Annað árið í röð snjóaði yfir Pétur Pétursson og félaga sem eru við veiðar í Laxá í Mývatnssveit. Pétur vaknaði við alhvíta jörð og lítt fýsilegar aðstæður. „Einn og hálfur dagur í Laxá í Mý fæst ódýrt. Áhugasamir hafi samband í einkaskilaboðum,“ skrifaði Pétur á facebooksíðu sína. Hann lét fylgja með myndir af ástandinu. Snjór yfir öllu. Mófuglinn áttavilltur og talsvert verk að skafa framrúðu.
„Nei. Þú ert sá fyrsti sem hefur samband,“ hló Pétur þegar Sporðaköst hringdu og viltu vita hvort mikil eftirspurn væri eftir veiðileyfinu.
Að öllu gamni slepptu þá sagði Pétur þetta með hreinum ólíkindum. „Annað árið í röð sem við lendum í þessu og í þriðja skipti á tíu árum,“ upplýsti hann.
Veiðin hefur farið vel af stað fyrir norðan og þeir félagar voru að gera fína og hefðbundna veiði í grænni sumarnáttúru fyrsta einn og hálfa daginn. Þeir vissu svo sem af spánni en það er alltaf jafn skrítið að líta út um glugga í júní og allt er orðið hvítt.
„Spáin var ekkert góð en hann hékk í lagi fram eftir kvöldi í gær. Það fór að snjóa einhvern tíma í nótt. Við fórum að sofa í auðu og vöknuðum svo við hvíta jörð og sungum bara jólalög. Það er svo gott sem alhvít jörð. Maður er að labba hér um í náttúrunni á góðum degi og er mjög meðvitaður um að víða eru hreiður og það þarf að passa sig á að stíga ekki á þau. Ég labbaði fram á önd í gær með nokkur egg í hreiðri. Það verður væntanlega ekkert úr þeim. Svo sér maður mófuglana hér vappa um í reiðileysi og vita ekkert hvað þeir eiga að gera. Þetta er samt alls ekki jafn slæmt og fyrra. Þá skóf í skafla en nú er þetta blautari snjór og minna. Við vorum því sem næst að moka okkur út úr veiðihúsinu í fyrra.“
Pétur og hluti hópsins var byrjaður að taka saman búnað og ganga frá fyrir snemmbúna brottför. Ekki þó allir. Einhverjir ætluðu að sjá aðeins til og vonast eftir gráðu upp á við eða jafnvel tveimur. Það verður þó vissulega skítkalt og frekar hvasst. Það þarf mikinn áhuga og allt að því krónískan til að standa klukkutímum saman úti í þessum aðstæðum og loppinn á fingrum reglulega að skipta um flugur. Kuldakastið lifir nefnilega góðu lífi fyrir norðan fram á helgi. 8. júní lítur veðurkortið betur út. Um þrjár gráður á hádegi, slydda eða rigning og norðanáttin ekki að flýta sér. Þrír metrar á sekúndu.
En já það voru ekki allir tilbúnir að gefast upp. Hrafn Ágústsson, Caddisbróðir ætlar út en sagði í samtali við Sporðaköst, „Aðeins að leyfa hríðinni að róast.“ Það var sem sagt enn ofankoma í hádeginu.
Og hvað er hann að taka við þessar aðstæður spurðum við sérfræðinginn.
„Það er engin hríð ofan í ánni. Þannig að hann tekur bara þetta hefðbundna ef maður kemur því út í,“ upplýsti Hrafn.
Nú leggja menn á vogarskálar skynsemi, veiðiáhuga og vilja og niðurstöður verða allavega. En það er alltaf von ef menn treysta sér í rokið og kuldann. Svo er það sjónarmiðið, að þetta þurfi að vera skemmtilegt.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |