Íhuga lokun nær allra laxveiðiáa í Noregi

Landeigendur í Eidselva í Noregi ætla ekki að bíða eftir …
Landeigendur í Eidselva í Noregi ætla ekki að bíða eftir stjórnvöldum þar í landi. Ánni verður lokað þann 23. júní. Útlit er fyrir hundruð laxveiðiáa verði lokað í Noregi, tímabundið á næstunni. Ljósmynd/Eidselva

Norska umhverfisstofnunin hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að til alvarlegrar skoðunar sé að loka laxveiðiám í 19 af 22 fylkjum landsins. Tekið er fram í yfirlýsingunni að lokun kunni að koma til innan skamms og þá með stuttum fyrirvara.

Ástæðan fyrir þessari yfirvofandi ákvörðun er fyrst og fremst vegna þess hversu fáir laxar eru að ganga í norsku árnar. Í fyrra var lélegasta ár í Noregi með tilliti til veiða á laxi, frá því að byrjað var að halda utan um tölfræði í norskum veiðiám og veiði í net í sjó. Árið í fyrra og tölurnar sem þá voru uppi á borðinu eru hátíð miðað við þá stöðu sem virðist vera uppi í ár.

Nú þegar hafa samtök landeigenda lokað ám og mátti sjá í gær tilkynningu frá landeigendum við ána Eidselva að henni verður lokað frá og með 23. júní. Ástæður lokunar eru að sögn landeigenda, fáir laxar í bland við vatnsleysi.

„Við höfum ávallt framkvæmt mat á stöðu laxveiðinnar á miðju veiðitímabili. Í ljósi þess stöðumats höfum við tekið ákvarðanir um að breyta reglum eða setja á takmarkanir þegar þörf hefur verið á, bæði í ám og einnig varðandi netaveiði í sjó. Í ár getur verið of seint að bíða eftir þessu stöðumati,“ er haft eftir Ellen Hambro forstjóra norsku umhverfisstofnunarinnar.

Svo segir í tilkynningunni: „Þetta þýðir að laxveiði verður mögulega stöðvuð áður en þetta árlega stöðumat liggur fyrir.“

Verjast algeru hruni

Tekið er fram í tilkynningunni að þetta sér gert til að koma í veg fyrir algert hrun í norskum laxastofnun. Bent er á að ef heldur fram sem horfir í sumar verði hrygningarstofnar undir þeim mörkum sem nauðsynleg eru talin og það geti leitt af sér hrun í laxastofnum til framtíðar. Jafnframt er bent á að lokunin geti tekið gildi með stuttum fyrirvara.

Rune veiðir í Laerdalselva. Fari allt á versta veg verður …
Rune veiðir í Laerdalselva. Fari allt á versta veg verður henni lokað fljótlega eins og svo mörgum öðrum laxveiðiám í Noregi. Ljósmynd/Rune Jensen

Rune Jensen er í forsvari fyrir norsku samtökin SalmonCamera sem vinna að verndun laxins. Rune sagði í samtali við Sporðaköst að þetta væri grafalvarleg staða sem upp væri komin. „Það er verið að horfa til þess að mögulega loka laxveiðiám frá landamærunum við Svíþjóð í suðri og norður fyrir Þrændalög. Það hefur verið tekið fram að þetta geti gerst með stuttum fyrirvara. Við erum að tala um nokkur hundruð laxveiðiár. Það eru bara þrjú nyrstu fylkin sem hafa verið með eðlilega laxagengd það sem af er sumri,“ upplýsti Rune.

Ástandið alvarlegt nema nyrst

Hann segir stöðuna ótrúlega. Í fyrra var versta ár í sögu laxveiða í Noregi og það sem af er virðist samdrátturinn vera í kringum fimmtíu til sextíu prósent frá því í fyrra og þetta á við um allar laxveiðiár í landinu nema þær sem eru allra nyrst.

Þetta eru dramatískar tölur, Rune?

„Já. Þær eru það. Í norður Noregi sjáum við eðlilegar laxagöngur og þar er veiðin í sumum ám mjög góð. Ástandið er hins vegar alvarlegt í mið hluta landsins og alla leið til suður hluta Noregs. Við í SalmonCamera samtökunum styðjum þessa nálgun. Við teljum hins vegar þetta sé kannski full snemmt og teljum rétt að bíða og sjá hvað gerist á næsta stóra straumi, hvort að göngurnar séu möguleg seinar fyrir. Ég trúi því hins vegar að stjórnvöld séu líka að horfa til þeirra netaveiða á laxi sem stundaðar eru í fjörðum Noregs og eru heimilar. Stjórnunin á þeim veiðum er einungis sá tími sem heimilt er að vera með netin í sjó. Ekki er tekið tilliti til fjölda veiddra laxa eða slíkra hluta. Ég held að stjórnvöld vilji hafa vaðið fyrir neðan sig og koma í veg fyrir að umtalsverður hluti laxins verði veiddur áður en hann kemst upp í árnar.“

Rune segir að nú þegar hafi nokkrum ám verið lokað, eða tilkynnt um að þeim verði lokað fljótlega, óháð því hvað stjórnvöld gera í framhaldinu.

Veistu hvernig þetta verður gert, komi til lokunar á hluta af laxveiðiám eða landssvæðum?

„Við erum ekki að tala um hluta af Noregi. Þarna er verið að tala um allan Noreg nema nyrstu þrjú fylkin, Troms, Norland og Finnmörk.“

Gaula er ein af stóru ánum í Noregi. Nú er …
Gaula er ein af stóru ánum í Noregi. Nú er algert hrun í laxagöngum í margar af helstu ánum í Noregi. 2023 var versta ár í sögu Noregs þegar kemur að laxveiði. Fallið nú er 50-60% frá því hörmungarári. Tomas Helweg

Gæti orðið stuttur fyrirvari

Veistu hvenær ákvörðun verður tekin um þetta?

„Nei. Ég hef verið að reyna að ná sambandi við yfirvöld en það er brjálað að gera hjá þeim og mikil fundahöld. Þau hafa þó sagt að það er verið að meta ástandið og að komi til lokunar þá geti það gerst með stuttum fyrirvara.“

Þessi staða kemur upp í framhaldi af því að vísindaráð sem fjallar um laxinn í Noregi sendi frá sér skýrslu og stöðumat þann 17. þessa mánaðar. Í ráðinu sitja þrettán vísindamenn frá sjö stofnunum og háskólum í Noregi. Í kjölfar þeirrar umsagnar og skýrslu hafa allar viðvörunarbjöllur nú farið af stað í Noregi.

Rune Jensen sem er eins og fyrr segir í forsvari fyrir samtökin SalmonCamera sem hafa í meira en tvo áratugi barist fyrir verndun og viðgangi laxa- og sjóbirtingsstofna Noregs styðja þessa framkvæmd. Rune bendir á að það hafi komið fyrir að lax hafi verið sent á ferðinni úr hafi í norskar laxveiðiár. Nefnir hans til sögunnar árið 2018 þegar slík seinkun varð. Hann segir hins vegar að það hafi ekki verið jafn seint og núna. Fyrir áhugasama er hægt að skoða vefsíðu samtakanna á vefnum www.salmoncamera.com.

Varaði Íslendinga við árið 2016

Árið 2016 skrifaði Rune grein í Morgunblaðið þar sem hann bað Íslendinga um að vera skynsama og varkára þegar kom að uppgangi sjókvíaeldis í íslenskum fjörðum. „Við vorum það svo sannarlega ekki hér í Noregi og það er vitað að sjókvíaeldi er stærsta ógnin við laxastofna.“

En Rune, gæti verið að laxinn sé svona seinn á ferðinni og að það rætist úr þessu?

„Við viljum svo gjarnan trúa því. Og við viljum trúa, með áherslu á viljum, að laxinn hafi dvalið lengur á fæðuslóð því skilyrði í hafinu hafi verið svo góð. Jafnvel bæti við sig ári og komi þá síðar en þetta vitum við ekki. Vorið hefur líka verið mjög sérstakt með miklum þurrkum og hita. Kannski hefur það áhrif, en við vitum það bara ekki. Við erum mjög áhyggjufull og óttumst það versta en vonum það besta. Það er bara svo mikið sem við vitum ekki þegar kemur að laxinum. Og einmitt þess vegna held ég að stjórnvöld séu að gera rétt í því að mögulega loka ánum tímabundið, þar til við vitum meira.“

Rune bendir á laxeldi í sjó þegar kemur að hnignun á laxastofnum. Hann segir þrjá þætti vega þar þyngst. Laxalúsin og erfðamengun eru þekktir og staðfestir áhættuþættir. Hins vegar nefnir Rune þriðja þáttinn sem hann segir að hafi fengið litla athygli fram til þessa. „Útbreiðsla alvarlegra sjúkdóma í villta fiskinn veldur okkur miklum áhyggjum. SalmonCamera hafa fjármagnað rannsóknir og rannsóknaráætlun frá árinu 2013 þar sem  farið hefur fram rannsókn á hreistri, tálknum, hjarta og nýrum villtra laxa. Við höfum séð mjög ógnvekjandi niðurstöður úr þeim rannsóknum sem tengja villta laxinn við hættulega sjúkdóma sem hafa þrifist og verið vandamál í sjókvíaeldi. Sumar niðurstöður höfum við birt opinberlega í vísindatímaritum en annað hefur enn ekki verið birt. 

Rune Jensen er í forsvari fyrir samtökin SalmonCamera sem í …
Rune Jensen er í forsvari fyrir samtökin SalmonCamera sem í meira en tvo áratugi hafa staðið vaktina til að verja laxinn. Rune hefur varað Íslendinga við sjókvíaeldinu og gerði það í grein í morgunblaðinu árið 2016. Ljósmynd/Rune Jensen

„Þeim er skítsama“

Það er staðreynd að sjókvíaeldi í stórum stíl í fjörðum Noregs hefur leitt til mikillar fækkunar í laxastofnum. Hins vegar er ekki bara hægt í þessu tilviki að beina byssunni að eldisiðnaðinum. Það eru svæði í Noregi sem ekki búa við sjókvíaeldi og þar er laxinn heldur ekki að koma til baka. En það er alveg ljóst að sjókvíaeldið á stærstan þátt í að laxastofnar í Noregi hafa minnkað um 85% síðustu þrjátíu til fjörutíu ár.“

Noregur hefur alþjóðlegar skuldbindingar varðandi tvær dýrategundir þegar kemur villtri náttúru. Það er villti laxinn og hreindýrin. Hér fer Rune á flug. „Ríkisstjórnin okkar getur ekki verndað villta laxinn. Þeim er í raun skítsama. Og þú mátt hafa það eftir mér. En þetta er ekki villti lax ríkisstjórnarinnar. Þetta er náttúran okkar og barnanna okkar og samkvæmt norsku stjórnarskránni þá eigum við rétt á heilbrigðri náttúru sem fóstrar fjölbreytileika. Stjórnmálamenn hafa talað fallega um laxinn en þegar kemur að aðgerðum þá er ekkert gert.“

Eins og staðan er núna eru verulegar líkur á að stærstum hluta laxveiðiáa í Noregi verði lokað á næstu dögum. Það mun hafa gríðarleg áhrif og er algerlega ófyrirsjáanlegt hvernig það mál mun þróast. Fjölmargir ferðamenn eiga bókaða veiði í Noregi og laxveiðar gefa af sér miklar og mikilvægar tekjur fyrir mörg sveitarfélög. Þetta er fordæmalaus staða og mun væntanlega hafa margvísleg og mikil eftirmál.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert