Nú raðast þeir inn stórlaxarnir

Stefán Elí Stefánsson með 101 sentímetra hænginn úr Dalsárósi í …
Stefán Elí Stefánsson með 101 sentímetra hænginn úr Dalsárósi í Víðidalsá í morgun. Tími þeirra stóru er runninn upp. Ljósmynd/Ívar Bragason

Stór­laxa­tím­inn er runn­inn upp. Þessi tími, þegar haustið læðist að er oft kallað krókó­díla­tími. Stóri hæng­ur­inn er orðinn árás­ár­gjarni og ver sitt svæði af hörku. Þá eru flug­ur veiðimanna meira áreiti en áður. 101 sentí­metra fisk­ur veidd­ist áðan í Dals­árósi í Víðidalsá, en þar hafa marg­ir af þeim allra stærstu átt lög­heim­ili í gegn­um ára­tug­ina.

Ann­ar slík­ur veidd­ist í Kjarará í fyrra­dag á veiðistaðnum með magnaða nafn­inu, Hell­ga­te. Sá var mæld­ur 101 sentí­meter. Jafn stór­um fiski var landað í Þór­unn­ar­hyl 29. ág­úst.

Tón­list­ar­menn hafa verið áber­andi við veiðar í sum­ar og ekki síst blást­urs­hljóðfæra­leik­ar­ar þegar kem­ur að stór­löx­um. Ásgeir Stein­gríms­son, trom­pet­leik­ari upp­lifði æv­in­týri í Hofsá í gær þegar hann landaði stærsta laxi sum­ars­ins til þessa í ánni. En byrj­um á Dals­árósi.

Stefán Elí Stef­áns­son var ásamt Ívari Braga­syni, ein­um öfl­ug­asta leiðsögu­manni ár­inn­ar í sum­ar á svæði eitt. Þeir komu að Dals­árósi og Guðjón, fé­lagi Stef­áns tók fyrsta rennslið. Átta­tíu sentí­metra hrygna tók nán­ast strax og var landað og sleppt. Þá var komið að Stefáni sem hef­ur kynnst nokkr­um löx­um í yf­ir­stærð í gegn­um tíðina. „Við vor­um bún­ir að vera ein­göngu í smá­flug­um og ákváðum að taka þetta aðeins und­ir yf­ir­borðið. Blá Metallica kvart tommu túba með litl­um kón. Við völd­um þessa í sam­ein­ingu og það var bara í fimmta eða sjötta kasti sem þessi tók fyr­ir miðjum hyl,“ upp­lýsti Stefán í sam­tali við Sporðaköst skömmu eft­ir að búið var að landa og sleppa höfðingj­an­um.

Viður­eign­in var tíðinda­lít­il og tók ekki nema um fimmtán mín­út­ur. Oft streða lax­ar af þess­ari stærð yfir í bakk­ann í land­inu fjær og þá get­ur voðinn verið vís en Stefán spilaði leik­inn af yf­ir­veg­un og reynsla hans kom að góðum not­um. Lax­in­um var svo strandað og tekn­ar mynd­ir eins og ber að gera með laxa af þess­ari stærð. Mál­bands­mynd­ir og víd­eó voru send til staðfest­ing­ar. Veiðin hafði verið frem­ur ró­leg hjá þeim fé­lög­um en aðstæður í morg­un upp á tíu sagði Ívar Braga­son leiðsögumaður í sam­tali við Sporðaköst. „Þetta er ekki búið. Við erum að færa okk­ur á efri hlut­ann og eig­um þar spenn­andi staði,“ upp­lýsti hann ánægður með þessa byrj­un.

Stærsti laxinn úr Hofsá til þessa í sumar. Ásgeir Steingrímsson …
Stærsti lax­inn úr Hofsá til þessa í sum­ar. Ásgeir Stein­gríms­son leitaði í reynslu­bank­ann úr Aðaldaln­um og það gafst vel. Langa­hvamms­hyl­ur eða Cambus uppi á efsta svæði, geymdi stór­lax­inn. Ljós­mynd/Á​sgeir Stein­gríms­son

All­ir stein­ar í Hofsá sleip­ir og ával­ir

Hofs­á­ræv­in­týrið sem vitnað er til hér að ofan átti sér stað í gær í veiðistaðnum Langa­hvamms­hyl. Fram til þessa var stærsti lax­inn 97 sentí­metr­ar og veidd­ist hann 11. ág­úst í Kútt­nes­hyl. Ásgeir Stein­gríms­son og fé­lagi hans komu að Langa­hvamms­hyl og þá leitaði Ásgeir í reynslu­bank­ann úr Aðal­dal. „Það skein upp og var kom­in glamp­andi sól og blár him­inn. Þá dett­ur mér nú alltaf í hug Laxá blá. Góðviðris­fluga. Ég fór að leiðbein­ing­um og óð út í til að geta kastað á þá steina sem lax leggst gjarn­an við. Þarna er erfitt að vaða og all­ir stein­ar í Hofsá eru ával­ir og sleip­ir,“ hlær trom­pet­leik­ar­inn.

Hann varð strax var við fisk, en sá lax reif í flug­una en sat ekki í hon­um. Ásgeir vissi sem er að hann myndi ekki koma aft­ur. Hann kom sér aðeins lengra út og nokkru neðar til að ná góðu reki á stein sem er á kafi, nokkru neðar. „Við sáum þegar stór lax kom á fleygi­ferð og hrifsaði flug­una. Ég var ró­leg­ur aldrei þessu vant og hann tók og fest­ist á.  Flug­an var öf­ugu meg­in í hon­um, sáum við síðar. Hann hefði átt að fara frá mér og flug­an að sitja í hægra kjaft­viki en af því að það var steinn fyr­ir þannig að hann sneri að mér og flug­an var í raun öf­ugu meg­in í hon­um all­an tím­ann. Hefði ég vitað það strax þá hefði ég verið stressaðri í viður­eign­inni. En það út­skýr­ir það að í tvígang hélt ég að hann væri bú­inn og sneri upp kviðnum en þá hef ég togað svo fast í hann að hann hef­ur rúllað á bakið af því að flug­an sat hinu meg­in í hon­um.“

Lax­inn stökk ekki en þeir sáu hann vel í yf­ir­borðinu og áttuðu sig á að þetta væri mjög stór fisk­ur. Mögu­lega hundrað sentí­metr­ar. Ásgeir vissi að mjög stór lax hafði tap­ast á þess­um stað fyrr í sum­ar. Sá hafði farið fyr­ir stein og tekið út alla línu veiðimanns­ins og krók­arn­ir rétt­ust upp og lax­inn fór sína leið. „Svo rauk hann niður og fyr­ir stein og ég mundi gam­alt ráð af Mjósundi í Aðaldaln­um. Þegar þeir ætla fram af þá er ráð að gefa allt slakt og þá stoppa þeir. Það gekk eft­ir og hann stoppaði en svo stökk hann fimm­tíu metr­um neðar en við átt­um von á. Þá náði ég að vaða að stein­in­um og lín­an losnaði. Þá var ég þakk­lát­ur fyr­ir að stein­arn­ir í Hofsá eru ával­ir og sleip­ir og því lín­an rann yfir stein­inn og ég náði aft­ur beinu sam­bandi við hann.“

Á þess­um tíma­punkti var viður­eign­in orðin tví­sýn. Lax­inn var kom­inn niður eina hundrað og fimm­tíu metra frá tökustaðnum og við blöstu flúðir og stór­grýti. „Ég vissi að ef hann næði þangað, þá væri leik­ur­inn tapaður. Hann ætlaði þangað en ég tók hraust­lega á hon­um og náði hon­um til baka. Þarna vor­um við báðir orðnir nokkuð þreytt­ir. Ég náði að teyma hann upp og þá jókst okk­ur bjart­sýni á nýj­an leik og við á end­an­um náðum að háfa hann eft­ir smá áhættu­atriði við háfinn,“ bros­ir Ásgeir.

Eins og hjá Duplant­is hinum sænska 

Lax­inn var mæld­ur 99 sentí­metr­ar og hef­ur ekki sést mikið af þeirri stærð síðustu ár. Ásgeir seg­ir að fisk­ur­inn hafi verið mjög þykk­ur en þeir gleymdu að mæla um­málið á hon­um. Eins og fyrr seg­ir er þetta stærsti lax úr Hofsá til þessa í sum­ar og jafn­framt sá stærsti sem Ásgeir hef­ur veitt á flugu á sín­um ferli. „Þetta var mik­il ham­ingja. Hann náði ekki­meter. Ég hugsaði með mér að ég myndi bara hafa þetta eins og sænski stanga­stökkvar­inn,Duplant­is. Ég hækka bara um einn­sentí­meter í einu. Stærsti flugulax­inn minn til þessa var 98. Ágætt að hækka bara um einn og þá á égmeter­inn eft­ir.“

Stórlaxinn úr Þórunnarhyl í Þverá/Kjarará, áður Kjarrá. Þessi tók Frances …
Stór­lax­inn úr Þór­unn­ar­hyl í Þverá/​Kjarará, áður Kjar­rá. Þessi tók Frances rauða. Sam­bæri­leg­ur fisk­ur veidd­ist í Hell­ga­te í Kjarará. Báðir mæld­ir 101 sentí­meter. Ljós­mynd/​Star­ir

Framund­an er tími þeirra stærstu. Til að fisk­ur fá­ist skráður á hundraðkalla­list­ann þarf að senda staðfest­ingu á Sporðaköst og ljós­mynd sem sýn­ir mæl­ing­una.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert