Formlegri opnun í Þverá í Borgarfirði lauk í hádeginu. Veitt var á átta stangir í tvo og hálfan dag og skilaði það 26 löxum á land. „Þetta er besta opnun frá því árið 2016,“ upplýsti Ingólfur Ásgeirsson leigutaki Þverár í samtali við Sporðaköst.
Sjö laxar veiddust í morgun og er það mat Ingólfs að laxinn sé í hraðri göngu enda skilyrði eins góð og þau geta orðið. „Hann er lagstur í Kirkjustreng og á nokkra aðra hefðbundna staði en annars er hann í göngu.“ Nefndi Ingólfur sem dæmi að hann hefði sjálfur skotist í Arnarstreng sem er á svæði sjö og fengið þar 70 sentímetra smálax. Dæmigerður göngustaður. Klapparfljótið gerði vel við Ingólf og gömlu meistarana Aðalstein Pétursson og Andrés Eyjólfsson en þeir lönduðu þremur þar í morgun. Allt fiskar ríflega 80 sentímetrar. Samanlagður starfsaldur þeirra Alla og Andrésar við Þverá telur fjölmarga áratugi.
Opnunin í Þverá 2016 var einstök. 53 laxar veiddust og svo kom að Kjarrá. Þá fór veiðin í tæplega hundrað laxa. Ingólfur leigutaki er að fara þar í opnun á sunnudag. Hann veit sem er að við þessar aðstæður þá er töluvert af fiski þegar komið uppeftir. Hann þorir ekki, eða vill ekki spá fyrir um opnun þar efra. Telur slíkt ekki skynsamlegt. Það er sjálfsagt rétt en Kjarrár sérfræðingar horfa stórum augum uppeftir, sérstaklega eftir þessa opnun núna í Þverá. „Við tökum glaðir við öllu því sem bíður okkar þar upp frá,“ sagði Ingólfur.
Sumarið í fyrra gaf mjög góða veiði í Þverá/Kjarrá og var 2.239 löxum landað og er það besta árið frá 2018 þegar veiddust 2.472 laxar. Svo kom þurrkasumarið mikla 2019 og það hafi gríðarlega mikil áhrif þar til í fyrra. Góðar göngur af smálaxi í Þverá/Kjarrá gefa góð fyrirheit um stórlax þar í sumar. Fyrirboða þess má væntanlega sjá í opnuninni í Þverá. Svo er náttúran engum háð og oft ófyrirsjáanleg.
Athugasemd
Upphaflega fréttin sagði besta opnun frá 2015. Hið rétta er að stóra opnunin í Þverá/Kjarrá var 2016. Hefur þetta verið leiðrétt.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |