Fyrsti laxinn í Blöndu veiddist áðan á Breiðu suður. Blöndusérfræðingarnir Árni Baldursson og Reynir Sigmundsson hafa aldrei núllað í opnun í Blöndu og það breyttist ekki núna.
Fyrst fór Árni Baldursson út og setti fljótlega í það sem hann taldi vera fyrsta lax sumarsins í Blöndu. Fagnaðarlæti þeirra félaga voru einlæg þegar silfraður fiskur skellti sér á fluguna. Eftir nokkra stund, „þá dró ég þennan ódrátt upp úr jökulvatninu,“ hló Árni Baldursson. Hann landaði 75 sentímetra sjóbirtingi. Aðeins þyrmdi yfir þá félaga og Árni Baldursson ætlaði upp í veiðihús að ná í hluti sem hann hafði gleymt. „Ætlarðu ekki að sjá þegar ég tek fyrsta laxinn,“ kallaði Reynir til hans. Þetta dugði til að stöðva Árna. Hann settist niður og fylgdist með Reyni vaða langt út á Breiðuna.
Friggi Posh fékk að fljúga. Þungur og svartur og grænn skall hann í vatnið. Í þriðja kasti var Reynir kominn eins langt út og hann treysti sér. Enn skall Frigginn í vatnið. „Hann negldi Friggann með látum. Þetta var engin kuldataka,“ upplýsti Reynir. Það er verkefni að slást við stórlax í vatnsmikilli Blöndu á Breiðunni. Laxinn hefur allt pláss í heiminum en þetta gekk upp eins og svo oft áður hjá þessum félögum á þessum stað.
92 sentímetra hrygna er fyrsti lax sumarsins úr Blöndu og mörgum er létt. Þeir Árni og Reynir höfðu af því áhyggjur í gær að mögulega myndu þeir í fyrsta skipti núlla í opnun í Blöndu. Í gegnum áhyggjurnar mætti líka greina vantrú á að það myndi gerast. Enda mættu þeir ferskir og bjartsýnir í morgun og niðurstaðan var heldur betur ánægjuleg. Reynir hafði séð fisk stökkva á Breiðunni í gær. „Hann var ekki svona stór,“ brosti Reynir og lyfti stórlaxinum upp fyrir myndatöku. „Ég varla næ utan um stirtluna á henni,“ sagði Reynir um leið og hann gaf henni frelsi á nýjan leik.
Blanda er komin á blað og allir gleðjast yfir því. Þeir félagar eru farnir út í aftur að setja í fleiri.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |