„Það er veisla, það er veisla“

Hann er á í Mývatnssveit í morgun. Grænir bakkar, mikið …
Hann er á í Mývatnssveit í morgun. Grænir bakkar, mikið af rjúpu og spikfeitur urriði. Lífið er veisla í Mývatnssveit. Ljósmynd/Árni Friðleifsson

„Það er veisla, það er veisla. Við erum að landa þrett­ánda fiskn­um,“ sagði Árni Friðleifs­son, lög­regluþjónn í sam­tali við Sporðaköst þegar við náðum tali af hon­um í opn­un Mý­vatns­sveit­ar­inn­ar nú skömmu fyr­ir há­degi. Mý­vatns­sveit­in opnaði form­lega í morg­un og það er enn einn áfang­inn í átt að því að veiðisum­arið sé komið á fullt.

Árni Friðleifsson með glæsilegt eintak af urriða úr Mývatnssveitinni. Þeir …
Árni Friðleifs­son með glæsi­legt ein­tak af urriða úr Mý­vatns­sveit­inni. Þeir lög­reglu­feðgar eru að moka hon­um upp. Ljós­mynd/​Emil Örn Árna­son

Árni Friðleifs­son er fasta­gest­ur í opn­un Mý­vatns­sveit­ar og hef­ur verið það í fjölda­mörg ár. Hann og Emil Örn son­ur hans eru að veiða Hofstaði og eru bara í veislu. „Við byrjuðum í Poll­in­um og erum nú í Lang­hólma og það er mikið líf. Fisk­ur­inn er gríðarlega vel hald­inn og við höf­um verið að fá þetta mest á púp­ur. Babb­ann, Mopp­una og Pheas­ant tail. Allt hefðbundið,“ upp­lýsti Árni.

Emil Örn með enn einn. Það er mikið af fiski …
Emil Örn með enn einn. Það er mikið af fiski og hann er í stuði. Allt eins og best verður á kosið. Ljós­mynd/Á​rni Friðleifs­son

Neðst á svæðinu voru aðrir feðgar, þeir Bjarni Júlí­us­son og syn­ir hans Hafþór og Sig­ur­jón. Þeir drógu Ham­ar­inn. Ekki upp­á­halds­svæði allra en þeir voru í lífi og þá mest í Hól­kots­flóa. „Við erum bún­ir að setja í ein­hverja sex eða sjö fiska og landa þrem­ur. Þeir eru all­ir steypt­ir í sama mót. Um sex­tíu sentí­metr­ar og hnött­ótt­ir. Man bara ekki eft­ir að hafa séð svona vel haldna fiska hér á þess­um tíma. En það er nátt­úru­lega öðru­vísi vor búið að vera. Hér er allt orðið grænt og þetta er svona stemm­ing eins og maður upp­lif­ir vana­lega þegar langt er komið fram í júní. Langt síðan að flug­an kviknaði og hér er komið bit­mý.“

Bjarni Júlíusson með vænan urriða af Hamarssvæðinu. Fiskurinn er eins …
Bjarni Júlí­us­son með væn­an urriða af Ham­ars­svæðinu. Fisk­ur­inn er eins vel hald­inn og hægt er að hugsa sér. Babb­inn er að gefa ásamt fleiri púp­um. Ljós­mynd/​Sig­ur­jón Bjarni

Þeir feðgar nefndu af fyrra bragði að þeir hefðu aldrei séð jafn mikið af rjúpu eins og núna. Þegar þeir óku spöl­korn út af þjóðveg­in­um til að kom­ast á svæðið flugu upp fjór­ir rjúpnakarr­ar. „Við höf­um aldrei séð jafn mikið af rjúpu hérna og núna, öll þessi ár sem við höf­um verið hér á ferðinni á þess­um tíma,“ sagði Bjarni.

Þessir fiskar eru nánast hnöttóttir enda langt síðan að flugan …
Þess­ir fisk­ar eru nán­ast hnött­ótt­ir enda langt síðan að flug­an kviknaði fyr­ir norðan. Hafþór Bjarni landaði þess­um. Ljós­mynd/​Bjarni Júl.

Það var sama hljóð í strokn­um hjá Árna Friðleifs­syni og aft­ur var þetta nefnt að fyrra bragði. „Heyrðu, af því að ég veit að þú deil­ir þessu áhuga­máli með mér. Ég hef ekki séð svona  mikið af rjúpu á þessu svæði frá því ég byrjaði að veiða hérna fyr­ir mörg­um árum. Bara aldrei séð svona mikið.“

Það verður gam­an að sjá hvernig nýja veiðistjórn­un­ar­mód­elið um­reikn­ar þessa stöðu í veiðidaga í haust því sam­bæri­leg­ar frétt­ir ber­ast víða að af land­inu þegar kem­ur að rjúpu og upp­gangi stofns­ins.

Sigurjón Bjarni skemmtir sér vel enda ekki annað hægt við …
Sig­ur­jón Bjarni skemmt­ir sér vel enda ekki annað hægt við þess­ar aðstæður. Iðagrænn bakki er óvenju­leg staða á þess­um slóðum í lok maí. Ljós­mynd/​Bjarni Júl.

Það er aldrei á vís­an að róa þegar kem­ur að veðri í opn­un í Mý­vatns­sveit og hvergi eru veðurguðirn­ir jafn óút­reikn­an­leg­ir og á þess­um tíma á þess­um stað. Opn­un 2022 var í hita­bylgju. Menn jafn­vel ber­ir að ofan og löður­sveitt­ir und­an sjálf­um sér. Svo bar það til tíðinda í opn­un í fyrra, að síðasta morg­un­inn byrjaði að snjóa og það snjóaði eig­in­lega allt í kaf. Nú er norðangjóla og voru sex gráður þegar menn risu eft­ir veislu gær­kvölds­ins og héldu í veiðiveisl­una sem Laxá í Mý­vatns­sveit hef­ur boðið til.

Svona var stemmingin vorið 2020. Ekki grænt gras að sjá. …
Svona var stemm­ing­in vorið 2020. Ekki grænt gras að sjá. Sina á bökk­um. Nú vor­ar ein­stak­lega vel. Ljós­mynd/​Aðsend

Eins og lesa mátti hér að ofan er púp­urn­ar að virka. Þó var það þannig í morg­un að neðri feðgarn­ir settu und­ir Black Ghost, hefðbundna urriðastraum­flugu. „Hann glefsaði í hana oft og mörg­um sinn­um en var ekki að taka hana al­menni­lega,“ upp­lýsti Bjarni Júlí­us­son og þá var farið í púp­urn­ar og þá var nóg að gera. Eins og púp­ur gefa oft skemmti­lega og góða veiði, þá jafn­ast fátt á við það að fá al­vöru negl­ingu á straum­flugu. Að maður tali nú ekki um þegar urriðinn er í þess­um stærðarflokki. En þetta er byrjað í Mý­vatns­sveit­inni og áhuga­vert verður fá frétt­ir úr Laxár­dal en þar er al­mennt talið að fisk­arn­ir séu að jafnaði stærri, en á móti aðeins færri. Vissu­lega er búið að veiða urriðasvæði enn neðar í Laxá í vor og hef­ur veiðin þar einnig verið fín.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert