Óhætt er að segja að opnunin í Urriðafossi í Þjórsá hafi staðið undir væntingum. Samtals komu á land tólf laxar og er það góður opnunardagur. Stærsti lax dagsins var 96 sentímetra hængur. Það var stemming við fossinn í dag og nestið var ríkulegt í takt við þennan fyrsta dag laxveiðisumarsins.
Stundvíslega klukkan átta var kastað upp á hver myndi byrja hvar. Niðurstaðan varð sú að Stefán Sigurðsson, leigutaki byrjaði í Lækjarlátri og Haraldur Einarsson, landeigandi fór í Huldu. Aðstæður til veiða voru frekar krefjandi. Það var minna vatnsmagn í Þjórsá en oft á þessum tíma. Ekki að áin hafi ekki mikil enda blikna þær flestar í samanburði við jökulána. En þegar vatn er með minna móti er gönguleið laxins fjær landinu. Það er ekki vaðið í Þjórsá. Það er fyrsta regla.
Stefán var fyrstur á veiðistað og með tvo volduga skoska ánamaðka á önglinum renndi hann með þremur sökkum í Lækjarlátur. Í þessu fyrsta rennsli sumarsins kom hann fljótt að holu sem er neðst í látrinu. Þar mátti sjá stangartopp tifa og svo taka nokkur högg úr djúpinu. Hann var við það.
Stefán leit til viðstaddra og kinkaði kolli. Svo lagði hann stöngina til austurs og setti í hann. Fyrsta lax sumarsins. Honum var landað og Haraldur Einarsson var mættur með háfinn. Hrygna 76 sentímetrar og þykk eins og stæðilegt karlmannslæri. Þarna var hinn margfrægi ís brotinn.
Harpa Hlín Þórðardóttir og Stefán Sigurðsson eru með fyrirtækið Iceland Outfitters sem er meðal annars með Urriðafoss á leigu. Á móti þeim voru svo landeigendurnir og bændurnir Haraldur Einarsson og Birna Harðardóttir. Fimmti maður var Matthías Stefánsson leiðsögumaður. Fiskar sáust skvetta sér í Huldu og þeir voru frekar langt úti fyrir maðkarennsli. Flotholt var græjað til að koma þessu á réttan stað og halda því þar.
Áður en dró til tíðinda var boðið upp á samlokur, sæta Rice krispís kökumola og einhverja hollustu í ætt við kíjafræ og slíkan bræðing. Konurnar gerðu gott betur og kampavínsflaska var opnuð og freyddi vel. Þær skáluðu veiðikonur, en afþökkuðu ábót. Það var veiðihugur í þeim. Svo var sett í annan lax það var í Huldunni og flotholtið gerði gæfumuninn. Bleikt flotholt. Stefán landaði 80 sentímetra hrygnu. Þykkur og flottur fiskur. Harpa um svipað leiti setti í lax í látrinu en hann slapp í löndun. Hún skellti sér strax út aftur og setti í annan með það sama. Hrygna 74 sentímetrar. Ekki löng en þykk og samsvaraði sér einstaklega vel.
Matthías missti fisk og landaði svo nokkru síðar fyrsta hængnum. Gerðarlegur og mældist 83 sentímetrar. Þannig skilaði fyrri vaktin fimm fiskum. Seinni vaktin gaf svo aftur á móti sjö fiska og einhverjir misstust. Það vakti sérstaka athygli og ánægju að 96 sentímetra hængur kom á land og þann flotta fisk fékk Matthías. Eftir snarpa viðureign fékk hann frelsi á nýjan leik og mun því að óbreyttu halda áfram ferð sinni upp Þjórsá.
Það hafa veiðst fleiri fiskar á opnunardegi í Urriðafossi en miðað við aðstæður sem lýst hefur verið hér telst þessi dagur standa undir væntingum. Hrygnur voru í miklum meirihluta í aflanum en tveir stórir hængar voru skrautið á kökuna.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Sandá í Þistilfirði | Eiður Pétursson | 24. júní 24.6. |
Veiðiárið 2024: | |||
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |