Vigfús Orrason, sem flestir veiðimenn þekkja sem Vivvi fékk í dag annan eldislax í Fljótaá. Við sögðum frá því í gær að hann hefði veitt eldislax í ánni og mældist sá 78 sentímetrar. Í dag ákvað Vivvi að leita að eldislaxi og fór um ána vopnaður þungri Frances túbu. „Já. Ég var hreinlega að leita af mér allan grun og í Stöðvarhyl fékk ég annan svona fisk. Hann var miklu mjóslegnari en sá sem fékk í gær og þetta er greinilega niðurgöngulax,“ sagði Vivvi í samtali við Sporðaköst.
Stöðvarhylur er efsti veiðistaður í Fljótaá og afar líklegt verður að teljast að þessi lax hafi hrygnt í vetur. Útlitið er ekki að hjálpa honum. Bakuggi mikið skemmdur og annar eyrugginn snúinn og mjög lítill.
Með þessari frétt fylgir myndband sem Vivvi tók í gær þegar hann veiddi fyrri eldislaxinn. Hann stillti upp símanum sínum og ætlaði að taka upp myndband sem sýndi hversu auðvelt væri að setja í bleikju í Fljótaánni. Í nánast fyrsta kasti setur hann í fisk en ó nei. Það var ekki bleikja heldur eldislax. Myndbandið sýnir alla viðureignina og allt þar til laxinn er rotaður. Reyndar nokkuð oft af hljóðinu að dæma.
Hann mun fara með báða laxana til Hafrannsóknastofnunar í lok vikunnar og vonast eftir flýtimeðferð á rannsókn. „Það hlýtur að liggja á að fá það á hreint hvort þessir fiskar eru úr Patró sleppingunni eða hvort að þetta sé eitthvað nýtt slys sem við þurfum upplýsingar um.“
Á næstu dögum opna fjölmargar laxveiðiár og margir veiðimenn óttast þá martröð að eldislaxar veiðist í opnunum. Fljótaá er talandi dæmi um að þær martraðir geta orðið að veruleika.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Blanda | Patrick Devennie | 20. júní 20.6. |
100 cm | Kjarrá | Sigurður Smári Gylfason | 19. júní 19.6. |
Veiðiárið 2023: | |||
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |