Fasi tvö kominn á fullt í vorveiðinni

Páskadagskvöld í Vatnskoti á Þingvöllum. Brynjar Páll Jóhannesson. Þessi urriði …
Páskadagskvöld í Vatnskoti á Þingvöllum. Brynjar Páll Jóhannesson. Þessi urriði mældist 60 sentímetrar og tók Black Ghost. Það er vorkuldi í myndinni. Ljósmynd/Veiðikortið

Fasi tvö er haf­inn í vor­veiðinni. Vatna­veiðin er kom­in á fullt og þjóðgarður­inn á Þing­völl­um tók á móti fyrstu veiðimönn­un­um um páska­helg­ina. Elliðavatn opn­ar svo á fimmtu­dag og við bjóðum sum­arið vel­komið. Fasi eitt er þegar sjó­birt­ingsveiðin hefst í byrj­un apríl en nú er sil­ungsveiðin í vötn­um að taka flugið.

Hrauns­fjörður er far­inn að gefa og fyrstu fisk­arn­ir veidd­ust þar um páska­helg­ina. Bjarni Júlí­us­son ásamt fé­lög­um var að veiðum og fengu þeir bleikj­ur og sjó­birt­ing. Bjarni sagði í sam­tali við Sporðaköst að í Hrauns­firðinum sner­ist þetta fyrst og fremst um hvenær ísa leysti og hlýnaði aðeins. Hann nefndi til sög­unn­ar að komi hlý­indi í viku eða svo „verður mokveiði,“ til­kynnti hann.

Leyni­vopnið Glit­fló

„Nei. Ég hef fengið fiska þarna snemma í apríl. Öllu máli skipt­ir hvenær ísa leys­ir og hvenær fer að hlýna. Stóra bleikj­an er nefni­lega í lón­inu mest allt árið. Lónið er ferskvatn sunn­an til og ísalt að norðan. Í norður­hlut­an­um er marfló sem hún get­ur hámað í sig allt árið,“ upp­lýsti Bjarni þegar hann var spurður um hvort þetta væri óvenju snemmti fyr­ir fyrstu fisk­ana úr Hrauns­firðinum. 

Þetta er Glitflóin. Fallegt nafn á flugu og ekki skemmir …
Þetta er Glit­fló­in. Fal­legt nafn á flugu og ekki skemm­ir að hún er veiðin. Bjarni Júlí­us­son seg­ist oft gera góða veiði á hana í Hrauns­firði og þá sér­stak­lega þegar vor­lit­ur er á lón­inu. Ljós­mynd/​Bjarni Júl

 

Þeir fisk­ar sem þeir fé­lag­ar veiddu komu á Bleika og bláa og á Rauðvín. Vissu­lega reyndu þeir fé­lag­ar marfló og ekki síður leyni­vopnið, Glit­fló. Fal­legt nafn á flugu og hef­ur gefið Bjarna góða veiði í gegn­um árin í lón­inu. „Sér­stak­lega hef­ur Glit­fló gefið mér vel þegar vatnið er með ör­litl­um vor­lit.“ Sporðaköst­um finnst fátt skemmti­legra en þegar menn deila leyni­vopn­um eða stöðum. Þarna er kom­in fluga til að reyna í Hrauns­firðinum. Svo skyldu menn ekki mæta þar nema hafa Langskegg­inn við hend­ina.

Lítið um stóra í Þing­valla­vatni

Þing­valla­vatn tók á móti fyrstu veiðimönn­un­um um pásk­ana. Einn af þeim sem læt­ur sig ekki vanta er Cez­ary Fijalkowski. Hann gerði fína veiði um pásk­ana og landaði þar sautján urriðum. Nú eru breytt­ir tím­ar. Fyr­ir nokkr­um árum voru urriðamiðin sem Cez­ary og fé­lag­ar stunda full af stór­urriða. Al­geng­ir fisk­ar á bil­inu átta­tíu og yfir níu­tíu sentí­metra. Af þess­um sautján sem Cez­ary og fé­lag­ar lönduðu var aðeins einn sem telst stór. Hann var 83 sentí­metr­ar. Hinir voru all­ir á bil­inu 50 til 65 sentí­metr­ar. Öðru­vísi mönn­um áður brá.

Mörg fleiri vötn hafa opnað. Meðal­fells­vatn, Kleif­ar­vatn og fleiri staðir sem eiga pláss í hjört­um veiðimanna. Veiðikortið er eins og venju­lega ein bestu kaup sem hægt er að gera þegar kem­ur að veiðileyf­um. Það veit­ir aðgang að 37 vötn­um víðsveg­ar um land og kost­ar enn og aft­ur 9.900 krón­ur. Ingi­mund­ur Bergs­son sem haldið hef­ur utan um kortið seg­ir óbreytt verð, enn eitt árið vera lið í því að sporna við verðbólgu. All­ir taka ofan fyr­ir þeim áform­um.

Þessi urriði var í kringum 80 sentímetrar. Cesary Fijalkowski fékk …
Þessi urriði var í kring­um 80 sentí­metr­ar. Ces­ary Fijalkowski fékk þenn­an um helg­ina. Af sautján fisk­um sem hann var með voru all­ir á bil­inu 50 til 65 sentí­metr­ar nema þessi. Öðru­vísi hon­um áður brá. Ljós­mynd/​Cez­ary Fijalkowski

 

Sum­ar­hátíð við Elliðavatn

Á face­booksíðu Veiðikorts­ins er reglu­lega hægt að sjá mynd­ir og frétt­ir af veiði víðsveg­ar að og eru kort­haf­ar greini­lega dug­leg­ir við að senda mynd­ir þegar vel geng­ur.

Svo er stóri dag­ur­inn á fimmtu­dag. Sum­ar­dag­ur­inn fyrsti er líka dag­ur­inn sem Elliðavatn opn­ar. Marg­ir bíða í of­væni eft­ir því. Verður­spá­in er al­veg spenn­andi fyr­ir þann dag. Kalt í morg­uns­árið en hlýn­ar hressi­lega þegar líður á morg­un­inn og miðað við kort Veður­stof­unn­ar fer hiti í tólf gráður. Það gef­ur góð fyr­ir­heit. Hátíðardag­skrá verður í boði við Elliðavatn á fimmtu­dag og mun­um við gera bet­ur grein fyr­ir henni þegar nær líður.

Keyptu I Guðmunds­son

Veiðiportið hef­ur keypt heild­versl­un­ina I Guðmunds­son ehf. Heild­sal­an hef­ur starfað óslitið frá ár­inu 1932 og flutt inn mikið af veiðivör­um og selt til veiðiversl­ana og annarra dreif­ingaaðila und­ir merk­inu IG veiðivör­ur. 

Tómas og Katrin G. Whalley hafa keypt I Guðmundsson.
Tóm­as og Katr­in G. Whalley hafa keypt I Guðmunds­son. Ljós­mynd/​Tóm­as Skúla­son

 

Hjón­in Tóm­as Skúla­son og Katr­in G. Whalley sem eiga og reka Veiðiportið Grandag­arði hafa þar með tekið við kefl­inu af Hauki Bachmann sem átti heild­versl­un­ina og hef­ur verið and­lit henn­ar ára­tug­um sam­an. 

„Þetta er spenn­andi skref fyr­ir okk­ur. Við stefn­um að því að auka vöru­úr­valið og koma með ýms­ar nýj­ung­ar bæði þegar kem­ur að vöru­úr­vali og nýj­um vörumerkj­um. Nú verður I Guðmunds­son á net­inu og geta all­ir end­ur­söluaðilar og út­gerðir skráð sig inn og gengið frá sín­um pönt­un­um hratt og ör­ugg­lega,“ upp­lýsti Tóm­as í sam­tali við Sporðaköst.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert