Síðustu daga hafa tveir regnbogasilungar veiðst í Elliðaánum. Slíkir fiskar eru upprunnir úr eldi en ekki er vitað hvaðan þeir koma. Bjarki Bóasson og Jón Ingi Pétursson veiddu regnbogasilung í Elliðaánum og var hann „bankaður, blóðgaður og pokaður“ að sögn Bjarka en, félagi hans Jón Ingi veiddi regnbogann á litla hitch túbu.
Sporðaköst báru þetta undir Ásgeir Heiðar sem þekkir árnar manna best en hann sagðist ekki þekkja málið en nefndi þó að slatti af 20 til 30 sentímetra silungum væri í ósnum.
Þessir fiskar verða sendir Hafrannsóknastofnun til rannsóknar en nokkuð hefur borið á regnbogasilungi í vor. Þrír slíkir veiddust i Vatnsdalsá í maí og í það minnsta tveir hafa veiðst í Minnivallalæk, en væntanlega eru þeir ekki að koma úr sjó, frekar úr eldi eða verið sleppt.
Laxveiðin í Elliðaánum fer ágætlega af stað og nú síðdegis var búið að bóka þar 31 lax. Sjö veiddust á morgunvaktinni í morgun. Full ástæða er til bjartsýni með laxveiðina þar í sumar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Blanda | Patrick Devennie | 20. júní 20.6. |
100 cm | Kjarrá | Sigurður Smári Gylfason | 19. júní 19.6. |
Veiðiárið 2023: | |||
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |