Sirrý Arnardóttir þarf varla að kynna fyrir neinum en hún hefur komið víða við í gegnum tíðina og er svo sannarlega kona sem ber marga hatta; fjölmiðlakona, rithöfundur, háskólakennari og sérfræðingur í tjáningu, svo eitthvað sé nefnt. Í þætti dagins fer hún um víðan völl í samtali við Kristínu Sif Björgvinsdóttur og dregur meðal annars fram ýmis gagnleg ráð sem hægt er að tileinka sér til að ná fram betri og öruggri tjáningu í ræðu og riti.