Óvissa um framtíð urriðasvæða

Árni Friðleifsson með glæsilegt eintak af urriða úr Mývatnssveitinni í …
Árni Friðleifsson með glæsilegt eintak af urriða úr Mývatnssveitinni í opnun í lok maí. Nú ríkir fullkomin óvissa um framhaldið fyrir norðan. Ljósmynd/Emil Örn Árnason

Stanga­veiðifé­lag Reykja­vík­ur mun ann­ast urriðasvæði í Laxá í S-Þing­eyj­ar­sýslu það sem eft­ir lif­ir árs að sögn for­manns.

Eins og fram kom í Morg­un­blaðinu í vik­unni hef­ur Fiski­stofa ógilt ákvörðun fé­lags­fund­ar Veiðifé­lags Laxár og Krákár um að samþykkja til­boð Stanga­veiðifé­lags Reykja­vík­ur í veiðisvæðin. Ragn­heiður Thor­steins­son, formaður Stanga­veiðifé­lags Reykja­vík­ur, seg­ir í sam­tali við Morg­un­blaðið að fram­haldið sé óljóst.

Leigu­tak­ar út þetta ár

„Það er bara í hönd­un­um á Veiðifé­lag­inu fyr­ir norðan. Nú hljóta þau að ráða ráðum sín­um og ákveða næstu skref, sem við höf­um enga aðkomu að nema bara að við erum leigu­tak­ar út 2025,“ seg­ir Ragn­heiður og bæt­ir við að ekk­ert form­legt sam­tal hafi átt sér stað eft­ir úr­sk­urð Fiski­stofu.

„Við höf­um verið með svæðið í 16 ár og höf­um gefið út vilja­yf­ir­lýs­ingu um að við vilj­um gjarn­an halda sam­starfi okk­ar áfram og við höf­um gert mjög vel við þessi svæði. Þetta eru það vin­sæl svæði hjá okk­ur að menn hafa bundið sér­stöku ást­fóstri við þau, svo að það er vel skilj­an­legt ef fólk er óör­uggt,“ bæt­ir Ragn­heiður við í lok­in.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
100 cm Sandá í Þistil­f­irði Eiður Pét­urs­son 24. júní 24.6.
Veiðiárið 2024:
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert