Miðfjarðará og Kjós núlluðu – Kjarrá 5

Birgir Örn Brynjólfsson með lax sem hann fékk í morgun …
Birgir Örn Brynjólfsson með lax sem hann fékk í morgun í Kjarrá á Gilsbakkaeyrum. Fimm komu á land þar á opnunarvakt. Ljósmynd/Ingólfur Ásgeirsson

Öðru­vísi mér áður brá. Veiðimenn sem opnuðu Miðfjarðará og Laxá í Kjós lönduðu eng­um laxi í morg­un. Sett var í nokkra laxa í báðum ám en eng­inn kom á land. Í Kjar­rá lönduðu veiðimenn fimm löx­um og misstu fjóra.

Í Kjar­rá vissu menn að fyrsta vor­gang­an var kom­in upp eft­ir. Það stóð líka heima að þar setti meist­ari Tóti tönn í þann fyrsta nán­ast í fyrsta kasti í Rétt­ar­hyl. Reynd­ist vera 80 sentí­metra hrygna. Þessi 87 ára höfðingi gaf þar með tón­inn. Þá veidd­ust fjór­ir aðrir lax­ar og voru þeir all­ir áþekk­ir að stærð og sá sem Tóti fékk. Fjór­ir lax­ar misst­ust og heilt yfir voru menn sátt­ir með þessa fyrstu vakt. Veitt er á sjö stang­ir í Kjar­rá og stend­ur opn­un þar í þrjá og hálf­an dag. Ingólf­ur Ásgeirs­son leigutaki seg­ir að það sé gert svo all­ar stang­ir nái öll­um svæðum tvisvar. „Vatnið núna í Kjar­rá er eins og gott júlí vatn, segja þeir sem best þekkja til.“

Erlendur veiðimaður þreytir lax í Kjarrá í morgun og undirbýr …
Er­lend­ur veiðimaður þreyt­ir lax í Kjar­rá í morg­un og und­ir­býr lönd­un. Ljós­mynd/​Ingólf­ur Ásgeirs­son

Í Miðfjarðará gerðist það í fyrsta skipti frá því að Rafn Val­ur Al­freðsson tók við ánni, að opn­un­ar­holl kom í hús eft­ir fyrstu vakt og fisk­laus­ir. „Það er bara ekki mikið af fiski í henni, enn sem komið er. Menn sáu fiska á nokkr­um stöðum og misstu fiska í Klett­spolli í Austurá og ann­an í Kist­un­um í Vesturá. Þetta kom mér vissu­lega á óvart en við höf­um upp­lifað erfiðar opn­an­ir og gott veiðisum­ar og góðar opn­an­ir og slakt veiðisum­ar. Séð all­ar út­gáf­ur og það er lítið hægt að lesa í hvernig tíma­bilið verður, út frá þessu. Hann kem­ur,“ sagði Rafn Val­ur Al­freðsson í sam­tali við Sporðaköst. 

Sjálf­ur veiddi hann neðsta svæðið í morg­un, sjálfa Miðfjarðará og sá ekki fisk.

Birgir Örn þreytir laxinn á Gilsbakkaeyrum. Sól og varla ský …
Birg­ir Örn þreyt­ir lax­inn á Gils­bakka­eyr­um. Sól og varla ský á himni. Ljós­mynd/​Ingólf­ur Ásgeirs­son

Í Laxá í Kjós hófst veiði einnig í morg­un. Þar er vatns­leysi farið að setja mark sitt á Kjós­ina. En eins og í Miðfirðinum var eng­um laxi landað í morg­un. „Það er tölu­vert síðan að við sáum fyrstu lax­ana og það er komið drjúgt af fiski. Vissu­lega setti fólk í laxa en þeir sluppu. Skil­yrðin eru væg­ast sagt öm­ur­leg. Stíf vestanátt ís­köld upp ána og áin hef­ur ekki verið svona vatns­lít­il í þrjá­tíu ár, ef und­an­skilið er 2019. Við þurf­um að bíða eft­ir að skil­yrði batni. Hann er mætt­ur og okk­ar tími mun koma,“ sagði Har­ald­ur Ei­ríks­son leigutaki í Kjós.

Veitt er á fjór­ar stang­ir í opn­un í Kjós­inni og ef að hæg­ir með kvöld­inu þá fáum við mynd­ir bæði úr Kjós og Miðfirði.

Tóti með þann fyrsta í morgun úr Kjarrá. Það er …
Tóti með þann fyrsta í morg­un úr Kjar­rá. Það er svo við hæfi að Tóti tönn fékk fyrsta lax­inn í Kjar­rá 2025. Ljós­mynd/​Eg­ill Guðjohnsen
mbl.is

Sein­ustu hundraðkall­ar sum­ars­ins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dag­setn­ing Dags.
100 cm Sandá í Þistil­f­irði Eiður Pét­urs­son 24. júní 24.6.
Veiðiárið 2024:
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarna­son 19. sept­em­ber 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stef­áns­son 4. sept­em­ber 4.9.
101 cm Laxá í Döl­um Hafþór Jóns­son 27. ág­úst 27.8.
102 cm Hauka­dalsá Ármann Andri Ein­ars­son 23. ág­úst 23.8.
103 cm Laxá í Aðal­dal Birg­ir Ell­ert Birg­is­son 12. ág­úst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðal­dal Máni Freyr Helga­son 11. ág­úst 11.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert