Hagkerfi í tölvuleik stærra en Svíþjóð

Brotabrot heimsmyndar EVE Frontier þar sem sögusviðið er sveipað dulúðugu …
Brotabrot heimsmyndar EVE Frontier þar sem sögusviðið er sveipað dulúðugu myrkri og andrúmsloftið byggt á þema hrollvekja. Mannkynið er löngu útdautt á sögutíma leiksins og örugglega enginn að velta sér upp úr losun gróðurhúsalofttegunda eða Parísarsamkomulagi. Grafík/Aðsend

„Í dag vor­um við að gefa út nýja upp­færslu af leikn­um, áður en það gerðist vor­um við með leik­inn í lokuðum próf­un­um þar sem við byggðum upp spil­ar­ana sem vilja þróa leik­inn með okk­ur til lengri tíma,“ seg­ir Sæmund­ur Her­manns­son, sem stýr­ir leikþróun glæ­nýs tölvu­leiks frá CCP sem gert hef­ur garðinn fræg­an á alþjóðavett­vangi tölvu­leikjaunn­enda um rúm­lega tveggja ára­tuga skeið með leikn­um EVE On­line.

Nú er hins veg­ar komið að EVE Frontier sem opnaður var fyr­ir al­menn­ing í dag, 11. júní, en hef­ur í sín­um fyrsta fasa verið í eins kon­ar til­rauna­spil­un fyr­ir hóp­inn sem Sæmund­ur nefn­ir hér í upp­hafi – spil­ar­ana sem hafa áhuga á að fylgja leikn­um úr hlaði og þróa hann með leikjat­eymi CCP. Þar til í dag hef­ur leik­ur­inn verið í lokuðum próf­un­um.

Sá sem hér skrif­ar sagði skilið við tölvu­leiki árið 1988 og er eins og álf­ur út úr hól á þeim vett­vangi. Ein­hvern veg­inn er þó al­veg ljóst að ekki þarf há­skóla­gráðu í nokkr­um sköpuðum hlut til að átta sig á að það út­spil er ekki á færi hvaða tölvu­leikja­fram­leiðanda sem er að kalla til sín hóp spil­ara um all­an heim til að ýta nýj­um leik úr vör. Slíkt leik­ur þó í hönd­um CCP sem skart­ar hátt í 400.000 EVE On­line-spil­ur­um – þann leik spila um það bil jafn marg­ir og bú­sett­ir eru á fóst­ur­jörð leiks­ins, Íslandi.

Þegar allt reyn­ir að drepa þig

„Nýr heim­ur, ný tækni, ný saga“ er fyr­ir­sögn frétta­til­kynn­ing­ar CCP um EVE Frontier og það fyrsta er að minnsta kosti eng­in lygi miðað við lýs­ingu Sæ­mund­ar á sögu­sviði Frontier.

„Leik­ur­inn snýst í grunn­inn um að þú átt að reyna að lifa af í geimn­um,“ seg­ir leik­stjór­inn af um­hverfi leiks­ins nýja, „þar er í raun allt að reyna að drepa þig, hvort sem það er ver­öld­in sjálf eða aðrir spil­ar­ar. Leiðin til að lifa af er að byggja þína eig­in bækistöð sem er lít­il í byrj­un, en get­ur orðið risa­stór með tím­an­um og þú get­ur byggt hana í sam­starfi við aðra spil­ara. Þetta er risa­stór heim­ur með fjölda sól­kerfa sem líka eru risa­stór, senni­lega er þetta stærsti heim­ur sem byggður hef­ur verið í tölvu­leik,“ held­ur hann áfram.

Bækistöðin kosti eðli­lega hrá­efni og pen­inga og til að auðgast þurfa spil­ar­ar að leggja á sig náma­gröft til að byggja upp auð. EVE On­line-spil­ar­ar í hópi les­enda kann­ast vænt­an­lega við svipað puð þaðan.

Eins þurfi að koma svo­kölluðum NPC-um fyr­ir katt­ar­nef, en skamm­stöf­un­in stend­ur fyr­ir „non-playa­ble characters“ og eru ein­hver óbermi sem ekki hafa jarðnesk­an spil­ara af holdi og blóði á bak við sig. Þarna eru ein­fald­lega sjálf­virk­ar for­ritaðar drápsvél­ar sem hafa það hlut­verk að gera þér lífið leitt, spil­ari góður, eða ein­fald­lega drepa þig (í leikn­um).

Viðmælandinn í þessu viðtali er Sæmundur Hermannsson sem hefur það …
Viðmæl­and­inn í þessu viðtali er Sæmund­ur Her­manns­son sem hef­ur það hlut­verk hjá CCP að leik­stýra EVE Frontier enda ferst hon­um vel úr hendi að draga upp and­rúms­loft leiks­ins fyr­ir blaðamanni sem síðast var að spila Police Qu­est og Bom­bjack II árið 1988. Ljós­mynd/​Aðsend

Mann­kynið löngu út­dautt

„Þú þarft að finna hluti og fara á erfiðari og erfiðari staði til að ná í hluti til að byggja upp bækistöðina þína og við byggj­um leik­inn upp í eins kon­ar hryll­ings­myndaþema. Hlut­ir sem þú sérð í leikn­um, tón­list­in sem þú heyr­ir og annað sem þú upp­lif­ir er allt til þess gert að vekja með þér ónota­kennd svo til­finn­ing­in verði þeim mun betri þegar þér heppn­ast eitt­hvert ætl­un­ar­verk,“ út­skýr­ir Sæmund­ur hisp­urs­laust.

Ofan á fram­an­greint má smyrja þeirri bak­grunns­sögu að í heimi EVE Frontier er mann­kynið búið að vera út­dautt í árþúsund­ir og ein­hver dul­mögnuð vera, sem geng­ur und­ir nafn­inu Keeper, leyn­ist bak við ósýni­leg tjöld og hef­ur það mark­mið að end­ur­vekja mann­kynið til lífs­ins. Þrátt fyr­ir göf­ugt mark­mið Kee­pers ætla stór vél­menni, drón­ar sem ganga und­ir heit­inu Fer­al Drones, sér að ganga af mennsk­um spil­ur­um dauðum, en hafa auk þess ýmis hliðar­verk­efni, svo sem að byggja stór mann­virki og sinna öðrum viðvik­um. Eins kon­ar verk­tak­a­starf­semi án hliðstæðu.

Þetta er mik­il sál­fræði og mögnuð heims­mynd. En hver er í stakk bú­inn til að hugsa upp slík­an söguþráð í tölvu­leik?

„Heiður­inn af sög­unni á bak við leik­inn á sögu­teymi hans [e. narrati­ve team] og bók­staf­lega þeir sem tekið hafa þátt í lokuðum próf­um með okk­ur,“ svar­ar Sæmund­ur um hæl. „Til þess að gera svona þarf ekki bara ein­stak­ling eða ein­stak­linga held­ur fólk sem vinn­ur náið sam­an,“ bæt­ir hann við af inn­lif­un og stund­um þarf bara að fyr­ir­gefa all­ar ensku­slett­urn­ar. Þeim var flest­um snúið á ís­lensku.

„Regla 1: Þú tal­ar ekki um Fig­ht Club“

EVE Frontier var leynd­ar­mál upp­hafs­spil­ar­anna út­völdu þar til í dag. Þá aflétti CCP sam­komu­lagi um af­hjúp­un­ar­bann sem að sjálf­sögðu á sér er­lent heiti, NDA, eða „non-disc­losure agreement“. Í dag máttu upp­hafs­spil­ar­arn­ir fyrst segja vin­um sín­um og öðrum frá kom­andi verki CCP. Sæmund­ur lík­ir þessu við reglu núm­er eitt sem sum­ir les­end­ur muna úr kvik­mynd­inni Fig­ht Club frá 1999. „Þetta er búið að vera Fig­ht Club hingað til og nú má loks­ins tala um klúbb­inn,“ seg­ir hann ein­fald­lega.

Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP ávarpar afmælisgesti á tuttugu ára …
Hilm­ar Veig­ar Pét­urs­son for­stjóri CCP ávarp­ar af­mæl­is­gesti á tutt­ugu ára af­mæli EVE On­line í maí 2023. Hilm­ar dreymdi um það þegar í Fjöl­brauta­skól­an­um í Garðabæ fyr­ir meira en þrjá­tíu árum að smíða tölvu­leik sem öll heims­byggðin gæti spilað sam­an og fór svo í það mál. Ljós­mynd/​CCP

Þeir sem vilja spila nýja leik­inn fara ein­fald­lega inn á síðuna evefrontier.com og byrja að spila. Það kost­ar í bili 40 banda­ríkja­dali, 5.000 krón­ur. Að sögn Sæ­mund­ar er það ein­greiðsla sem geng­ur svo upp í framtíðaráskrift. Gamli EVE On­line er hins veg­ar í upp­hafi ókeyp­is, þar til spil­ar­ar koma að ákveðnum vatna­skil­um í spil­un sinni, eða vegg, og eru þá krafðir um 20 dali, 2.500 krón­ur.

Sæmund­ur seg­ir þar á ferð gjöf en ekki gjald og rök­styður: „Tölvu­leik­ir eru al­mennt mjög ódýr afþrey­ing, ef þú berð til dæm­is sam­an við bíó­ferð þá færðu út mjög hag­stætt verð fyr­ir skemmtana­gildi ef þú skoðar upp­hæðina sem þú greiðir fyr­ir hverja klukku­stund,“ seg­ir hann og blaðamaður hneig­ist til að vera sam­mála. Í bíó þarf líka að kaupa popp og kók sem tölvu­leikja­spil­ar­ar þurfa kannski síður.

Einn-plús-einn-sam­keppn­in

Þetta fær­ir okk­ur inn í umræðu um hag­kerfi leikj­anna, en margsinn­is hef­ur komið fram í fjöl­miðlum að hag­kerfi EVE On­line er gríðar­stórt. „Ég er held­ur ekki bú­inn að minn­ast á að hag­kerfi EVE Frontier er byggt á bálka­keðju­tækni [e. block chain] sem leyf­ir okk­ur í framtíðinni að opna hag­kerfið og við höf­um sett okk­ur það mark­mið að hag­kerfi EVE Frontier verði að lok­um stærra en Svíþjóð,“ seg­ir Sæmund­ur og fær illa dulið stolt sitt.

Ekki var mikið talað um hag­kerfi ein­stakra tölvu­leikja þegar blaðamaður kvaddi þann heim fyr­ir tæp­um 40 árum, en þetta mark­mið CCP mun að sögn leik­stjór­ans nást með því að fá spil­ar­ana til að stunda viðskipti sín á milli í leikn­um, til dæm­is með hrá­efn­in sem áður voru nefnd.

Sá heimur sem CCP býður spilurum sínum upp á í …
Sá heim­ur sem CCP býður spil­ur­um sín­um upp á í EVE Frontier er allt annað en sól­rík­ur enda á stemmn­ing hans að vekja slík­an óhug með spil­ur­um að gleði þeirra verði með öllu fölskvalaus þegar eitt­hvað geng­ur upp hjá þeim í leikn­um. Grafík/​CCP

EVE On­line hef­ur gengið í rúm­lega tutt­ugu ár og með hverju ár­inu sem hann geng­ur vel verða mark­mið okk­ar fyr­ir EVE Frontier há­leit­ari, því við verðum alla vega að lifa einu ári leng­ur en EVE On­line sem verður von­andi að ei­lífu svo þetta er einn-plús-einn-sam­keppni,“ seg­ir Sæmund­ur Her­manns­son að lok­um, tölvu­leik­stjóri EVE Frontier, nýj­asta út­spils CCP sem í dag er í fyrsta sinn leyfi­legt að tala um op­in­ber­lega.

Einn um­fangs­mesti fjár­fest­ir heims

Svo stiklað sé á nokkr­um mol­um úr frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins til­kynnti Hilm­ar Veig­ar Pét­urs­son for­stjóri CCP um opn­un EVE Frontier og frum­sýndi The Ancient Dark, nýja kynn­ing­arstiklu fyr­ir leik­inn, á IGN Live-leikjaráðstefn­unni um helg­ina.

Stikl­an gef­ur inn­sýn í hinn opna, djúpa, víðfeðma og harðneskju­lega heim leiks­ins nýja. „Í skugga dul­ar­fullra rústa, minja um styrj­ald­ir og eyðilegg­ingu má þó sjá merki um end­ur­fæðingu og hina klass­ísku hringrás dauða og lífs. Bar­áttu þess að lifa af í mis­kunn­ar­lausri ver­öld,“ seg­ir þar og má draga í efa að lýs­ing­ar tölvu­leikja hafi verið há­leit­ari fram til þessa.

Andreessen Horowitz, einn um­fangs­mesti fjár­fest­ir heims í ný­sköp­un­ar- og tæknifyr­ir­tækj­um, sem meðal ann­ars hef­ur verið í far­ar­broddi fjár­fest­inga í Airbnb, Skype, Twitter og Face­book, er meðal fjár­festa EVE Frontier. Meðal annarra fjár­festa má nefna Makers Fund, Bitcraft, Kingsway Captial, Hashed og Nexon.

Hér má horfa á kynn­ing­arstikluna Rökkrið forna eða The Ancient Dark:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert