Er hægt að hugsa sér betri kennslustofu fyrir námskeið í fluguveiði, en Bugðu í Kjós? Sennilega ekki. Átján gráðu hiti, glampandi sól, fallegir forvitnir íslenskir hestar og tökuglaðir urriðar. Þetta var umhverfið sem blasti við þátttakendum á námskeiðinu sem Simon Gawesworth og Katka Svagrova stóðu fyrir í morgun og hafa gert undanfarna daga.
Sporðaköst tóku hús hópnum í morgun. Áður en hægt var að bjóða góðan daginn heyrðist kallað, „Við erum allar búnar að fá fisk,“ risastórt bros fylgdi svo þessari tilkynningu. Hópurinn hafði skipt liði en dagurinn í dag var eingöngu fyrir konur. Hann seldist upp á augabragði. Simon var með þrjá nemendur og Katka þrjá. Þegar fjöldinn er ekki meiri fá allir afbragðs tilsögn.
„Það er búin að vera svo mikil veiði,“ hlær Katka um leið og hún bítur í epli. „Fólk á námskeiðinu hjá okkur er búið að fá yfir tvö hundruð fiska. Það er svo gaman og fólk er fljótara að ná tökum á því sem við erum að kenna þegar það upplifir hlutina að virka.“
Það er einstakt að fá svona kennara til landsins eins og þau Katka og Simon eru. Katka er margfaldur heimsmeistari í fluguveiði kvenna og Simon eitt þekktasta nafn í bransanum í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað.
Tekið var tillit til ólíkrar getu eða öllu heldur reynslu þátttakenda. Farið var yfir alla megin þætti. Köst, tauma og veiðiaðferðir. Púpur í andstreymisveiði og svo ekki síður þurrfluguveiði.
Hluti af hópnum sem mætti í morgun var að koma í annað skiptið. „Bæði er þetta svo mögnuð veiði að það eitt og sér er frábært og svo er svo mikið af ráðleggingum og ábendingum að það er bara betra að fara tvisvar,“ sagði Helga Gísladóttir sem var að mæta annað árið í röð.
Nokkru neðar var Anna Ingvarsdóttir búin að setja í enn einn urriða. Hún landaði honum fagmannlega og leit upp og sagði. „Búin að fá tvo hérna. Geggjað.“
Já það var svo sannarlega fjör í fallegustu kennslustofu landsins i morgun. Þurfti engar frímínútur því námskeiðið allt var hreinlega frímínútur.
Þeir sem vilja nota tækifærið og bergja af viskubrunni þeirra Simon og Kötku eiga enn séns. Þau mæta í Veiðihornið í Síðumúla síðdegis, eða klukkan 18:30 og munu þar ræða veiði, búnað og tækni. Það er enn séns að komast þar að fyrir áhugasama.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |