„Fullnaðarsigur“ í Rangárdeilu

Landsréttur kvað upp dóm í dag og segir lögmaður Veiðifélags …
Landsréttur kvað upp dóm í dag og segir lögmaður Veiðifélags Eystri Rangár um fullnaðarsigur að ræða. Málaferlin hafa verið löng og ströng á öllum dómstigum. mbl.is/Árni Sæberg

Lands­rétt­ur kvað í dag upp dóm í deilu Veiðifé­lags Eystri–Rangár gegn Ein­ari Lúðvíks­syni og systr­um hans, Dag­mar S. Lúðvíks­dótt­ur og Dóru Lúðvíks­dótt­ur.

Deil­an hef­ur þvælst um rétt­ar­kerfið en nú virðist kom­in end­an­leg niðurstaða. Systkin­in mega ekki hindra för veiðimanna um jarðir sín­ar í námunda við veiðisvæði 8 og 9 í Eystri-Rangá og að sama skapi ekki banna aðgengi að þrem­ur sleppitjörn­um veiðifé­lags­ins á jörðum sem þau eiga hlut í. Jafn­framt var kveðið á um að þeim systkin­um væri óheim­ilt að eyðileggja sleppitjarn­irn­ar sem um ræðir. Málið dæmdu lands­rétt­ar­dóm­ar­arn­ir Jón Hösk­ulds­son, Krist­inn Hall­dórs­son og Þor­geir Ingi Njáls­son.

Þriðja systkinið, Dóra Lúðvíks­dótt­ir, hafði ekki uppi nein­ar kröf­ur fyr­ir Lands­rétti.

Veiðimenn við Eystri Rangá mega aka bílum sínum að veiðistöðum …
Veiðimenn við Eystri Rangá mega aka bíl­um sín­um að veiðistöðum á svæðum 8 og 9. Lands­rétt­ur kvað upp úr með þetta og tók inn skil­grein­ing­una vél­knú­in öku­tæki. Ljós­mynd/​JAX

Guðjón Ármanns­son var lögmaður Veiðifé­lags Eystri–Rangár og Jón Sig­urðsson lögmaður var fyr­ir hönd Ein­ars og Dag­mars og Hulda Rós Rúriks­dótt­ir fyr­ir Dóru Lúðvíks­dótt­ur.

Í lög­um um lax- og sil­ungsveiðileyfi er kveðið á um að um­ferð skuli heim­ila um jarðir til að kom­ast að veiðisvæði. Í 4. máls­grein 37. grein­ar lax- og sil­ungsveiðilaga seg­ir: „Hafi veiðifé­lag ráðstafað í heild stang­veiði á fé­lags­svæði sínu er ein­stök­um fé­lags­mönn­um skylt að veita aðgang að veiðistöðum fyr­ir landi sínu. Ávallt skulu þeir sem aðgeng­is njóta gæta þess að valda sem minnstri rösk­un á hags­mun­um fé­lags­manns.“

Hvergi er minnst á vél­knú­in öku­tæki í laga­text­an­um en dóm­ur Lands­rétt­ar seg­ir hins veg­ar í 30. lið.

„Þá hef­ur stefndi gert samn­ing þar sem ráðstafað er í heild stang­veiði á vatna­svæði Eystri Rangár fyr­ir utan Fiská og Stokka­læk. Eru áfrýj­end­ur og stefnda, sem leiða rétt sinn frá eig­anda jarðar­inn­ar, bund­in af samn­ingn­um. Bar þeim sam­kvæmt fyr­ir­mæl­um 4. mgr. 37. gr. laga nr. 61/​2006 að veita veiðimönn­um, sem keypt hafa veiðileyfi á grund­velli samn­ings­ins, aðgengi að veiðistöðum fyr­ir landi sínu. Fram­ganga áfrýj­enda og stefndu Dóru í því skyni að hindra aðgengi veiðimanna á vél­knún­um öku­tækj­um, sem keypt hafa veiðileyfi á grund­velli samn­ings­ins, fer í bága við fram­an­greinda laga­skyldu.“

Þetta er vænt­an­lega ákvæði sem öll veiðifé­lög taka eft­ir og geng­ur lengra, eða er ná­kvæm­ara en laga­grein­in sem vitnað er til.

Guðjón Ármannsson, lögmaður Veiðifélags Eystri Rangár telur dóminn fullnaðarsigur og …
Guðjón Ármanns­son, lögmaður Veiðifé­lags Eystri Rangár tel­ur dóm­inn fullnaðarsig­ur og að réttaró­vissu hafi verið eytt. Ljós­mynd/​LEX

Guðjón Ármanns­son lögmaður varði hags­muni Veiðifé­lags Eystri–Rangár. Sporðaköst spurðu hann hvort þetta væri ippon eða fullnaðarsig­ur?

„Já, þessi niðurstaða er sann­ar­lega gleðileg og er fullnaðarsig­ur fyr­ir veiðifé­lagið.

Þessi mála­ferli hafa staðið yfir frá vor­inu 2021 og kostað mikla orku. Réttaró­vissu hef­ur verið eytt sem er afar mik­il­vægt fyr­ir starf­semi veiðifé­lags­ins. Önd­verð niðurstaða hefði haft al­var­leg­ar af­leiðing­ar í för með sér fyr­ir Rangárn­ar.

Dóm­ur þessi hef­ur jafn­framt al­mennt gildi fyr­ir veiðifé­lög í land­inu. Sú regla gild­ir, sam­kvæmt lax- og sil­ungsveiðilög­um, að hafi veiðifé­lag ráðstafað stang­veiði á fé­lags­svæði er veiðirétt­ar­höf­um skylt að veita aðgang að land­inu sínu. Í dómi Lands­rétt­ar er staðfest í fyrsta sinn að þessi skylda nær til vél­knú­inna öku­tækja en ekki bara veiðimanna á tveim­ur jafn­fljót­um,“ sagði Guðjón Ármanns­son.

mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
100 cm Sandá í Þistil­f­irði Eiður Pét­urs­son 24. júní 24.6.
Veiðiárið 2024:
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert