Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 49:44
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 49:44
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
  • default, selected

„Ég er ótrú­lega stolt­ur Íslend­ing­ur“

Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra er gest­ur Dag­mála Morg­un­blaðsins í dag á þjóðhátíðar­degi Íslend­inga og 81. af­mæl­is­degi lýðveld­is­ins. Kristrún er bæði ein­læg og op­in­ská í viðtal­inu þar sem farið er um víðan völl. Kristrún ræðir sinn lífstíl og hvernig hún held­ur sér í formi und­ir miklu álagi. Ræðir mat­ar­ræði, svefn og hvernig hún valdi að neyta ekki áfeng­is til að vera ávallt upp á sitt besta. Stóru mál­in eru líka rædd. Veiðileyf­a­gjöld, landa­mær­in, skatta­stefna rík­is­stjórn­ar­inn­ar, fjöl­miðlastyrk­ir og ekki síst áhugi á inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið. Kristrún seg­ist vilja standa að tvö­faldri þjóðar­at­kvæðagreiðslu vegna þeirra áforma. Í fyrsta lagi að þjóðin kjósi um það hvort hún vilji í aðild­ar­viðræður og svo síðar hvort þær for­send­ur sem standa Íslandi til boða hugn­ist þjóðinni. Kristrún horf­ir þannig á ESB málið að það muni taka mikið súr­efni en tími sé kom­inn til að leiða þetta mál í jörð. Hún tel­ur Ísland í sterkri stöðu nú til að kanna þá kosti og galla sem slík­ar aðild­ar­viðræður myndu leiða í ljós. For­sæt­is­ráðherra í 17. júní viðtali Dag­mála á af­mæl­is­degi lýðveld­is­ins Íslands. Til ham­ingju með dag­inn.

Spila sem hljóðskrá:

0% buffered00:00Current time00:00

Til baka á forsíðu Dagmáls »