Microsoft hættir með uppfærslur fyrir Windows 10

Microsoft mun hætta veita uppfærslur á Windows 10 stýrikerfinu í …
Microsoft mun hætta veita uppfærslur á Windows 10 stýrikerfinu í október nk. EPA

Banda­ríski tækn­iris­inn Microsoft mun hætta að veita nýj­ar- og ör­ygg­is­upp­færsl­ur fyr­ir Windows 10 stýri­kerfið frá og með 14. októ­ber næst­kom­andi.

Þó að tölv­ur með Microsoft 10 haldi áfram að virka, verða þær viðkvæm­ari fyr­ir ör­ygg­is­ógn­um án reglu­legra upp­færslna og for­rit gætu hætt að virka með tím­an­um að sögn Traust Ei­ríks­son­ar, sölu­stjóra hjá tæknifyr­ir­tæk­inu OK. 

„Þetta get­ur haft áhrif á bæði not­enda­upp­lif­un og ör­yggi. Það er því mik­il­vægt að íhuga að upp­færa í Windows 11 ef tölv­an styður það. Ef hún styður það ekki, þá er ör­ugg­ara að upp­færa í nýrra ein­tak. Windows 11 býður upp á betra ör­yggi, meiri hraða og lengri raf­hlöðuend­ingu, sem nýt­ist hvort sem tölv­an er notuð við vinnu, leik eða nám,“ seg­ir Trausti. 

Trausti Eiríksson sölustjóri hjá OK segir þegar Microsoft hættir að …
Trausti Ei­ríks­son sölu­stjóri hjá OK seg­ir þegar Microsoft hætt­ir að upp­færa Windows 10, stýri­kerfið gæti það haft áhrif á not­enda­upp­lif­un og ör­yggi. Ljós­mynd/​Aðsend

Hann seg­ir Windows 11 stýri­kerfið búi yfir nýj­um ör­yggis­eig­in­leik­um, eins og TPM 2.0, sem trygg­ir að lykl­ar og dul­kóðuð gögn séu ör­ugg­lega geymd. „TPM 2.0 er mik­il­væg­ur ör­ygg­isþátt­ur í Windows 11 sem vernd­ar viðkvæm gögn á ör­ugg­an hátt. Það er lyk­il­atriði þegar kem­ur að því að vernda upp­lýs­ing­ar gegn árás­um,“ út­skýr­ir Trausti.

Ný gervi­greind í Windows 11

„Not­enda­upp­lif­un­in í Windows 11 bygg­ir á því sem við þekkj­um frá Windows 10, en með upp­færðum eig­in­leik­um sem bæta ár­ang­ur og auðvelda fjöl­verka­vinnslu. Með Snap Layouts er hægt að skip­leggja glugg­ana á skján­um og fínstilla vinnusvæðið á þægi­leg­an hátt. Snap Layouts hef­ur gert það auðveld­ara fyr­ir mig að halda vönduðu skipu­lagi á mörg­um glugg­um á sama tíma,“ seg­ir Trausti.

Hann seg­ir Copi­lot, nýja gervi­greind­in í Windows 11, hjálpi not­end­um að út­skýra flók­in hug­tök og finna ein­föld svör við spurn­ing­um. Með Copi­lot er hægt að læra nýja hluti eða fá aðstoð við að bæta við upp­lýs­ing­um í gegn­um verk­efn­astik­una eða með sér­stök­um Copi­lot-takka sem er í boði í nýj­um Windows 11 far­tölv­um

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert