Góð teikn á lofti en menn eru hikandi

Svona var stemmingin við Urriðafoss í fyrra. Bændurnir, Haraldur Einarsson …
Svona var stemmingin við Urriðafoss í fyrra. Bændurnir, Haraldur Einarsson og Birna Harðardóttir með einn af þeim fyrstu. Þau eru landeigendur að Urriðafossi og mæta væntanlega á sunnudag til að opna formlega laxveiðisumarið. Harpa Hlína Þórðardóttir tekur hér mynd af þeim. Ljósmynd/Sporðaköst

Það eru já­kvæð teikn á lofti varðandi byrj­un laxveiðitíma­bils­ins. Fisk­ur er byrjaður að ganga í fyrra fall­inu og nátt­úr­an er kom­in í sum­ar­ástand. Þessi teikn eru sum hver svo já­kvæð að menn eru hik­andi við trúa því að eitt­hvað spenn­andi sé í aðsigi.

En hver eru þessi teikn? Lax kom­inn upp fyr­ir Lax­foss í Norðurá. Þrír lax­ar sáust fyr­ir nokkr­um dög­um á Berg­hyls­brot­inu. Þar af var einn þeirra smá­lax. Smá­lax í maí. Það er já­kvætt teikn. Grænt flagg. 

Það var stór­streymi í fyrra­dag. Viðbúið er að lax­ar sjá­ist í fleiri ám á næstu dög­um, séu menn á út­kíkki og skyggni gott. Hann er mætt­ur í Jöklu. Grænt flagg. Það heyr­ir til und­an­tekn­inga að lax gangi þar fyrr en viku af júní eða síðar.

Það er allt klárt í Vatnsdalnum þó að enn séu …
Það er allt klárt í Vatns­daln­um þó að enn séu um þrjár vik­ur í onun. Li­verpool fán­inn kom­inn upp og bak­sýn er grænn dal­ur­inn. Marg­ir hafa sett spurn­inga­merki við Li­verpool fána í Vatns­dal, en ekki í ár þar sem liðið hampaði Eng­lands­meist­ara­titli. Ljós­mynd/​Björn K. Rún­ars­son

Tölu­vert líf var í Skugga þegar Mika­el Marinó Ri­vera var þar um síðustu helgi og landaði fyrsta laxi sum­ars­ins. Ekki endi­lega grænt flagg þar sem hann lék sama leik í fyrra. Fyrsti lax­inn var 82 sentí­metra hrygna en viðbúið er að tveggja ára hrygn­ur verði áber­andi fyrstu daga og vik­ur veiðitím­ans. Ef menn hugsa til baka þá var lítið um eins árs hrygn­ur í fyrra. Þess­ar hrygn­ur eru oft á bil­inu 80 til 90 sentí­metr­ar og ein­staka jafn­vel stærri. En það verður ekki síður spenn­andi að sjá stöðuna á tveggja ára hæng­un­um.

Nátt­úr­an er á ster­um þessa dag­ana og ekki á færi nema sér­fræðinga að finna sam­bæri­leg­ar aðstæður. Þannig voru seiði far­in að ganga út í Vest­ur­dalsá um 20. maí, að sögn Stef­áns Hrafns­son­ar starfs­manns Six Ri­vers. Venju­legt ár­ferði býður upp á þessa niður­göngu í lok júní. Grænt flagg – en fyr­ir næsta sum­ar. „Þetta mun­ar miklu fyr­ir þau seiði sem gengu út svona snemma. Þau fá auka mánuð til éta og dafna í sjón­um. Svo er al­veg magnað að keyra inn til dæm­is Hofs­ár­dal. Það er eins og um miðjan júlí á venju­legu sumri. Allt orðið grænt og góður ilm­ur í lofti,“ sagði Stefán í sam­tali við Sporðaköst.

Mikael Marinó Rivera með fyrsta lax sumarsins 2025. Veiddur í …
Mika­el Marinó Ri­vera með fyrsta lax sum­ars­ins 2025. Veidd­ur í Skugga. Þetta er annað árið í röð sem Mikki start­ar sumr­inu og það í Skugga. Ljós­mynd/​Ottó

Sög­ur fóru af því að fyrsti lax­inn hefði sést í Selá. Stefán sagði að þeir hefðu séð laxa neðan við Foss­inn en hann seg­ist viss um það hafi verið niður­göngu fisk­ar. Hann og Denni sáu tvær grúbb­ur af fiski en voru sam­mála um að þeir væru á leið til sjáv­ar.

Svipaðar voru lýs­ing­arn­ar hjá Rafni Al­freðssyni og Brynj­ari Hreggviðssyni, þegar þeir í vik­unni óku að veiðihús­inu við Norðurá. „Þetta er bara eins og um miðjan júlí,“ sagði Rafn. Eitt sem vakti mikla at­hygli þeirra fé­laga var að þeir keyrðu fram á heiðargæsap­ar sem flaug ekki upp þegar þeir stoppuðu. „Þetta var 24. maí og ég get svo svarið það að þær voru með svona vikugamla unga trítlandi á eft­ir sér. Þetta hef ég aldrei séð svona snemma. Gæsaung­ar sem hafa komið úr eggj­um um 20. maí.“

Þó svo að Ísland hafi verið með fimm rétta í veður­lottó­inu í maí, vit­um við að það er dregið viku­lega. Þeir sem trúa því að vorið hafi farið fram­hjá að þessu sinni og sum­arið komið snemma í maí, ættu að líta á veður­kort­in fyr­ir næstu viku. Á mánu­dags­kvöld á að kólna hressi­lega og er spáð frosti og snjó­komu í það minnsta á há­lend­inu. Vissu­lega get­ur sú spá breyst en þetta er í kort­un­um í dag. Þannig að ekki fara með vetr­ar­föt­in í Góða hirðir­inn. Ekki strax.

Þarna er sá fyrsti staðfestur í Kjósinni í Pokafossi. Rauður …
Þarna er sá fyrsti staðfest­ur í Kjós­inni í Poka­fossi. Rauður hring­ur er dreg­inn um hann. Lax­inn sést greini­lega og alltaf jafn upp­lífg­andi sjón. Ljós­mynd/​Laxá í Kjós

Það er eig­in­lega magnað að bera sam­an vorið í ár miðað við stöðuna á sama tíma í fyrra. Við heyrðum í leigu­tak­an­um í Vatns­dalsá. Björn K. Rún­ars­son er með allt klárt. Meira að segja Li­verpool fán­inn er kom­inn á loft. Í fyrra var ástandið í daln­um þannig að ekki var hægt að bera á tún sök­um bleytu og drullu. „Mig minn­ir að drátt­ar­vél­ar hafi verið að sökkva í drullu langt fram í júní. Nú er dal­ur­inn orðin grænn.“ Björn benti á að á þess­um tíma væri al­gengt að keyra í gegn­um Borg­ar­fjörðinn sem væri kom­inn í vor­skrúða og svo skipti um á Holta­vörðuheiðinni. Þá væri allt grárra og skemmra komið. Nú væri þessu öðru­vísi allt orðið grænt fyr­ir norðan.

Vel hef­ur veiðst á sil­unga­svæðinu í Vatns­dalsá og þar er sjó­birt­ing­ur orðinn í miklu magni. Sporðaköst hafa heyrt frá veiðimönn­um sem voru þar og á dög­un­um og veiddu vel. Sögðu þeir að magnað væri að fylgj­ast með upp­gangi sjó­birt­ings­ins á svæðinu síðustu ár. Stefnt er að því að reisa nýtt veiðihús fyr­ir sil­unga­svæðið en bú­ast má við því að vin­sæld­ir þessa svæðis eigi bara eft­ir að aukast í framtíðinni með sjó­birt­ing sem mikið aðdrátt­ar­efni.

Svo er það rauða flaggið. Vatns­bú­skap­ur. Ár eru nú víða komn­ar í sum­ar­vatn. Það er ljóst að verði þurrt sum­ar þá horf­ir fljótt til vand­ræða. Snjór er að mestu leit upp­ur­inn og það stefn­ir í vatns­leysi nema rigni þeim mun meira. Það eina sem mun halda ánum „á lífi“ þegar kem­ur fram í ág­úst, jafn­vel svo snemma sem júlí, eru dug­mikl­ar og reglu­leg­ar rign­ing­ar. En þegar kem­ur að því að spá um óorðna hluti í laxveiðinni er kannski best að hugsa til orða Guðna Guðbergs­son­ar sviðsstjóra á Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Hann var spurður um laxveiðina í sum­ar og svaraði því vissu­lega til að út­litið væri gott. En sagði svo: „Ég skal koma með betri spá í sept­em­ber.“

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka