Nýr leigutaki með Litluá og Skjálftavatn

Að aflokinni undirritun var stillt upp í myndatöku í hraglandanum …
Að aflokinni undirritun var stillt upp í myndatöku í hraglandanum í Kelduhverfi. Matthías Þór Hákonarson lengst til vinstri, þá stjórn veiðifélagsins. Jónas Þór Viðarsson, Kristinn Rúnar Tryggvason og Kristjana Sigurðardóttir. Gylfi Kristjánsson framkvæmdastjóri R&M er á hægri vængnum. Ljósmynd/Matthías Þór

Fé­lagið R&M ehf hef­ur gert leigu­samn­ing um veiðirétt í Litluá og Skjálfta­vatni í Keldu­hverfi. Matth­ías Þór Há­kon­ar­son er eig­andi R&M en hann leig­ir meðal ann­ars Mýr­arkvísl og Lónsá svo eitt­hvað sé nefnt. Samn­ing­ur milli Matta og stjórn­ar Veiðifé­lags Litlu­ár­vatna var und­ir­ritaður í vik­unni á hót­el­inu í Skúlag­arði.

Matti, eins og hann er ávallt kallaður var hinn ánægðasti með samn­ing­inn sem hef­ur verið und­ir­ritaður og er til fimm ára, frá og með sumr­inu 2026.

Eft­ir að til­boð voru opnuð í Litluá og í ljós kom að fé­lagið var með hæsta boð hef­ur borist mikið af fyr­ir­spurn­um um veiðileyfi. „Já. Það er greini­lega mik­ill áhugi og einn bresk­ur viðskipta­vin­ur sem er bú­inn að vera hjá mér í nokkra daga með hóp er strax bú­inn að panta daga þar á næsta ári,“ sagði Matth­ías í sam­tali við Sporðaköst.

„Hæ, þetta er Al­ista­ir hér. Ég veiddi oft Litluá með Matta hér áður fyrr. Ég get ekki beðið eft­ir því að kom­ast þangað aft­ur. Í síðasta lagi í apríl,“ seg­ir Al­ista­ir sem hafði tekið við sím­an­um af Matta. Þessi breski herramaður er kom­inn á eft­ir­laun og seg­ist elska Ísland. „Ég myndi búa hérna ef veðrið væri aðeins betra,“ hlær hann.

Þessi bátar eru einkar hentugir þegar færð er þung á …
Þessi bát­ar eru einkar hent­ug­ir þegar færð er þung á bakk­an­um og veiðimenn fótafún­ir. Hér er Al­ista­ir í stafni og son­ur Matta skip­stjóri. Ljós­mynd/​Matth­ías Þór

Hann flaug beint með Easy Jet til Ak­ur­eyr­ar og fannst það al­veg him­neskt. „Þetta er svo stutt ferðalag á móti því að lenda í Kefla­vík og taka leigu­bíl þaðan á Reykja­vík­ur­flug­völl og fljúga svo norður. Von­andi mun Easy Jet halda áfram beinu flugi til Ak­ur­eyr­ar. Eini mín­us­inn er að Brynja var lokuð svo við náðum ekki að fá okk­ur ís. Ann­ars allt upp á tíu.“

Síðustu daga hafa þeir verið að veiða ár fyr­ir norðan. Mýr­arkvísl­ina, urriðasvæðið og fleiri staði. Þeir voru mikið til á bát­um og gátu þar af leiðandi farið yfir mun fleiri staði en gang­andi. Bát­arn­ir eru vel út­bún­ir og henta frá­bær­lega fyr­ir veiðimenn með sæti að framan­verðu og hand­fang til að styðja sig við.

Matth­ías seg­ir eng­in áform um breyt­ing­ar í Litluá, enda hafi þeir ákveðið, hann og Gylfi Kristjáns­son fram­kvæmda­stjóri R&M að vera ekki að spá í þetta fyrr en búið væri að ganga frá samn­ingi með form­leg­um hætti.

Alistair búinn að setja í vænan urriða. Hann er afskaplega …
Al­ista­ir bú­inn að setja í væn­an urriða. Hann er af­skap­lega hrif­inn af Íslandi og þeirri aðstöðu sem R&M hef­ur byggt upp. Hann myndi vilja búa á Íslandi ef veðrið væri aðeins betra. Ljós­mynd/​Matth­ías Þór

„Nú er það frá­gengið og auðvitað er maður spennt­ur að end­ur­nýja kynn­in við Litluá. Ég veiddi þarna í mörg ár en svo var maður bara kom­in sjálf­ur með svo mörg svæði að maður fór frek­ar að veiða á þeim. Þá líka til að læra bet­ur og bet­ur á staðina. En nú end­ur­nýj­um við þessi kynni og það verður mjög ánægju­legt.“

Veiðivertíðin hjá Matta er löng og byrj­ar ávallt 1. apríl. Hann er með tölu­verðan fjölda af er­lend­um veiðimönn­um sem koma í vor­veiðina fyr­ir norðan og finnst mörg­um það mikið æv­in­týri og ekki síst þegar vet­ur kon­ung­ur læt­ur til sín taka.

R&M ehf tek­ur form­lega við Litluá og Skjálfta­vatni 1. apríl á næsta ári.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert