Loftfar Nasa hefur í dag komist í sögubækurnar með því lifa af flug inn í fljúga inn í ytri lofthjúp sólarinnar. Ekkert loftfar hefur flogið nær sólinni.
Vísindamenn Geimferðastofnunar Bandaríkjanna (NASA) náðu aftur sambandi við Parker Solar Probe um kl. 5 í morgun en búið var að rjúfa samband við farið á aðfangadag þegar lagði leið sína inn í lofthjúpinn.
Nasa sagði að loftfarið væri „öruggt“ og að engar óvenjulegar villur hafi komið upp en þá hafði það flogið um 6,1 milljón kílómetrum frá yfirborði sólarinnar.
Vegalengdin hljómar kannski ekki sérstaklega stutt frá sólu en við erum að sögn Dr. Nicola Fox, vísindamanns hjá NASA, tæpum 150 milljón kílómetrum frá eldhnettinum.
Vonir voru bundnar við að flugið veiti betri innsýn í virkni sólarinnar. Farið þurfti því að þola 1.400 gráðu hita og gífurlega geislun en 11,5 sentímetra þykkur kolefnaskjöldur ver farið.
Farinu var fyrst skotið á loft 2018 og tók stefnu á miðju sólkerfisins. Það hefur flogið tuttugu og einu sinni fram hjá sólinni og sífellt fært sig nær henni. Aldrei áður hefur tekist að fljúga inn í ytri lofthjúpinn.