„Kröfurnar meiri en mig hefði grunað“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Ólaf­ur Ein­ir Birg­is­son sölu­stjóri Dýr­heima seg­ir ein­stakt að starfa fyr­ir fyr­ir­tæki sem set­ur vel­ferð dýra ofar öllu öðru. Hann seg­ir kröf­urn­ar sem gerðar eru hjá Royal Can­in-fóður­fram­leiðand­an­um meiri en hann hefði grunað.

    „Það sem kom mér á óvart þegar ég hóf störf hjá Dýr­heim­um voru gæðaviðmiðin sem farið er eft­ir hjá Royal Can­in. Kröf­urn­ar sem Royal Can­in set­ur í hvert skref fram­leiðslu sinn­ar eru langt um­fram það sem ég hefði haldið og sýn­ir hvað þeir leggja mikið upp úr því að bjóða aðeins upp á það allra besta fyr­ir dýr­in,“ seg­ir Ólaf­ur en þess má geta að frá ár­inu 1995 hafa Dýr­heim­ar verið umboðsaðilar Royal Can­in á Íslandi og boðið upp á fag­lega þjón­ustu, sér­vald­ar vör­ur og traust ráð til að hund­um og kött­um líði sem best.

    Ólafur Einir Birgisson sölustjóri Dýrheima segir einstakt að starfa fyrir …
    Ólaf­ur Ein­ir Birg­is­son sölu­stjóri Dýr­heima seg­ir ein­stakt að starfa fyr­ir fyr­ir­tæki sem set­ur vel­ferð dýra ofar öllu öðru. mbl.is/​Aðsend

    Þróað í sam­starfi við dýra­lækna og nær­ing­ar­fræðinga

    „Royal Can­in er leiðandi vörumerki í fóðrun gælu­dýra, sem hef­ur ára­tugareynslu í að þróa nær­ing­ar­ríkt fóður sem er sér­sniðið að þörf­um mis­mun­andi hunda- og katta­teg­unda. Með djúpri þekk­ingu á heilsu dýra og nær­ing­ar­fræði býður Royal Can­in upp á fóður sem bygg­ir á vís­ind­um og er þróað í sam­starfi við dýra­lækna og nær­ing­ar­fræðinga. Royal Can­in ger­ir ströngustu kröf­ur þegar kem­ur að gæðum hrá­efna í fóðrinu og fram­kvæm­ir þannig fleiri próf á fram­leiðslunni en kröf­ur eru gerðar um. Stand­ist hrá­efn­in ekki gæðakröf­ur Royal Can­in með til­liti til nær­ing­ar­efna eru þau send til baka til birgja og fara þaðan í mat­væla­vinnslu fyr­ir fólk. Það sýn­ir okk­ur hversu mikl­ar kröf­ur eru gerðar og hve gælu­dýr­in eru mik­ils met­in. Royal Can­in fram­kvæm­ir um hálfa millj­ón grein­inga á ári á fóðri í fram­leiðslu til þess að tryggja ör­yggi og stöðug­leika.“

    „Áhersla er lögð á að mæta þörf­um dýrs­ins en nær­ing­arþarf­ir eru mis­jafn­ar eft­ir teg­und, aldri, stærð og lífs­stíl dýrs­ins. Áhersla er á að fóðrið stuðli að sterku ónæmis­kerfi og góðri heilsu dýrs­ins frá upp­hafi. Mark­visst er unnið að því að fyr­ir­byggja vanda­mál í framtíðinni, svo sem að koma í veg fyr­ir ofþyngd, þvag­færa- og húðvanda­mál sem og melt­ing­ar­færatrufl­an­ir með sam­setn­ingu nær­ing­ar sem mótuð er af nýj­ustu rann­sókn­um og þróaðar af sér­fræðing­um,“ seg­ir hann. 

    Heilsa dýr­anna er sett í fyrsta sæti

    Ólaf­ur er, eins og all­ir starfs­menn Dýr­heima, mik­ill dýra­vin­ur og seg­ir hann for­rétt­indi að starfa í fyr­ir­tæki þar sem all­ir eru mikl­ir dýra­vin­ir. „Sjálf­ur hef ég átt þrjá hunda í gegn­um tíðina en nú á ég tvo Pug-hunda. Ann­ar er fjög­urra ára og hinn er sex mánaða. Svo það er mjög mikið líf og fjör á heim­il­inu mínu, enda færa hund­ar og gælu­dýr svo mikla gleði inn í lífið þegar vel er hugsað um þau og þekk­ing eig­enda er til staðar.“

    Það sem heillaði Ólaf við að starfa hjá Dýr­heim­um er að þar er meiri metnaður fyr­ir góðri heilsu dýr­anna held­ur en að ýta vör­um út til dýra­eig­enda. „Heilsa dýr­anna er núm­er eitt, tvö og þrjú hjá okk­ur í Dýr­heim­um. Við leggj­um mikla áherslu á að bjóða upp á gott og heild­stætt fóður og svo erum við með sam­fé­lagið okk­ar þar sem áhersla er lögð á stuðning við hunda- og katta­eig­end­ur sem og fagaðila.“

    Heilsa dýranna er númer eitt, tvö og þrjú hjá Dýrheimum. …
    Heilsa dýr­anna er núm­er eitt, tvö og þrjú hjá Dýr­heim­um. Á kaffi­húsi Dýr­heima geta gælu­dýra­eig­end­ur sest niður og slakað á og hitt aðra gælu­dýra­eig­end­ur, með dýr­in með sér. mbl.is/​Aðsend

    Þú veist að hverju þú geng­ur með Royal Can­in

    Royal Can­in legg­ur ríka áherslu á stöðug­leika í upp­skrift­um og fram­leiðslu. „Þannig má tryggja stöðug­leika í nær­ingu fyr­ir dýrið þar sem ekki má greina óþarfa breyt­ingu milli fram­leiðslu­lota. Eins eru fram­kvæmd ótal próf sem ekki eru gerðar alþjóðleg­ar kröf­ur um sem tryggja að fóðrið sé meðal ann­ars laust við oxun og myglu­eit­ur sem er mik­il­vægt fyr­ir melt­ingu dýr­anna til lengri tíma,“ seg­ir hann. 

    „Kíktu í heim­sókn!“

    Versl­un Dýr­heima er staðsett í Vík­ur­hvarfi 5 í Kópa­vogi. „Þar er boðið upp á fag­lega þjón­ustu og sér­vald­ar vör­ur fyr­ir hunda og ketti. Starfs­fólk er reynslu­mikið og hef­ur sótt þjálf­un í al­mennu heil­brigði, at­ferli og nær­ingu hunda og katta sem styður viðskipta­vini okk­ar í réttu vali á fóðri og vör­um fyr­ir dýr­in. Versl­un­in er opin kl. 9-17 mánu­daga til fimmtu­daga og kl. 9-16 á föstu­dög­um en til­valið er að koma í heim­sókn með dýrið og fá sér kaffi­bolla og nýta heim­sókn­ina í um­hverf­isþjálf­un í leiðinni. Fyr­ir þau sem kjósa að versla heima við eða búa á lands­byggðinni býður vef­versl­un­in okk­ar upp á sama úr­val og með ör­fá­um smell­um má fá vör­una heimsenda. Með þessu tryggja Dýr­heim­ar að eig­end­ur hafi ávallt greiðan aðgang að ör­uggu fóðri, fræðslu og stuðningi. Við erum hér fyr­ir þig og þitt dýr,“ seg­ir Ólaf­ur Ein­ir Birg­is­son, sölu­stjóri Dýr­heima, að lok­um. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert