Elliðavatnið tók vel á móti veiðimönnum

Alfreð Maríusson er alltaf með einn af fyrstu fiskum sumarsins. …
Alfreð Maríusson er alltaf með einn af fyrstu fiskum sumarsins. Þennan urriða tók hann í Helluvatni. Ljósmynd/Veiðikortið

Það var hátíðarbrag­ur yfir Elliðavatns­bæn­um í morg­un þegar veiði- og úti­vistar­fólk fagnaði komu sum­ars. Fjöldi fólks var mætt­ur til að þiggja klein­ur, kaffi og visku djúp­vitra veiðisér­fræðinga. Svo voru aðrir sem voru mætt­ir til að veiða.

Þarna tók hann, benti Geir Thorsteinsson í átt að Engjunum. …
Þarna tók hann, benti Geir Thor­steins­son í átt að Engj­un­um. Hann hef­ur veitt í Elliðavatni í sjö­tíu ár. Geir nældi sér í tvo og það dug­ar í soðið. Ljós­mynd/​Sporðaköst

Það er mis­jafnt hvar Íslend­ing­ar velja að láta sér verða kalt á sum­ar­dag­inn fyrsta. Eft­ir kalsa­sama ríf­leg­an norðan­vind snemma í morg­un, hægði aðeins þegar leið á morg­un­inn. Menn voru að setja í hann. Geir Thor­steins­son var að vanda mætt­ur og hann valdi að fara á Engjarn­ar. „Ég náði tveim­ur urriðum og er kom­inn með í soðið, þá er ég góður. Þeir tóku báðir brún­an Nobbler. Hann er lík­ast­ur horn­síl­inu eða seiði,“ sagði Geir í sam­tali við Sporðaköst.

Brúnn Nobbler gerði það sem þurfti hjá Geir.
Brúnn Nobbler gerði það sem þurfti hjá Geir. Ljós­mynd/​Sporðaköst

Fjöl­marg­ir veiðisér­fræðing­ar voru mætt­ir til að fræða viðstadda um líf­ríkið og leynd­ar­dóma Elliðavatns. Topp­flug­an er mætt og Ingi­mund­ur Bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Veiðikorts­ins og Stanga­veiðifé­lags Reykja­vík­ur sagðist hafa séð þær í gær­kvöldi. „Það var magnað þegar við vor­um að und­ir­búa hér í gær­kvöldi. Þá var stafa­logn og vatnið kraumaði fyr­ir neðan bæ­inn. Þetta voru ekki tug­ir fiska. Þetta var ör­ugg­lega meira en hundrað sem ég sá. Þeir voru að éta á fullu rétt und­ir yf­ir­borðinu,“ upp­lýsti Ingi­mund­ur.

Það var vart þverfótað fyrir sérfræðingum við Elliðavatn í dag. …
Það var vart þver­fótað fyr­ir sér­fræðing­um við Elliðavatn í dag. Hér er Cadd­is­bróðir­inn Hrafn Ágústs­son upp­veðraður af því sem hann heyr­ir. Ljós­mynd/​Sporðaköst

Eitt af því sem ekki breyt­ist er slæmt ástandið á veg­in­um inn í Heiðmörk og að Elliðavatns­bæn­um. Veg­ur­inn er þetta árið með betra móti og vel fær fólks­bíl­um. Kári Gylfa­son verk­efna­stjóri hjá Skóg­rækt Reykja­vík­ur flutti smá tölu í upp­hafi mál­stof­unn­ar um Elliðavatn. Eft­ir að hann hafði lokið máli sínu, þar sem hann fór yfir Heiðmerk­ur­svæðið og hvað það hefði upp á að bjóða fékk hann spurn­ingu úr sal. Hvort hann styddi það að loka Heiðmörk fyr­ir bílaum­ferð, eins og Veit­ur hafa nefnt sem hug­mynd. Kári sagðist bara geta talað fyr­ir sig per­sónu­lega en sér fynd­ist skjóta skökku við að Suður­lands­veg­ur með sína gríðar­miklu um­ferð væri spöl­korn í burtu en svo veltu menn fyr­ir sér að loka um­ferð bíla um Heiðmörk. Það er reynd­ar áhuga­verð hugs­un hjá Kára og sýn­ir kannski best hversu lítt þessi hug­mynd Veitna er mótuð.

Feðgarnir Einar Birkir, sem er alveg að verða fjögurra ára …
Feðgarn­ir Ein­ar Birk­ir, sem er al­veg að verða fjög­urra ára og Bene­dikt voru mætt­ir. Ljós­mynd/​Sporðaköst

Kyn­slóðirn­ar mæt­ast

Þarna mætt­ust kyn­slóðir. Kyn­slóðabil þekk­ist þó ekki í veiðinni. Áhug­inn er sá sami hver sem ald­ur­inn er. Geir Thor­steins­son hló að því að senni­lega væri þetta sjö­tug­asta árið sem hann væri mætt­ur í vatnið. Sem hann rifjaði þetta upp og henti gam­an af var einn þriggja ára, Ein­ar Birk­ir Bene­dikts­son í fang­inu á pabba sín­um að sveifla flugu­stöng. Pabb­inn, Bene­dikt Geir Jó­hann­es­son var mætt­ur með unga veiðiá­huga­mann­inn, sem vel að merkja verður fjög­urra ára 13. októ­ber. Þeir feðgar eru bún­ir að vera dug­leg­ir í vor­veiðinni og hafa landað fjór­um fisk­um í apríl. Auðvitað var kastað aðeins þó að gol­an væri köld. Það er þó rétt að nefna það að loft­hiti náði tveggja stafa tölu þegar leið á morg­un­inn. Það er ekki sjálf­gefið á sum­ar­dag­inn fyrsta.

Al­freð Maríus­son var bú­inn að gera veiði í Hellu­vatni, eins og hans er von og vísa á þess­um fyrsta veiðidegi í vatn­inu. Conrad er einn af þeim sem stund­ar vatnið mikið og hann hafði líka fengið fal­leg­an urriða.

Ekki spurning hvort, heldur hvenær. Björg Rún klár með háfinn …
Ekki spurn­ing hvort, held­ur hvenær. Björg Rún klár með háfinn við fyrsta kast hjá sín­um mönn­um. Ljós­mynd/​Sporðaköst

Nestið skipt­ir miklu máli

Svo voru aðrir sem mættu með full­ir vissu um að hann myndi bíta á. Þannig var Björg Rún Óskars­dótt­ir klár með háfinn áður en að Óskar Tryggva­son og Tryggvi Ing­ólfs­son náðu að kasta. Það er gott að hafa trú á sínu fólki. „Nestið skipt­ir miklu máli, sér­stak­lega fyr­ir ungu veiðimenn­ina. Reynd­ar hef­ur maður­inn minn ekki vaxið upp úr því og það skipt­ir hann líka miklu máli,“ sagði Björg og lagði ekki frá sér háfinn. Var til­bú­in.

Feðgarnir tóku nokkur köst. Hitamælirinn sagði tíu gráður. Þá þurftu …
Feðgarn­ir tóku nokk­ur köst. Hita­mæl­ir­inn sagði tíu gráður. Þá þurftu menn að finna skjól til að njóta þeirra. Ljós­mynd Sporðaköst

Fyr­ir þá sem hugsa sér til hreyf­ings með unga veiðimenn upp í Elliðavatn er rétt að stíla inn á að fara snemma dags eða þegar langt er liðið á dag. Sér­fræðing­arn­ir segja að það sé besta veiðin snemma á morgn­ana og á kvöld­in. Svo er ekk­ert verra að vind­ur sé hæg­ur. Þá sjást fisk­ar vaka og það hjálp­ar oft að halda veiðimönn­um við efnið.

Sum­ar­hátíð veiðimanna er skipu­lögð af Veiðikort­inu, SVFR, Skóg­rækt­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur og Veiðifé­lagi Elliðavatns. Dag­skrána skipu­lögðu fræðslu­nefnd og ung­menna­fé­lag SVFR ásamt Skóg­rækt­ar­fé­lag­inu.

Conrad með einn fallegan urriða úr Helluvatni.
Conrad með einn fal­leg­an urriða úr Hellu­vatni. Ljós­mynd/​Veiðikortið

Hátíðin er orðin fast­ur liður hjá mörg­um og er til fyr­ir­mynd­ar. Boðið var upp á klein­ur, safa og kaffi fyr­ir utan alla fræðsluna og skemmti­lega afþrey­ingu fyr­ir yngri kyn­slóðina.

Sporðaköst óska öllu veiðifólki gleðilegs sum­ars og hlökk­um til að sjá all­ar mynd­irn­ar af af­rek­un­um sem framund­an eru.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert