Fyrsti lax sumarsins veiddist áðan á svæðinu Skugga, þar sem Grímsá mætir Hvítá í Borgarfirði. Laxinn veiddi Mikael Marinó Rivera, grunnskólakennari í Rimaskóla og góðkunningi Sporðakasta. Mikki, eins og hann er kallaður leikur þennan leik annað árið í röð. Hann veiddi líka fyrsta lax sumarsins 2024 og það í Skugga.
„Við byrjuðum í morgun og byrjuðum efst og veiddum okkur niður. Ottó félagi minn reisti fisk rétt þegar við vorum að hætta og vorum komnir á neðsta veiðistaðinn. Eftir matinn fórum við beint þangað og í þrígang elti hann fluguna hjá mér. Ottó sá svo vel þegar hann var að skoða hana og kallar til mín að hann sé að elta og þá negldi hann fluguna. Þvílíkur kraftur,“ sagði Mikael í samtali við Sporðaköst skömmu eftir að þessi fyrst lax sumarsins 2025 var kominn á land.
„Ótrúlega þykkur og vel haldin hrygna sem mældist 82 sentímetrar.“ Það verður ofurlítið snúið fyrir Mikka að útskýra fyrir nemendum sínum að hann skyldi veiða fyrsta laxinn. Eins og við greindum frá er veiðidraumur í gangi í Rimaskóla og hann er að fara með hópinn eftir tvo daga í Skugga.
Þetta gerðist einmitt í fyrra líka. Mikki var með nemendur í Skugga og fiskur hafði verið að elta en tók ekki. Mikki tók þá stöngina og setti í lax mjög fljótlega.
Flugan sem laxinn tók er nafnlaus og ættuð frá eiginmanni samkennara í Rimaskóla. Samkennarinn mætti með flugubox til Mikka og skilaboð fylgdu með að prófa þessar. „Flugan er nafnlaus. Ætli við skírum hana ekki bara Írisi í höfuðið á samkennara mínum,“ stakk Mikki upp á.
Viðureignin tók dágóða stund og giskaði Mikki á þetta hefði verið um tuttugu mínútur þar til Ottó félagi hans háfaði laxinn. „Var háfun á heimsmælikvarða,“ upplýsti Mikki.
Veiðisumarið 2025 er þar með formlega byrjað og startað aðeins fyrr, eins og í fyrra og það af sama manni á sama stað.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Sandá í Þistilfirði | Eiður Pétursson | 24. júní 24.6. |
Veiðiárið 2024: | |||
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |