Bjóða til veiðiævintýris í janúar

A - húsin á Alphonse eru hin þægilegustu og rúmgóð. …
A - húsin á Alphonse eru hin þægilegustu og rúmgóð. Þarna verða líklega Íslendingar í janúar á nýju ári. Ljósmynd/Veiðihornið

Eitt af eft­ir­sótt­ustu sjáv­ar­veiðisvæðum í heim­in­um eru Seychell­es­eyj­ar, þar sem meðal ann­ars er kastað fyr­ir risa­vaxna GT eða Gi­ant Trevally. Banda­ríska veiðiferðaskrif­stof­an Fly Water tra­vel bauð Óla og Maríu Veiðihorns­hjón­um að taka að sér og leiða ferð á Alp­hons­eyju sem er hluti af Seychell­es­eyja­klas­an­um. Þetta er ekki ódýr ferð og fá sæti í boði. Veitt er í viku á nýju ári, dag­ana 9. til 17. janú­ar. Óli seg­ir verðið þó ekki skáka kostnaði við góða laxveiði á Íslandi þegar allt er talið.

Ævintýri í bígerð. Litirnir þarna eru svo magnaðir.
Ævin­týri í bíg­erð. Lit­irn­ir þarna eru svo magnaðir. Ljós­mynd/​Veiðihornið

„Við þekkj­um þetta svæði orðið vel og elsk­um það. Okk­ur þótti mjög vænt um þegar Fly Water Tra­vel leituðu til okk­ar og þurft­um ekki að hugsa okk­ur um. Við vor­um klár. Það eru tíu stang­ir á Alp­hon­se og við erum með fimm laus pláss,“ sagði Ólaf­ur Vig­fús­son í sam­tali við Sporðaköst.

Hvernig hafa und­ir­tekt­irn­ar verið?

„Við höf­um fyrst og fremst fengið fyr­ir­spurn­ir frá er­lend­um vin­um okk­ar sem ætla að koma með en við vilj­um endi­lega fá sem flesta ís­lend­inga í svona æv­in­týri.“

Það eru alls konar fiskar sem eru í boði við …
Það eru alls kon­ar fisk­ar sem eru í boði við Alp­hon­se. Stór­ir og litl­ir og lit­skrúðugir. Ljós­mynd/​Veiðihornið

Þið eruð að „hosta“ þessa ferð. Hvað felst í því?

„Jú, við höf­um um­sjón með fólk­inu okk­ar sem veiðir með okk­ur, leiðbein­um því en erum þó ekki gæd­ar í þeim skiln­ingi. Við tök­um á mál­um sem kunna að koma upp. 

Við sjálf höf­um stundað „saltwater“ veiði á vet­urna í fjölda­mörg ár. Ég segi stund­um við vini mína, „Þegar þú ert að skafa bíl­rúðurn­ar í myrkr­inu og skítak­ulda heima er ég ein­hversstaðar á stutt­bux­un­um að velta fyr­ir mér hvaða flugu ég eigi að setja næst und­ir.
Það er fjör að veiða stóra fiska.
Það er fjör að veiða stóra fiska. Ljós­mynd/​Veiðihornið
Þó við séum að und­ir­búa þessa ferð í janú­ar um þess­ar mund­ir erum við þó með hug­ann við næstu ferð okk­ar sem verður far­in í októ­ber en þá ætl­um við að heim­sækja Pir­arucu í Bras­il­íu að kasta fyr­ir stærsta ferskvatns­fisk sem tek­ur flugu. Á þeim slóðum er Arapaima en hann get­ur orðið allt að 200 kíló. Ég er að panta flug­ur fyr­ir þá ferð þessa dag­ana og æfa hnút­ana.“
En ertu al­veg hætt­ur að veiða hér heima?
Nei, síður en svo. Ég kýs samt frem­ur að hjálpa ís­lensk­um veiðimönn­um og miðla af minni reynslu og þekk­ingu á sumr­in, þegar okk­ar vertíð stend­ur yfir en fara svo á vit æv­in­týr­anna þegar sel­síus­inn fell­ur hér heima. Satt best að segja elska ég að standa á búðargólf­inu og miðla af minni reynslu og gefa góð ráð.“
Óli og María með þann stóra. GT er fiskur sem …
Óli og María með þann stóra. GT er fisk­ur sem marga veiðimenn dreym­ir um. Ljós­mynd/​Veiðihornið

Hversu sér­stakt er að fara til Alp­hon­se?
„Það er al­gert æv­in­týri og ein­stök upp­lif­un. Bæði í veiði og svo öllu hinu. Við búum í A–hús­um og ferðumst um eyj­una á reiðhjól­um. Svæðið þar sem fólk kem­ur sam­an í morg­un- og kvöld­mat er æv­in­týra­lega fal­legt. Þjón­ust­an er frá­bær og mat­ur­inn, maður minn.
Á kvöldin er slakað á og rætt um ævintýri dagsins.
Á kvöld­in er slakað á og rætt um æv­in­týri dags­ins. Ljós­mynd/​Veiðihornið

Það er hægt að gera meira þarna held­ur en „bara“ að veiða. T.a.m. er boðið upp á köf­un, eða snorkl og ýms­ar skoðun­ar­ferðir og fróðleik um þenn­an stað sem er stór­merki­leg­ur fyr­ir dýra­líf.“
Óli og María hafa veitt flesta fiska sem bjóðast á Alp­hon­se en eiga þó enn eft­ir að bæta ein­hverj­um í safnið.
Veiðihornið er sam­starfsaðili Sporðak­asta
mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.
101 cm Laxá í Aðal­dal Agn­ar Jón Ágústs­son 10. ág­úst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert