Facebook biður Íslendinga að ákveða sig

Facebook biður fólk um að velja áskriftarleið án auglýsinga eða …
Facebook biður fólk um að velja áskriftarleið án auglýsinga eða að nýta sér samfélagsmiðilinn með óbreyttum hætti.

Meta, móður­fé­lag Face­book, In­sta­gram og What´s app, hef­ur nú tekið í notk­un áskrifta­kerfi sem veit­ir fólki tök á því að njóta sam­fé­lags­miðla í áskrift­arþjón­ustu. 

Með þessu er fyr­ir­tækið að bregðast við reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins sem þrengt hef­ur að starf­semi tækn­irisa á markaði. Þá sér­stak­lega hvað varðar gagna­söfn­un um hegðun ein­stak­linga á net­inu.

Þeir sem nota Face­book og In­sta­gram reglu­lega geta nú átt von á því að Meta biðji not­end­ur að taka af­stöðu til þess að hvort það kjósi áskrift eður ei. Þeir sem velja áskrift geta fengið aug­lýs­inga­lausa upp­lif­un af sam­fé­lags­miðlun­um. 

Í til­kynn­ingu kem­ur fram að áskrift komi til með að kosta sem nem­ur 1.474 kr. á vafra, en 1.917 kr. í síma.

Eft­ir sem áður gefst fólki kost­ur á að nota miðlana end­ur­gjalds­laust. Ein­ung­is þeir sem eru yfir 18 ára aldri gefst kost­ur á að kaupa áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka