Áhugaljósmyndarinn Jóhannes Birgir Guðvarðarson náði skemmtilegum og einkar athyglisverðum myndum af skarfi við veiðar í lítilli tjörn efst við Elliðaárnar. Skarfurinn náði sér þar í myndarlegan gullfisk og sporðrenndi honum, eins og skarfa er siður. Tjörn þessi er skammt frá verslun Bónus við Ögurhvarf, og rétt ofan við Breiðholtsbraut.
Jóhannes gaf Sporðaköstum leyfi til að birta þessar myndir en hann sagðist hafa verið búinn að fylgjast með skarfinum dágóða stund áður en hann náði sér í gullfiskinn. „Ég hef mjög oft séð gæsir á þessari tjörn en þetta er í fyrsta skipti sem ég sé skarf á henni. Hann veiddi fleiri fiska en þeir voru litlir. Ég veit ekki hvort eru fleiri gullfiskar þarna en væntanlega þyrfti að fara með myndavél ofan í vatnið til að kanna það ef menn hafa áhuga að komast að því. Ég var mjög heppinn að sjá þetta og ná að mynda hann með þennan fisk. Hann horfði á mig á milli þess sem hann kafaði og svo kom hann allt í einu upp með þennan gullfisk,“ upplýsti Jóhannes í samtali við Sporðaköst.
Við hefðbundnar aðstæður ættu gullfiskar ekki að geta lifað í íslenskri náttúru. Hins vegar er þessi tjörn þannig úr garði gerð að volgt vatn rennur í hana og á frostdögum sést einmitt mikil gufa stíga upp af henni.
Hvaðan þessi fiskur er kominn er erfitt að segja til um en mjög líklega hefur verið þessum fiski verið sleppt af einhverjum sem átti hann og losaði sig við hann. Nú eða einhver er að gera tilraun með að sjá hvort fiskar geta lifað í þessari tjörn. Fiskurinn sem skarfurinn náði og át virðist vera hinn vænsti og líkast til þrifist vel. Hins vegar er erfitt að segja til um hvort hann er nýlega kominn í tjörnina eða ekki.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem gullfiskur sést á þessu svæði. Sumarið 2020 sást gullfiskur, líkast til svipaður þessum sem myndaður var, í Elliðaánum sjálfum og virtist hann hinn sprækasti þó að straumlagið reyndist honum erfitt. Myndband fylgir með fréttinni sem birtist í lok júní 2020 og þar sést fiskurinn vel. Það var Svavar Hávarðsson sem tók upp myndbandið.
Fjölmargir hafa tjáð sig um myndir Jóhannesar á facebook síðu hans og einnig í hópnum Fuglar á Íslandi. Margir hrósa Jóhannesi fyrir myndirnar og einnig veltir fólk fyrir sér hvernig fiskur þetta sé. Skiptar skoðanir eru um hvort þetta sé koi fiskur eða ekki. Þá benda nokkrir á að slíkir fiskar þrífist í volgri tjörn við Húsavík og sjálfsagt eru fleiri staðir þar sem gullfiskar lifa. Væntanlega eru það þó allt volgar tjarnir.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |