Rekstur Haga hefur gengið vel að undanförnu og hlutabréfaverð félagsins verið á mikilli siglingu. Finnur Oddsson forstjóri Haga var gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna sem sýndur er á mbl.is. Þar fór hann meðal annars yfir vaxtaráform félagsins, nýleg kaup á færeysku keðjunni SMS og horfur í rekstri.