Kom til jarðar á sjötugsafmælinu

Don Pettit færður í sjúkratjald eftir lendingu.
Don Pettit færður í sjúkratjald eftir lendingu. AFP/NASA/Bill Ingalls

Elsti starf­andi geim­fari Banda­ríkj­anna, Don Pet­tit, er kom­inn aft­ur til jarðar úr geimn­um. Hann kom til bara á sjö­tíu ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Pet­tit kom til jarðar með Soyuz MS-26-geim­hylk­inu, ásamt rúss­nesk­um föru­naut­um sín­um Al­ex­ey Ovchinin og Ívan Vagner. Geim­hylkið sveif með fall­hlíf til jarðar og lenti í Kasakst­an snemma á páska­dags­morg­un.

Þeir eru ný­komn­ir 220 daga út­haldi í Alþjóðlegu geim­stöðinni. Pet­tit hef­ur nú varið alls 590 dög­um í geimn­um, en þetta var hans fjórða verk­efni.

Ekki sá elsti

Hann er þó ekki elsti maður­inn til að fara út í geim­inn, það met á John Glenn, sem var 77 ára þegar hann fór í verk­efni á veg­um Nasa árið 1998. Hann lést árið 2016.

Pet­tit og Rúss­arn­ir munu nú eyða nokkr­um dög­um í að jafna sig á geim­ferðinni og venj­ast þyngd­ar­lög­máli jarðar aft­ur.

Eft­ir það flýg­ur Pet­tit heim til Hou­st­on í Texas, en fé­lag­ar hans fara aft­ur til Moskvu í Rússlandi.

Geimhylkið svífur til jarðar með fallhlíf.
Geim­hylkið svíf­ur til jarðar með fall­hlíf. AFP/​NASA/​Bill Ingalls
Alexey Ovchinin eftir lendingu.
Al­ex­ey Ovchinin eft­ir lend­ingu. AFP/​NASA/​Bill Ingalls
Ivan Vagner.
Ivan Vagner. AFP/​NASA/​Bill Ingalls
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert