Blöndubændur bjartsýnir á sumarið

Langidalur sem Blanda liðast um. Lónið er nánast fullt og …
Langidalur sem Blanda liðast um. Lónið er nánast fullt og yfirfall yfirvofandi. Guðmundur Haukur varaformaður veiðifélagsins telur ekki ástæðu til að hafa áhyggjur. Sagan sýni það. www.mats.is
Yf­ir­borð Blönd­u­lóns gutl­ar nú nán­ast við efstu mörk stíflu­mann­virkja. Ein­ung­is vant­ar fimm sentí­metra upp á að yf­ir­fall verði. Guðmund­ur Hauk­ur Jak­obs­son vara­formaður Veiðifé­lags Blöndu og Svar­tár seg­ir ekki ástæðu til að hafa mikl­ar áhyggj­ur af stöðunni og er þá að horfa til laxveiðitíma­bils­ins sem er hand­an við mánaðamót. Þykir Guðmundi Hauki að skrif Sporðak­asta um að hætta væri á að Blanda yrði ill­veiðan­leg í sum­ar, væri orðum aukið.
„Við átt­um fund með Lands­virkj­un og fór­um yfir stöðuna á vatns­hæð lóns­ins og kom­andi veiðisumri. Starfs­menn Lands­virkj­un­ar sögðu að út­litið væri ekki eins slæmt og menn hafa áhyggj­ur af gagn­vart yf­ir­falli og því til staðfest­ing­ar fóru þeir yfir tölu­leg gögn og staðreynd­ir í gegn um tíðina varðandi sögu vatns­hæðar í lón­inu.  Þeir sögðu að lík­lega yrði þetta ár sam­bæri­legt 2006 – 2007 þar sem hækkaði veru­lega í lón­inu snemma og datt svo niður þegar snjó­bráð var lokið. Þó svo spár geri ráð fyr­ir að lónið fari á yf­ir­fall á næstu dög­um, þá er það ekki eins og yf­ir­fall vegna jök­ul­bráðnun­ar held­ur er talið að það muni verða frek­ar lítið og dreitla rétt yfir stífl­una í stutt­an tíma og fari svo af yf­ir­falli aft­ur. Snjó­bráð er nán­ast lokið í forðabúri Blöndu þannig að menn þurfa ekki að fara úr lím­ing­un­um strax,“ upp­lýsti Guðmund­ur Hauk­ur í sam­tali við Sporðaköst.
Hér má sjá vatnshæð Blöndulóns í gegnum árin. Sérstök áhersla …
Hér má sjá vatns­hæð Blönd­u­lóns í gegn­um árin. Sér­stök áhersla er á þau ár þar sem staða lóns­ins var með svipuðum hætti og í ár. Mikl­ir hags­mun­ir eru und­ir. Veðurguðirn­ir verða í aðal­hlut­verki þegar kem­ur að mögu­legu yf­ir­falli. Lónið er núna við það að verða smekk­fullt. Ljós­mynd/​Lands­virkj­un
 
Hann seg­ir að starfs­menn Lands­virkj­un­ar hafi farið yfir sögu­lega stöðu lóns­ins síðustu 25 árin þar sem sjá megi að þetta er ekki  fyrsta vorið þar sem Blönd­u­lón er fullt og við það fara á yf­ir­fall. Í fund­ar­gerð frá ár­inu 2003 kem­ur fram að þá voru mjög svipaðar aðstæður og nú er. Fram kom einnig að sögu­legt yf­ir­fall í júní þekkt­ist ekki og bend­ir allt til þess að Blönd­u­lón standi í stað eða lækki í júní og að yf­ir­fall kæmi ekki fyrr en jök­ul­bráðnun byrjaði. Oft byrj­ar jök­ul­bráðnun um miðjan júlí og miðað við það seg­ir Guðmund­ur Hauk­ur að reikna megi með því að lónið fyll­ist í lok júlí eða byrj­un ág­úst. Seg­ist hann telja þetta vera lík­leg­ustu sviðsmynd­ina í sum­ar eft­ir sam­töl við Lands­virkj­un. Vissu­lega væri staðan í sögu­legu há­marki þetta vorið.   
 
Guðmundur Haukur Jakobsson, varaformaður Veiðifélags Blöndu og Svartár.
Guðmund­ur Hauk­ur Jak­obs­son, vara­formaður Veiðifé­lags Blöndu og Svar­tár. mbl.is/​Há­kon
„Blöndu­stöð er nú keyrð á full­um af­köst­um eða 150MW sem gæti seinkað yf­ir­falli og gæti jafn­vel lækkað eitt­hvað vatns­hæð í lón­inu þegar kóln­ar í veðri. Síðustu daga hef­ur hita­stig verið um 20˚C og því mik­il bráðnun á þeim snjó sem eft­ir er á vatna­svæði Blöndu. Rennsli í gegn­um stöð er nú 62m³/​sek. og verður það til 26. maí en þann dag verður vél tvö stöðvuð vegna viðhalds. Eft­ir þann dag verður fram­leiðsla 100MW og flæðið rúm­lega 40m³/​sek.  
Það sem verður mjög áhuga­vert að fylgj­ast með er að mínu mati, hvenær fisk­ur­inn mæt­ir þar sem svona mikið rennsli hef­ur ekki verið í Blöndu í aðdrag­anda veiðitíma­bils í þó nokkra tíð, minn­ug­ur þess að snemma veiðitíma­bils 2015 kom í ána tölu­vert flóð snemma í júní og þá fyllt­ist áin af fiski. Það er að sjálf­sögðu veiðivon­in sem dreg­ur mann á bakk­ann og ekk­ert er jafn skemmti­leg og að setja í al­vöru Blönd­ulax. Ég geri ráð fyr­ir að það verði upp­takt­ur og góð mæt­ing af tveggja ára lax­in­um,“ sagði Guðmund­ur Hauk­ur að lok­um.
Vissu­lega verður spenn­andi að fylgj­ast með opn­un í Blöndu og þá sér­stak­lega í ljósi þess að smá­lax í flest­um ám var mun meiri í fyrra en nokk­ur ár þar á und­an. Það er iðulega ávís­un á tveggja ára lax­inn mæti í meira mæli og hann er alltaf fyrr á ferðinni en smá­lax­inn.  
Ef við skoðum veiðitöl­ur þau ár sem þar sem Blönd­u­lón hef­ur verið í svipaðri stöðu að vori má sjá ýms­ar út­gáf­ur.
2003 gaf   504 laxa
2004 gaf 1386 laxa
2007 gaf 1117 laxa
mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
100 cm Sandá í Þistil­f­irði Eiður Pét­urs­son 24. júní 24.6.
Veiðiárið 2024:
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert