Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Ófremd­ar­ástand blasti við með lög­un­um 2016

    Skrif­stofu­fólk hjá toll­in­um og skatt­in­um í Svíþjóð er farið að klæðast skot­held­um vest­um þegar farið er í heim­sókn­ir til fyr­ir­tækja. Þetta upp­lýs­ir Guðbjörn Guðbjörns­son, yf­ir­toll­vörður og fyrr­ver­andi formaður stétt­ar­fé­lags toll­v­arða. Ástandið í Svíðþjóð og fleiri Norður­lönd­um er orðið mjög al­var­legt og of­beldi hef­ur auk­ist mikið. Tengja marg­ir það við mikla fjölg­un flótta­manna. Hann var einn af mörg­um sem varaði við inn­göngu í Schengen sam­starfið á sín­um tíma og spáði fyr­ir um óheillaþróun þegar ný út­lend­inga­lög tóku hér gildi 2016. Hann er gest­ur Dag­mála Morg­un­blaðsins á mánu­dag og ræðir þar nokk­ur af hita­mál­um sam­fé­lags­ins. Guðbjörn minn­ir á að um lög­in frá 2016 ríkti þver­póli­tísk samstaða að mestu leiti. Al­menn­ing­ur í Evr­ópu ber líka ábyrgð á því hvernig komið er. Millj­ón­ir flótta­manna streymdu inn í vest­ræn ríki og meiri­hluti al­menn­ings var því hlynnt­ur. Hluti þeirra flug­fé­laga sem flýg­ur til Íslands af­hend­ir ekki farþegalista eins og lög kveða á um. Unnið er að því að semja við Evr­ópu­sam­bandið um lausn á þessu. Þegar Guðbjörn er spurður út í það hvort að flutn­inga­skip sem ekki af­hend­ir farm­skrá fái engu að síður af­greiðslu neit­ar hann því og minn­ir á að tolla­lög séu ekki val­kvæð. Þá ræðir hann einnig brottrekst­ur Úlfars Lúðvíks­son­ar sem kom öll­um á óvart.

    Spila sem hljóðskrá:

    0% buffered00:00Current time00:00

    Til baka á forsíðu Dagmáls »