„Eins og að fá 30 pundara í Aðaldalnum“

Með þessa líka bleikjuna úr Vífilsstaðavatni. Ríflega sjötíu sentímetrar. Henni …
Með þessa líka bleikjuna úr Vífilsstaðavatni. Ríflega sjötíu sentímetrar. Henni var sleppt og er því áfram í fæðuleit í vatninu. Ljósmynd/Sigurður G. Duret

Sig­urður G. Duret ákvað að skella sér í Víf­ilstaðavatn í blíðunni í dag. Hann hafði aldrei veitt áður í vatn­inu og vissi svo sem ekki mikið um það. Það voru tutt­ugu gráður, gola og lífið var ljúft um há­degi þegar hann mætti. Fyrst fékk hann tvær ríf­lega punds bleikj­ur, eins og marg­ir þekkja úr Víf­ilsstaðavatni. Hann var með stöng fyr­ir línu fimm, Faro click bremsu­laust hjól og valdi grennsta taum­inn sem hann fann. „Þetta var tveggja eða þriggja punda taum­ur. Ég setti svo und­ir Zebra midge núm­er sex­tán. Í svona þriðja kasti þegar flug­an var ný­lega lent sá ég töku­var­ann hverfa. Ég fann strax að þessi hagaði sér öðru­vísi en hinar. Grunaði jafn­vel að ég hefði húkkað í hana og þess vegna væri hún svona tryllt. Svo þegar ég sá hana fékk ég bara sjokk,“ sagði Sig­urður í sam­tali við Sporðaköst.

Þetta varð hörku viður­eign eins og gef­ur að skilja. Bremsu­laust hjól og nett­ar græj­ur. Hún rauk líka langt niður á und­ir­línu og mittis­vöðlurn­ar dugðu ekki til. Sig­urður fór upp fyr­ir þegar hann var elta þessa kröft­ugu bleikju. Loks­ins kom hún á land og hann ætlaði ekki að trúa sín­um eig­in aug­um.

Hér sést enn betur hvílkur bolta fiskur þetta. Úlfar Hrafn …
Hér sést enn bet­ur hvílk­ur bolta fisk­ur þetta. Úlfar Hrafn er svo ekk­ert að stressa sig á þessu. Meira bara að njóta þess að vera ber að ofan í maí á Íslandi í þess­ari ein­muna blíðu. Ljós­mynd/​Sig­urður G. Duret

Hann var ekki með mál­band þannig að hann klippti taum eins lang­an og ná­kvæm­an og hann gat. Þegar í bíl var komið mældi hann taum­inn. Sú mæl­ing stóð 73 sentí­metra. „Auðvitað er þetta ekki ná­kvæm mæl­ing en það er pottþétt að hún var 70 plús. Ég fattaði ekk­ert að þetta væri merki­leg­ur fisk­ur af því að ég veit svo sem ekki mikið um vatnið. En eft­ir að ég birti mynd­ir af bleikj­unni hafa marg­ir hringt í mig og all­ir bara í sjokki. Miðað við viðbrögðin sem ég hef fengið þá virðist þetta vera eins og að fá þrjá­tíu pund­ara í Laxá í Aðal­dal,“ sagði Sig­urður kát­ur.

Í Skýrslu sem Haf­rann­sókna­stofn­un vann árið 1998 um líf­ríki Víf­ilsstaðavatns kom fram að þeir fisk­ar sem veidd­ir voru í rann­sókn­ar­skyni voru bæði ung­bleikja, á bil­inu 15 til 18 sentí­metr­ar og full­orðnu bleikj­urn­ar voru mest á bil­inu 25 til 32 sentí­metr­ar. Auðvitað er nokkuð um liðið en sjö­tíu sentí­metra bleikja er happa­feng­ur í Víf­ilsstaðavatni og líka til í öll­um bleikju­vötn­um.

Sig­urður sleppti bleikj­unni þannig að nú vita þeir sem á eft­ir koma að risa­bleikja svaml­ar í vatn­inu og þessa dag­ana hrífst hún af Zebra midge, núm­er 16.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert