„Alveg geggjuð veiði“

Vatnakarpinn verður býsna stór og hefur Dagur Árni verið að …
Vatnakarpinn verður býsna stór og hefur Dagur Árni verið að fá reglulega tuttugu plús fiska. Það eru hrygnurnar sem koma upp úr dýpinu þegar aðstæður eru réttar. Ljósmynd/Dagur Árni

Hann er að lifa draum­inn. Draum flestra veiðimanna. Yfir sum­ar­tím­ann er hann að veiða Íslandi og í leiðsögn með veiðimenn. Eins og far­fugl­arn­ir held­ur hann svo á nýj­ar slóðir þegar haust­ar. Þá ligg­ur leiðin til Kali­forn­íu. Á Íslandi er það lax og sil­ung­ur en þegar út kem­ur er það fyrst og fremst vatnakarpi með vart­ara ívafi og sitt hverju fleira. Þetta er hann Dag­ur Árni Guðmunds­son. Frá ára­mót­um hef­ur hann aðstoðað veiðimenn í Kali­forn­íu en er nú far­inn að hugsa heim eins og lax­inn. Við feng­um hjá hon­um skýrslu um hvernig vet­ur­inn og vorið hef­ur farið með hann og viðskipta­vini í Kali­forn­íu.

Fallegur fiskur röndótti vartarinn eða striped bass. Dagur hefur landað …
Fal­leg­ur fisk­ur rönd­ótti vart­ar­inn eða striped bass. Dag­ur hef­ur landað mörg­um svona það sem af er veiðitíma í Kali­forn­íu. Ljós­mynd/​Dag­ur Árni

„Carp veiðin vet­ur­inn og vorið 2025 hef­ur verið með betri árum sem ég hef séð hérna úti. Eft­ir tvö ár með mikl­um vetr­arrign­ing­um og flóðum á veiðisvæðunum mín­um feng­um við frek­ar þurr­ann vet­ur í ár, sem hef­ur breytt veiðinni tölu­vert frá síðustu árum,“ upp­lýs­ir Dag­ur í sam­tali við Sporðaköst. Hann not­ar ensku heit­in yfir fisk­ana og seg­ir þau þjálli. Viður­kenn­ir líka að hann hafi ekki þurft að ís­lenska þessi heiti og hlær.

Stór vatnakarpi, eða carp eins og Dagur kallar þá upp …
Stór vatnakarpi, eða carp eins og Dag­ur kall­ar þá upp á kali­forn­ísku, nálg­ast háfinn. Þá er til­valið að smella mynd. Ljós­mynd/​Dag­ur Árni

Mik­il hita­sveifla hef­ur áhrif

„Í janú­ar var mjög þurrt, kalt á nótt­unni og heitt yfir dag­inn. Þegar ég mætti á morgn­ana var hita­stigið oft­ast langt und­ir frost­marki, allt niður í mín­us sex gráður. Hita­sveifl­an hér er mik­il og oft var kom­inn tutt­ugu stiga hiti eft­ir há­degi. Þetta gerði það að verk­um að veiðin var ró­leg fyrri hluta dags, en svo kom al­veg risa mý­fluguklak eft­ir há­degi og þegar það byrj­ar koma hundruð carpa upp í yf­ir­borðið og ef maður nær löng­um og ná­kvæm­um köst­um á þá með þurrflug­unni, var veiðin mjög, mjög góð.

Hér er teppalagt af fiski. Þetta er white bass og …
Hér er teppa­lagt af fiski. Þetta er white bass og þegar vatns­magnið er rétt er hægt að lenda í moki, eins og Dag­ur seg­ir frá. En þessi tími stend­ur bara yfir í tvær til þrjár vik­ur. Ljós­mynd/​Dag­ur Árni

 

Fe­brú­ar var svo heit­ari, en inn á milli kom rign­ing sem breytti veiðinni tölu­vert frá janú­ar. Vatnið hækkaði aðeins og flæddi yfir stór­ar grynn­ing­ar, og veiðinni var skipt á milli mý­fluguklaks og stærri skor­dýra sem enda í vatn­inu eins og bjöll­ur, engisprett­ur, og svo­leiðis. Það sem ein­kenn­ir fe­brú­ar fyr­ir mig er samt að stærri fisk­arn­ir byrja að koma upp úr dýp­inu, svo­kallaðir „Schlon­kers,“ stór­ar tutt­ugu plús punda hrygn­ur sem ann­ars koma ekki upp á grynn­ing­arn­ar svo oft.

Kátur viðskiptavinur með einn af stærri gerðinni.
Kát­ur viðskipta­vin­ur með einn af stærri gerðinni. Ljós­mynd/​Dag­ur Árni

 

Það var mjög góð veiði í ánum hérna fyr­ir striped bass, sem ganga úr sjó og upp í árn­ar til að hrygna og borða regn­boga­seiði. Ég átti marga góða daga að veiða striped bass á ósa­svæðum í fe­brú­ar, þar sem maður sér fisk­ana koma inn á flóðinu og gat oft lent í 20 - 30 fiska dög­um á straum­flug­ur í yf­ir­borðinu. Maður sér all­ar tök­urn­ar, sem eru eins og urriðatök­ur á ster­um, og fisk­arn­ir eru fal­lega silfraðir og gott að taka nokkra með sér heim þar sem þetta er mjög góður mat­fisk­ur svona fersk­ur úr sjón­um.

Mag­ur mars sem endaði vel

Svo kom mars, sem hef­ur síðustu ár gefið mér mikið magn af fiski, en brást smá í ár. Veðrið var óstöðugt, og carp­inn datt ekki í gott stuð fyrr en um lok mánaðar­ins, en það sem bjargaði mars var að crappie og bass veiðin var al­veg geggjuð. Crappie eru mjög skemmti­leg­ir fisk­ar sem koma á grynn­ing­arn­ar á þess­um tíma, og eru lík­lega bestu mat­fisk­arn­ir í ferskvatni hérna á svæðinu. En til sam­an­b­urðar við mars í fyrra, þá landaði ég yfir 300 carp í mars 2024, en bara 57 í ár.

Þetta eru sterkir fiskar og þegar þeir eru komnir í …
Þetta eru sterk­ir fisk­ar og þegar þeir eru komn­ir í þessa stærð eru þetta mikl­ar viður­eign­ir. Bæði þurrfluga og straum­flug­ur eru að virka, of­ur­lítið eft­ir aðstæðum. Ljós­mynd/​Dag­ur Árni

 

Apríl hins­veg­ar var æðis­leg­ur, ég byrjaði mánuðinn á ferðum sem ég er með á hverju ári, þar sem við tök­um stór­an pontoon bát, sem er eins kon­ar flat­byttna, og þver­um langt vatn hérna, ferðin tek­ur um eina og hálfa klukku­stund til að kom­ast að ósn­um sem áin renn­ur í vatnið. Áin er krist­al­tær, og stút­full af white bass, spotted bass, small­mouth bass og mean mouth bass, sem er blend­ing­ur af spotted bass og small­mouth bass. White bass er í svo miklu magni þarna að botn­inn sést varla, og þess­ir 1 – 3 punda fisk­ar berj­ast um hver fær að taka straum­flug­una, og það er ekki óal­gengt að fólk sé að landa 30 – 50 svona fisk­um á 4 – 5 klukku­tím­um. Þetta er al­veg ein­stak­ur staður, en er bara virk­ur í tvær til þrjár vik­ur eft­ir vatns­magni. Eft­ir þess­ar ferðir fór fókus­inn al­veg yfir á carp aft­ur, og veiðinn fór í al­gjört over­dri­ve. 266 carp landað í apríl, og nokkr­ir dag­ar með 50 – 70 fiska veiði. Fisk­ar á grynn­ing­um „tail­ing,“ sem sagt að borða af botn­in­um en á ökkla til hné­djúpu vatni, þannig að sporður­inn er oft upp úr vatn­inu. Þetta eru mest fisk­ar í 6 – 10 punda stærðarflokk­um, en maður er að sjá eða landa fisk­um um 20 pund­in nokkr­um sinn­um á viku. Al­veg geggjuð veiði.

Þessi er herramannsmatur segir Dagur. Hann kallar þá crabbie. Er …
Þessi er herra­manns­mat­ur seg­ir Dag­ur. Hann kall­ar þá crabbie. Er hann fal­leg­ur eða hvað? Ljós­mynd/​Dag­ur Árni

 

Erfitt líf í Kali­forn­íu

266 fisk­ar í apríl, og maí hef­ur verið á svipuðu róli til þessa. Al­veg klikkuð veiði á ótrú­lega skemmti­leg­um og sterk­um fisk­um. Stærsti dag­ur­inn hingað til í ár eru 75 fisk­ar sem ég landaði 5. maí, eða „Cinco de Mayo,“ og þeirri veiði var fagnað með stórri burrito og juicy Marga­rita drykk. Þetta er erfitt líf hérna í Kali­forn­íu.“ Okk­ar maður í Kali­forn­íu glott­ir.

Svona verðlauna menn sig í Kaliforníu þegar vel gengur. Burrito.
Svona verðlauna menn sig í Kali­forn­íu þegar vel geng­ur. Burrito. Ljós­mynd/​Dag­ur Árni

 

Nú er hann far­inn að hugsa heim. Það stytt­ist í að sá silfraði, atlants­hafslax­inn mæti til Íslands. Ytri Rangá verður hans lög­heim­ili í sum­ar. Dag­ur er svo heltek­inn af veiðiá­stríðu að það kem­ur oft fyr­ir þegar hann er í leiðsögn að í hlé­inu gríp­ur hann með sér sam­loku og í stað þess að leggja sig brun­ar hann upp á urriðasvæðið í Ytri og kast­ar þar fyr­ir urriða. Flest­ir leiðsögu­menn nýta hléið til að ná sér í smá kríu en Dag­ur vill frek­ar kom­ast í veiði sjálf­ur. Svo er hann mætt­ur aft­ur þegar seinni vakt­in byrj­ar. Þetta er ástríða.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert