið al­veg í veg fyr­ir ein­kenni. Það ætti að vera auðvelt með því að setja heat-it á lyklakipp­una svo það sé alltaf við hönd­ina þegar á þarf að halda.

Hita­næmi húðar hjá ein­stak­ling­um er mis­mun­andi og þess vegna býður smá­for­ritið upp á tólf mis­mun­andi still­ing­ar. Þá er hægt að velja meðferðarlengd í 4, 7 eða 9 sek­únd­ur en í full­orðins­still­ingu fer hit­inn í 52°C og í barn­astill­ingu fer hit­inn í 49°C. Með því að velja still­ing­una viðkvæm húð í for­rit­inu er hægt að lækka hita­stigið um tvær gráður og það ættu því all­ir að geta fundið hita­stig sem hent­ar.

Hægt er að setja heat-it á lyklakippuna svo það sé …
Hægt er að setja heat-it á lyklakipp­una svo það sé alltaf við hönd­ina þegar á þarf að halda. Ljós­mynd/​Aðsend

Líka fyr­ir börn

Það er hægt að nota heat-it á börn frá þriggja ára aldri og börn geta sjálf notað það frá 12 ára aldri. Þegar verið er að nota heat-it í fyrsta sinn er ráðlagt að nota still­ing­arn­ar stutt, barn og viðkvæm húð til að kanna hvaða hita­stig hent­ar viðkom­andi. Þrátt fyr­ir að tækið nýti raf­hlöðu sím­ans þá þarf eng­inn að hafa áhyggj­ur af að raf­hlaðan eyðist hratt upp því hver meðferð not­ar ein­ung­is um 0,1% af raf­hlöðunni. Ef sím­inn er full­hlaðinn er því mögu­legt að nota tækið í allt að þúsund meðferðir á hæstu still­ingu sem ætti að vera meira en nóg á hvaða tjaldsvæði sem er.

Frek­ari upp­lýs­ing­ar um heat-it má finna hér en heat-it er meðal ann­ars til sölu í Lyfja­ver, Lyfju, Nova, Aust­ur­bæj­arapó­teki, Rima­apoteki og Efsta­leitisapó­teki.

Þrátt fyrir að tækið nýti rafhlöðu símans þá þarf enginn …
Þrátt fyr­ir að tækið nýti raf­hlöðu sím­ans þá þarf eng­inn að hafa áhyggj­ur af að raf­hlaðan eyðist hratt upp því hver meðferð not­ar ein­ung­is um 0,1% af raf­hlöðunni. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert