Spádómar um laxveiðina í sumar

Frá Upptaktinum í fyrra. Guðni Guðbergsson fléttar hér fyrirvara um …
Frá Upptaktinum í fyrra. Guðni Guðbergsson fléttar hér fyrirvara um spá fyrir sumarið 2024. Stofnunin spáði betra sumri. Það reyndist rétt spá. Ný spá verður kynnt næstkomandi fimmtudag. Ljósmynd/Sporðaköst

Spá Haf­rann­sókna­stofn­un­ar fyr­ir laxveiðisum­arið 2025 verður kynnt í næstu viku. Síðustu ár hef­ur stofn­un­in boðið til vor­fund­ar í maí, þar sem farið er yfir stöðuna og horf­ur metn­ar. Upp­takt­ur að veiðisumri kall­ast fund­ur­inn. Flutt verða fimm áhuga­verð er­indi um mál­efni sem tengj­ast ferskvatns­fisk­um. Augu flestra bein­ast að fyrsta lið á dag­skrá þar sem Guðni Guðbergs­son mun fara yfir veiðina og ástand stofna. Það er­indi mun á var­fær­inn hátt, eins og vís­inda­mönn­um er ein­um lagið, draga fram spá Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Spá gervi­greind­ar­inn­ar

Til að fá sam­an­b­urð þá spurðum við gervi­greind­ina hvernig laxveiðin yrði á Íslandi í sum­ar. Eft­ir að sú skrítna skepna hafði beðist af­sök­un­ar á að tala ekki ís­lensku svaraði hún í ann­ari til­raun á ensku: „Salmon fis­hing in Ice­land is expected to be fant­astic this sum­mer.“ Eða Bú­ist er við því að laxveiðin á Íslandi í sum­ar verði frá­bær. Gam­an að sjá að gervi­greind­in til­eink­ar sér bjart­sýni veiðimanna og er alls ekki að halda aft­ur af sér.

Sporðaköst ákváðu að setja fram eig­in spá til að bera sam­an við bæði það sem gervi­greind­in held­ur fram og einnig til að mæla við spá Guðna Guðbergs­son­ar sviðsstjóra ferskvatns– og eld­is­sviðs stofn­un­ar­inn­ar.

Spá Sporðak­asta

Sporðaköst spá góðri byrj­un á sumr­inu. Útlit er fyr­ir að tveggja ára lax­inn verði meiri en und­an­far­in ár, þegar horft er til þess að smá­lax­inn í fyrra var í tölu­vert meira magni en nokk­ur ár þar á und­an. Það gæti sum­sé orðið stuð fram­an af sumri. Svo er það smá­lax­inn. Ef við leyf­um okk­ur að rýna í hita­töl­ur sem Sig­urður Már Ein­ars­son og fé­lag­ar hafa haldið utan um, ættaðar af því svæði sem laxa­seiði halda til á unga aldri þá er staðan ekki eins spenn­andi og gervi­greind­in virðist vera að túlka. Sjáv­ar­hiti á fæðuslóðinni lækkaði milli ára. Það bend­ir til þess að minna verði af smá­laxi en í fyrra. Það gæti út­lagst þannig að ág­úst verði ró­leg­ur mánuður. Haust­veiðin stend­ur svo alltaf fyr­ir sínu. Niðurstaðan er sú að sum­arið verði und­ir meðallagi en að gæðin verði meiri. Fleiri stór­ir lax­ar en færri haus­ar þegar upp er staðið. Hver vill ekki frek­ar landa ein­um stór­um á móti tveim­ur litl­um?

Upptaktur að veiðisumrinu 2025 verður á fimmtudag. Þessir vorfundir Hafrannsóknastofnunar …
Upp­takt­ur að veiðisumr­inu 2025 verður á fimmtu­dag. Þess­ir vor­fund­ir Haf­rann­sókna­stofn­un­ar eru gott fram­tak og hafa vakið at­hygli. Hér má sjá hluta fund­ar­gesta í fyrra. Ljós­mynd/​Sporðaköst

Stóru áhrifaþætt­irn­ir eru þrír. Vatns­bú­skap­ur. Veru­leg­ar lík­ur eru á vatns­leysi nema rign­ing­ar verði stöðugar og um­tals­verðar. Lít­ill sem eng­inn snjór er víða í fjöll­um þannig að fljót­lega gæti orðið lítið í ám verði þurrka­sum­ar. Hnúðlax er ein spurn­ing­in. Minna var af hon­um sum­arið 2023 en marg­ir óttuðust. Hnúðlax hrygn­ir nú orðið í öll­um lands­hlut­um og ómögu­legt er að segja fyr­ir um magnið sem vitj­ar æsku­stöðva. Loks er það fjöldi smá­laxa, eins og fyrr seg­ir.

Sam­kvæm­is­leik­ur?

Spá­dóm­ar eru í besta falli sam­kvæm­is­leik­ur þegar kem­ur að laxveiði næsta sum­ars. Við vit­um að það verður fisk­ur og veiðit­úr­inn verður æv­in­týri hvað sem spá­dóm­arn­ir segja. Sporðaköst munu í það minnsta halla sér að spá gervi­greind­ar­inn­ar fyr­ir þá veiðit­úra sem framund­an eru. 

Þá er bara að heyra hvað Guðni Guðbergs­son dreg­ur upp úr hatt­in­um á fundi Hafró næst­kom­andi fimmtu­dag. Þó svo að kast­ljósið bein­ist að horf­um sum­ars­ins verða flutt fleiri áhuga­verð er­indi eins og sjá má á dag­skránni hér að neðan.

Veiðin og ástand stofna
Guðni Guðbergs­son sviðsstjóri ferskvatns- og eld­is­sviðs Haf­rann­sókna­stofn­un­ar

Það veiðist vel í Veiðivötn­um
Magnús Jó­hanns­son fiski­fræðing­ur

Ferskvatn + fisk­ur = ferskvatns­fisk­ur
Ey­dís Salome Ei­ríks­dótt­ir jarðefna­fræðing­ur

Vís­inda­skáld­skap­ur og raun­hæf­ing­ar: hvernig nýt­ist erfðafræði við vökt­un ?
Áki Jarl Láru­son stofnerfðafræðing­ur

Sjúk­dómastaða villtra ís­lenskra lax­fiska
Árni Krist­munds­son, fisk­sjúk­dóma­fræðing­ur á Keld­um

Fyr­ir áhuga­sama er hægt að fara inn á heimasíðu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og skrá sig til mæt­ing­ar eða til fylgj­ast með fund­in­um á Teams, fyr­ir þá sem hafa áhuga.

Gervi­greind­in og Sporðaköst hafa sett fram sína spá. Guðni Guðbergs­son fær orðið á fimmtu­dag.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert