Tröllin sem ekki veiddust og eftirpartý

Að landa hundraðkalli er mikill áfangi fyrir flesta veiðimenn. En …
Að landa hundraðkalli er mikill áfangi fyrir flesta veiðimenn. En að fá tvo í sama mánuði er alveg magnað. Gunnar Pétursson veiddi þennan 102 sentímetra hæng í Hvítá, við Iðu. Ljósmynd/Gunnar Pétursson

Norsku rekkafar­arn­ir eru ekki bara van­ir að skutla laxa. Þeir vinna fyrst og fremst við að meta stofn­stærðir í norsk­um ám og hafa mikla reynslu af að telja og meta fiska. Þeir sáu laxa í bæði Víðidalsá og Vatns­dalsá sem þeir sögðu í yf­ir­stærð. Í Þeim mikla stór­fisk­astað sem Hnaus­a­streng­ur í Vatns­dalsá er sá þeir fisk sem þeir lýstu með orðinu „mon­ster“ eða skrímsli. Þeir höfðu ít­rekað séð stóra fiska og giskuðu auðveld­lega á stærð þeirra. En þetta skrímsli hafði kom­ist í tæri við veiðimann í sum­ar. Hæng­ur­inn stór­vaxni var nefni­lega með flugu í öðru kjaft­vik­inu. Ekki fylgdi sög­unni hvaða fluga það var.

Þegar þess­ir sömu kafar­ar höfðu kafað í Kolug­ljúf­ur í Víðidalsá, tveir sam­an komu þeir að máli við fylgd­ar­menn sína og sögðust hafa séð stærsta lax sem þeir höfðu séð á Íslandi. Fyrri kafar­inn sagði fisk­inn á bil­inu 16 til 18 kíló. Þegar sá síðari kom upp úr sagðist hann hafa séð hæng sem væri um átján kíló. Þess­ir fisk­ar eru sem sagt enn til og er lík­legt að báðir þess­ir fisk­ar sem hér er lýst hafi dvalið þrjú ár í sjó. Kafar­arn­ir voru afar glögg­ir á stærðir og sáu nokkra tíu kílóa fiska í báðum ám, þar að auki.

Sá magnaði veiðistaður Svarthamar í Austurá í Miðfirði gaf tvo …
Sá magnaði veiðistaður Svart­ham­ar í Austurá í Miðfirði gaf tvo fiska í sept­em­ber sem voru báðir 101 sentí­meter. Ekki er um sama fisk­inn að ræða. Agn­ar Sig­ur­jóns­son hamp­ar hér happ­drætt­in­um. Ljós­mynd/​AS

En ef við gef­um okk­ur að þess­ir tveir lax­ar séu í stærðarflokkn­um XXL þá veidd­ust nokkr­ir sem yrðu merkt­ir sem XL. Sept­em­ber skil­ar ávallt nokkr­um hundraðköll­um og það gerðist líka í sum­ar. Sviss­nesk­ur veiðimaður veiddi einn slík­an í loka­holl­inu í Vatns­dalsá. Það var hæng­ur sem mæld­ist hundrað sentí­metr­ar og var þar á ferðinni lítt reynd­ur veiðimaður en með hina klass­ísku Frances í túbu út­gáfu. Það sem er þó kannski merki­leg­ast við þenn­an lax að hann var fyrsti lax­inn sem sá sviss­neski veiðir og því maríulax.

Önnur merki­leg saga er hundraðkall núm­er tvö sem Gunn­ar Pét­urs­son veiddi í sept­em­ber. Hann landaði 101 sentí­metra laxi í Svart­hamri í Austurá í Miðfirði, í byrj­un sept­em­ber. Við sögðum frá þeim fiski og birt­um mynd­ir. Gunn­ar átti svo annað æv­in­týri í Hvítá við Iðu nú skömmu fyr­ir lok­un. Þá var hann með rauðan devon og setti í 102 sentí­metra hæng. Eins og Gunn­ar sagði sjálf­ur í sam­tali við Sporðaköst. „Magnað að fá tvo svona fiska í sama mánuði.“

Svissneskur veiðimaður sleppir maríulaxi í Hnausastreng í Vatnsdalsá. Þetta var …
Sviss­nesk­ur veiðimaður slepp­ir maríulaxi í Hnaus­a­streng í Vatns­dalsá. Þetta var einn af síðustu löx­um sum­ars­ins í Vatns­dalsn­um. 100 sentí­metr­ar og mæld­ur af þrem­ur veiðimönn­um. Ljós­mynd/​BKR

Það er líka magnað að Svart­ham­ar í Miðfirði gaf ann­an fisk í þess­um stærðarflokki á síðustu dög­um veiðitím­ans. Þann fisk veiddi Agn­ar Sig­ur­jóns­son og stóð hann 101 sentí­metra eins og fisk­ur Gunn­ars. Við sam­an­b­urð á fisk­un­um sést að þetta er ekki sami lax­inn.

Þá gaf Eystri-Rangá 101 sentí­metra hæng á þýska Snældu þann 27. sept­em­ber. Er það 29. hundraðkall­inn sem staðfest­ur er í sum­ar á lista Sporðak­asta. Nokkr­ar til­kynn­ing­ar hafa borist en þar hef­ur vantað upp á sönn­un­ar­byrði sem Sporðaköst gera kröfu um.

Í fyrra komust þrjá­tíu fisk­ar á list­ann og sum­arið 2021 voru þeir 31. Í sum­ar veidd­ust fjór­ir slík­ir í Miðfjarðará, þrír í Laxá í Aðal­dal og sömu­leiðis í Stóru-Laxá, Víðdalsá og Vatns­dalsá. Haffjarðará, Hvítá við Iðu og Grímsá gáfu all­ar tvo hundraðkalla.

Þessi er glænýr og veiddist í klakveiði í Jöklu. Mikið …
Þessi er glæ­nýr og veidd­ist í kla­kveiði í Jöklu. Mikið var af fiski á Hólaflúð og landaði loka­hollið yfir fjöru­tíu löx­um. Jökla endaði í 525 löx­um sem er gott miðað við aðstæður í sum­ar. Ljós­mynd/Þ​röst­ur Elliðason

Magnað eft­ir­partý í Jöklu

Jökla var úr leik snemma í sum­ar þegar hún fór á yf­ir­fall með til­heyr­andi vatna­vöxt­um og gruggi. Hún varð óveiðan­lega í byrj­un ág­úst af þess­um sök­um. Þegar þetta gerðist var veiðin góð í Jöklu og stefndi í gott sum­ar. Eft­ir að yf­ir­fallið skall á var veiðin fyrst og fremst í hliðarám og varð mun minni en efni stóðu til hefði Jökla verið veiðan­leg.

Þröst­ur Elliðason, leigutaki fór um mánaðamót­in til að freista þess að veiða fisk í klak. Skemmst er frá því að segja að Jökla var kom­in í mun betra ástand og veiðan­leg. Þröst­ur sagði mikið af laxi vera á Hólaflúð og lentu þeir fé­lag­ar í hörku veiði. „Þetta var gott eft­ir­partý. Þegar maður sá all­an þenn­an lax á Hólaflúðinni og sum­ir býsna ný­leg­ir velt­ir maður því fyr­ir sér hvort Jökla hefði ekki gefið met­veiði í sum­ar,“ sagði Þröst­ur í sam­tali við Sporðaköst.

Loka­hollið gaf rúm­lega fjöru­tíu laxa og loka­tala í Jöklu fór því í 525 laxa. Það er góður fjöldi í ljósi þess hversu stutt vertíðin var þar eystra.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka