Tíu laxar voru færðir til bókar í Þverá á opnunardegi í dag. Eins og við greindum frá í dag skilaði fyrri vaktin sex löxum og sett var í fjóra til viðbótar. Eftir hádegi náðist einn lax í Brennunni sem er hluti af opnunarsvæðinu. Glæsileg tveggja ára hrygna veiddist í Kirkjustreng. Var það mál manna sem að viðureigninni komu að fiskurinn hefði verið þessi klassíski stórlax að vori. „Fiskar í heimsklassa,“ missti einn út úr sér. Hrygnan var grálúsug og viðbúið er að lax sé farinn að ganga í stækkandi straum sem nær hámarki sínu á fimmtdag.
Fiskar sem sáust Klapparfljóti voru að öllum líkindum komnir upp í Hólmatagl. Þar sást ekki fiskur í morgun en í fyrsta kasti eftir hádegi nelgdi 85 sentímetra hængur flugu veiðimannsins.
Gunnlaugur Sævar og hans fólk var áfram í stuði og þau fengu fiskinn í Hólmataglinu. Gunnlaugur kastaði aftur á hylinn og fékk hann þvílíka neglingu að augnablik hvarflaði að honum að hann hefði hrokkið úr axlarlið, slíkt var höggið. Fiskurinn rauk niður hylinn af offorsi. Lauk þeirra viðskiptum þannig að skyndilega var fiskurinn farinn en öngullinn var uppréttur og ekki líklegur til frekari afreka. Gunnlaugur sem hafði fengið 90 sentímetra hæng í morgun taldi þennan fisk í næsta flokki fyrir ofan.
Fjórði laxinn eftir hádegi var smálax og gleðjast borgfiskir bændur jafnan ef smálax gengur snemma og er það talið vita á gott smálaxaár. Það er þó algerlega óskrifað blað. Tveggja ára laxa byrjar vel en flestir okkar lærðustu og reyndustu manna spá góðri gengd stórlaxa í sumar.
Ingólfur Ásgeirsson leigutaki Þverár var hinn ánægðasti með opnunardaginn. „Í mínum huga er þetta upp á tíu. Ekki bara tíu laxa heldur vel heppnaður dagur sem stóð undir þeim væntingum sem við vorum með síðustu daga,“ sagði hann.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Sandá í Þistilfirði | Eiður Pétursson | 24. júní 24.6. |
Veiðiárið 2024: | |||
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |