Finnur Harðarson, landeigandi og leigutaki að Stóru Laxá hefur sent Sporðaköstum opið bréf til birtingar, í kjölfar aðalfundar í Veiðifélagi Árnesinga. Bréfið er birt hér í fullri lengd. Það er nýmæli að Sporðaköst fái greinar til birtingar, og við bregðumst að sjálfsögðu vel við slíkum erindum. Feitletranir er höfundar.
Stóra-Laxá er ekki bara laxveiðiá. Hún er hluti af náttúruarfi Íslendinga, spegilmynd óspilltrar fegurðar og grundvöllur samfélags sem hefur í gegnum kynslóðir miðlað virðingu fyrir villtum laxastofnum. Áin hefur laðað til sín veiðimenn hvaðanæva að úr heiminum – ekki aðeins vegna stærðar fisksins, heldur vegna andrúmslofts, umhverfis og sögu. Hún er einnig undirstaða mikils vísindastarfs, sjálfbærrar nýtingar og samfélagslegrar ábyrgðar. Stofninn í Stóru-Laxá er stór og sterkur og virðist þola mikið viðnám en aðrir hlutar vatnakerfisins eru að hruni komnir, sérstaklega ferskvatsnárnar, Sogið, Brúará og Litla Laxá sem voru eftirsótt stórlaxaveiðisvæði en eru í dag hrygðin ein.
Á hinn bóginn hefur Veiðifélag Árnesinga (VÁ) gegnt mikilvægu hlutverki frá stofnun – sem sameiginlegur vettvangur veiðiréttarhafa til að tryggja verndun og ábyrga nýtingu vatnakerfa í Árnessýslu. Félagið á að vinna í þágu allra rétthafa, með gegnsæi, fagmennsku og samvinnu að leiðarljósi. En í seinni tíð hefur eitthvað gerst. Eitthvað bognað. Eitthvað brostið.
Í kjölfar aðalfundar VÁ hinn 27. mars 2025 – fundar sem verður seint talinn til fyrirmyndar og formaður fór með endalausa vitleysu í ræðu sinni – er ekki lengur hægt að þegja. Við sem höfum lagt okkar af mörkum í verndun Stóru-Laxár og framtíð hennar sem hefur áhrif til góðs fyrir allt vatnakerfi VÁ getum ekki lengur horft upp á síendurtekna vanvirðingu, leyndarhyggju, valdníðslu og fjárhagslegt ógegnsæi.
Við birtum því eftirfarandi punkta í opnu bréfi. Ekki til að ergja – heldur til að vekja. Ekki til að sundra – heldur til að byggja upp á ný og loks losa þetta fallega vatnakerfi úr viðjum fornaldarhugsunar og leynimakks.
Ólögleg fiskrækt – eða bara fiskabúr í felum?
Það er orðin hefð hjá stjórn VÁ að stunda fiskrækt í Tungufelli og Laxeyri án rekstrarleyfis. Þetta er ekki einu sinni laumulegt lengur – sjá sjálf á vef MAST (https://www.mast.is/is/maelabord-fiskeldis/rekstrarleyfi-og-eftirlitsskyrslur). Hvernig hefur þessi starfsemi lifað árum saman – nema með viljaðri þögn?
Félagar - hvar er peningurinn?
Stjórn VÁ fékk styrk frá Fiskistofu upp á 2,7 miljónir til rannsókna í Soginu og Stóru Laxá. En Stóra Laxá fékk nákvæmlega… núll krónur. Öll fiskirækt var bönnuð í Stóru-Laxá á aðalfundi í fyrra en stjórn segist hafa sagt Fiskistofu að verkefninu væri frestað. Stóra -Laxá sótti um styrk í Fiskiræktarsjóð fyrra til að bæta aðgengi við ána en fékk ekkert. Stjórnarmaður í VÁ situr í stjórn sjóðsins. Önnur sambærileg verkefni fengu styrk. Engin skýrsla. Engin yfirlit. Bara svör á borð við „við skoðum það síðar“. Einhver mundi kalla þetta fjársvik.
Veiðieftirlit í skugga leynimakks?
Formaður VÁ, Jörundur Gauksson, neitar að veita upplýsingar um hvað farið hefur í veiðieftirlit – sem kostar milljónir á ári. Fiskistofa segir að það sé VÁ sem ráði þessu alfarið. Jörundur segir bara: „Spyrðu einhvern annan.“ Hver ber ábyrgð?
Aðalfundur eða sirkus?
Aðalfundur VÁ 27. mars var ólöglegur. Erindi frá Stóru Laxár- og Tungufljótsdeildum voru einfaldlega hundsuð. Ritari fundarins hvarf á miðjum fundi og annar tók við með blýant og glósubók. Lagaheimildir? Engar. Fagmennska? Ekki séð.
Bréfaskrif og skætingur til nefnda – er þetta hlutverk formanns? Jörundur Gauksson virðist heltekinn af því að klekkja á undirrituðum fyrir að fylgjast með lögbundinni veiði. Á meðan er hann í sambandi við yfirvöld með bréfum sem eru full af tilhæfulausum ásökunum og ósannindum. Er hlutverk formanns að vernda alla veiðiréttarhafa – eða aðeins félaga sína?
Malarnám
VÁ hefur ítrekað verið bent á ólöglegt malarnám í Litlu-Laxá sem hefur viðgengist í áratugi en ekkert verið gert eða kært. Malarnám í Dalsá, möl notuð til að lagfæra veg í Tungufellsdal. Ekkert gert í málinu. Ólöglegum seiðum sleppt í sömu á í þúsunda tali með samþykki VÁ.
Eldislaxar, lögreglukærur og undarlegar áherslur
Árið 2023 var allt veiðifólk hvatt til að fylgjast með eldislöxum til 15. nóvember – en formaður VÁ vildi ekkert með það hafa. Hann kaus þess í stað að kæra undirritaðan. Landssamband Veiðifélaga staðfesti rétt okkar. VÁ virðist ætla að hlífa eldislaxinum – og fórna villtum stofnum.
Gefast upp - félag í herkví
Félagar okkar í bergvatnsánum í vatnakerfinu eru hættir að mæta á fundi félagsins þrátt fyrir yfirlýstar skoðanir sínar á starfsaðferðum og formanni félagsins. Netamenn, Hvítármenn og neðri hluti árkerfisins þar sem ástand er einna verst, standa ávallt saman með sitt atkvæðamagn, hafa ávallt undirtökin, allar ákvarðanir fyrirfram ákveðnar af formanni félagsins og fylgismönnum sem virðast skeyta engu um válega stöðu okkar villta laxastofns sem drepst í netunum þeirra en virðist hættur að hrygna hjá þeim.
Og svo tölurnar – sem segja allt
Stóra Laxá hefur greitt nær helming rekstrar VÁ undanfarin ár. Samt fær hún enga virðingu, enga innsýn en aðeins hnýtingar og höfnun. Á sama tíma hefur hún fjárfest síðastliðin 3 ár:
· 14 milljónir í vísindastarf
· 12 milljónir í netauppkaup
· 60 milljónir í veiðislóðagerð
· 250 milljónir í nýju veiðihúsi
· 30 milljónir í viðgerðum og stækkun á eldri húsum
· …samtals yfir 360 milljónir án þeirra farartækja sem blotnuðu
VÁ velti 6 milljónum árið 2024 (án styrksins sem við áttum rétt á hluta í). Þetta er ekki líkt félagi – þetta er líkara gervistofnun í andarslitrum.
Það er stutt í að laxinn lendi á válista ICES, en samt veiða netin á fullu og mikið um dráp er á neðri hluta svæðisins og í Hvítá þar sem seiðatölur eru einna verstar, veiðiálag mikið
og lítið um hrygningu. Við erum að greiða fyrir netauppkaup neðar á svæðinu og á Grænlandi, samt erum við vond og ekki virt viðlits. Þessu ber að linna og VÁ virðist vera fornaldarfyrirbæri sem netabændur stýra eins og sást á síðasta aðalfundi. Lögin virðast ekki ná jafnt yfir alla samanber stöðuna í Hvítá í Borgarfirði þar sem sátt ríkir um tilhögun veiða og hver deild/félag vinnur í sínu lagi að uppbyggingarstarfi. Þetta fyrirkomulag í kringum VÁ virkar ekki!
Niðurstaða?
VÁ er ekki lengur lýðræðislegt félag í þjónustu allra veiðiréttarhafa. Það er í höndum klíku sem virðist vilja viðhalda gömlum völdum með leynd, þöggun og fjársóun, völd sem ganga í erfðir en skráður forráðamaður VÁ lést fyrir 20 árum. Þetta verður ekki liðið lengur. Við munum eftir atvikum vekja athygli á stöðu mála og í öðrum tilvikum kæra til réttmætra yfirvalda.
Nú þarf breytingar. Nú þarf uppstokkun. Nú þarf að koma réttinum í hendur þeirra sem raunverulega unna viltu laxastofnunum okkar.
Virðingarfyllst,
F.h. leigutaka Stóru-Laxár og veiðiréttarhafi
Finnur B. Harðarson
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |