Það er nokkuð langt um liðið síðan að hundraðkalli var landað í íslenskri laxveiðiá. Það gerðist þó í síðasta holli í Haffjarðará. Bandaríkjamaðurinn Ming Li lenti þar í miklu veiðiævintýri. Hann var með Madeline númer sextán undir og var að kasta við gömlu brú. Hann fékk þessa líka rokna töku og viðstaddir áttuðu sig strax á að þar var stór fiskur á ferð.
„Hann var mjög stressaður. Hjartað örugglega í 180 slögum. Hann hafði líka miklar áhyggjur af því hvað flugan var lítil en þetta hafðist og hann landaði risanum. Eins og sjá má var Ming Li gríðarlega ánægður með fenginn og faðmaði laxinn vel og lengi áður en honum var sleppt aftur. Hefur Ming Li nú fengið viðurnefnið Laxafaðmarinn af samstarfsfélögum sínum,“ sagði Árni Harðarsson í samtali við Sporðaköst. Árni var staddur í hollinu með Ming.
Hinrik leiðsögumaður mældi fiskinn eftir réttum kúnstarinnar reglum og stóð hann slétta 102 sentímetra.
Árni sagði að veiðin hefði verið flott. Hollið var með 33 laxa á tveimur dögum. „Áin var í sínum besta gír. Temmilega lág í vatni og draumafæri fyrir flot og smáflugur.“
Haffjarðará hefur verið að gefa stöðuga veiði og er ein af örfáum ám á landinu sem er að gefa svipaða veiði og í fyrra. Samtals hafði hún gefið 642 laxa í fyrradag.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Blanda | Patrick Devennie | 20. júní 20.6. |
100 cm | Kjarrá | Sigurður Smári Gylfason | 19. júní 19.6. |
Veiðiárið 2023: | |||
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |