Greinar fimmtudaginn 20. maí 2010

Fréttir

20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 47 orð | 1 mynd

Arna Ýrr valin í Glerárkirkju á Akureyri

Valnefnd Glerárprestakalls á Akureyri hefur ákveðið að leggja til að sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir verði skipuð prestur í Glerárprestakalli frá og með 1. júní nk. Arna er upprunnin Akureyringur en fjórir umsækjendur voru um embættið. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Auka öryggi um borð í fiskiskipum

Tilkynnt var í fyrra um 238 slys á sjómönnum til Tryggingastofnunar ríkisins. Þar af voru tvö banaslys. Til mikils er að vinna að auka öryggi sjómanna. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 57 orð | 1 mynd

Á hjóli við Tjörnina

Útivera getur eflt sál og líkama og stöðugt fleiri átta sig á því hve gott er að vera úti í náttúrunni. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 562 orð | 3 myndir

Dómarafélagið ósátt við kjaraskerðingu

fréttaskýring Hlynur Orri Stefánsson hlynurorri@mbl.is Dómarafélag Íslands bíður eftir umsögn Evrópusamtaka dómara um 10 til 15% lækkun dómaralauna sem kjararáð ákvað í mars 2009. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 53 orð | 1 mynd

Enginn án þunglyndislyfja

Heilbrigðisráðuneytið segir að tryggt sé að enginn sjúklingur, sem njóti lyfjameðferðar vegna þunglyndis, verði án lyfja í kjölfar nýrrar reglugerðar um breytta greiðsluþátttöku vegna þunglyndislyfja. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

Enn vex ættbogi Svandísar á Bakkatjörn

Álftin Svandís á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi er nú með fjóra unga og sat fjölskyldan fyrir hjá ljósmyndara Morgunblaðsins í gær, ef til vill vegna þess að ungarnir fóru sína fyrstu sundferð þótt ekki sé hægt að fullyrða það með vissu. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 510 orð | 1 mynd

Eyðimörk eins og á tunglinu

Guðni Einarsson gudni@mbl.is Eðjuflóð, líkast fljótandi pússningarlögun, kom niður Svaðbælisá ofan við Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum um klukkan níu í gærmorgun. Flóðið tók að sjatna upp úr hádeginu. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 61 orð

Fimm á slysadeild eftir harðan skell

Fimm voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl eftir harðan fjögurra bíla árekstur á Stekkjarbakka við Garðheima í Mjódd um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 487 orð | 1 mynd

Flugfélögin hafa áhyggjur af sumrinu

Hlynur Orri Stefánsson hlynurorri@mbl.is „Það sem við höfum mestar áhyggjur af er að bókanir fyrir sumarið hafa nánast stöðvast,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 59 orð | 1 mynd

Forsetinn hélt ræðu í Lissabon

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti í fyrradag setningarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu sem fram fór í Lissabon í boði Norður-Suður-stofnunarinnar (North-South Centre) sem starfar á vegum Evrópuráðsins. Í ræðu sinni fjallaði forsetinn m.a. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 82 orð | 1 mynd

Framhaldsskólanemar á Vísindadögum

Tæplega 20 framhaldsskólanemendur taka nú þátt í Vísindadögum Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri í Borgarfirði. Þessi dagskrá hófst sl. mánudag og lýkur í dag, fimmtudag. Meira
20. maí 2010 | Erlendar fréttir | 306 orð | 1 mynd

Framleiðslan ekki minni síðan 1996

Evrópskir bílaframleiðendur hafa svo sannarlega fundið fyrir áhrifum fjármálahrunsins haustið 2008. Alls runnu 13,4 milljónir fólksbifreiða af færibandinu í álfunni í fyrra en framleiðslan hafði þá ekki verið jafnlítil frá árinu 1996. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 511 orð | 4 myndir

Fræðslan er mikilvæg

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ætla má að hálf fjórða milljón gesta hafi heimsótt Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal í Reykjavík á þeim 20 árum sem liðin eru frá stofnun hans, en haldið var upp á afmælið í gær. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 73 orð

Garðbæingar setja sér lýðræðisstefnu

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt sérstaka stefnu í lýðræðismálum, fyrst íslenskra sveitarfélaga. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Garður kynslóða

Mikið var um dýrðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík í gær þegar haldið var upp á 20 ára afmæli þessa vinsæla viðkomustaðar. „Við segjum stundum að allir komi hingað í garðinn að minnsta kosti þrisvar sinnum á ævinni. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 277 orð | 1 mynd

Gæslan þarf að lækka flugið

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Leigusamningur Landhelgisgæslunnar vegna Dauphin-þyrlunnar Eirar rennur út um mánaðamótin og að öllu óbreyttu fer þyrlan þá úr landi, að sögn Georgs Lárussonar, forstjóra LHG. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 57 orð | 1 mynd

Handverks- og sögusýning í Laugarási

Handverks- og sögusýning verður haldin á Iðufelli í Laugarási um hvítasunnuhelgina. Ýmsir munir verða þar til sýnis frá föstudegi fram á mánudag. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 261 orð

Harpa stendur vart undir vaxtakostnaði

Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Erfitt er að sjá að tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa muni nokkurn tímann standa undir byggingarkostnaði, en byggingin er að stórum hluta fjármögnuð með lánum. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 144 orð | 1 mynd

Hátt verð á aflamarki undanfarið

Undanfarið rúmt eitt og hálft ár hafa verið miklar sveiflur í verði á bæði afla- og krókaaflamarki í þorski, en verðið er nú mjög hátt. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 351 orð | 3 myndir

Hluti bóta til skattsins?

Egill Ólafsson egol@mbl.is Svo gæti farið að fólk sem fengið hefur bætur á grundvelli sjúkdómatryggingar sem það hefur keypt hjá tryggingafélögum fái bakreikning frá skattayfirvöldum á næstunni. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 51 orð

Íslenskur víkingur með bónusvinning

Einn íslenskur spilari í Víkingalottóinu hafði heppnina með sér í gær er hann fékk bónusvinning upp á rúmar 3,7 milljónir króna. Norðmaður fékk aðalvinninginn, nærri 100 milljónir. Miðinn góði, sem gaf bónusinn, var seldur hjá N1 við Ártúnshöfða. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 355 orð | 2 myndir

Leigutakarnir þurfa að bæta tjón á öskubílunum

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nokkur mál hafa komið upp á síðustu vikum þar sem bílaleigubílar hafa skemmst í öskufalli frá Eyjafjallajökli. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 50 orð

Lítið eftir af kolmunnakvótanum

Flest kolmunnaskipanna hafa lokið veiðum á þessari vertíð, sem gengið hefur vel. Í gær var eitt íslenskt skip, Aðalsteinn Jónsson frá Eskifirði, að veiðum suðvestur af Færeyjum. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 134 orð | 1 mynd

Makríll á svipuðu róli og í fyrrasumar en síldin virðist seinna á ferðinni

Leiðangri Hafrannsóknastofnunar til að rannsaka göngur norsk-íslenskrar síldar og makríls lauk í gær. Guðmundur J. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 74 orð | 1 mynd

Miðborgin verði verndarsvæði

Á fundi skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í gær var samþykkt tillaga Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að miðborg Reykjavíkur verði skilgreind sem sérstakt verndarsvæði til samræmis við það sem þekkist í mörgum sögulegum bæjum og borgum í Evrópu og... Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 108 orð | 1 mynd

Mikill áhugi á tímabundnum störfum

Mikil vinna er ávallt lögð í að halda umhverfi Landspítalans við Hringbraut snyrtilegu; félagarnir Hilmar og Jakob voru að störfum í gær. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 140 orð | 1 mynd

Milljarður í kostnað hjá Icelandair

Hlynur Orri Stefánsson hlynurorri@mbl.is Flugfélögin hafa orðið fyrir gríðarlegum tekjumissi vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 68 orð

Mjólkurkvótabannið of hart inngrip?

Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, hefur óskar eftir fundi hið fyrsta í nefndinni þar sem fjallað verði um mjólkurkvótamarkaðsreglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 481 orð | 18 myndir

Nóg er á Reykvíkinga lagt

Fréttaskýring Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst því yfir að hann muni ekki hækka skatta á næsta kjörtímabili. Meira
20. maí 2010 | Erlendar fréttir | 134 orð

Óttast ekki þvinganir

Yfirmaður írönsku kjarnorkustofnunarinnar, Ali Akbar Salehi, segir frekari viðskiptaþvinganir af hálfu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkuáætlunar landsins munu rýra orðstír og trúverðugleika ríkjanna sem muni styðja þær. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 76 orð

Ræða kvikasilfur

Hundruð stjórnmálamanna, embættismanna og sérfræðinga frá öllum þjóðum heims hittast í Stokkhólmi dagana 7.-11. júní nk. til þess að leggja grunn að alþjóðlegum samningi um notkun kvikasilfurs. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 102 orð

Seðlabankinn kaupir skuldabréfasafn

70 milljarðar er skuldaaukning í erlendri mynt *„Seðlabanki Íslands gekk í gær frá kaupum á skuldabréfasafni af Evrópska seðlabankanum í Lúxemborg. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 178 orð | 1 mynd

Sigurði vísað frá Hæstarétti

Hæstiréttur vísaði í gær frá máli Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, en hann fór fram á ógildingu alþjóðlegrar handtökuskipunar. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 187 orð | 1 mynd

Silfurberin frá Silfurtúni

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrstu jarðarberin í ár frá Garðyrkjustöðinni Silfurtúni á Flúðum fóru þaðan í fyrir helgi og gerir Eiríkur Ágústsson, eigandi stöðvarinnar, ráð fyrir að uppskeran verði komin í almenna dreifingu fljótlega. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 365 orð | 1 mynd

Skila ekki reikningum

Egill Ólafsson egol@mbl. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 1174 orð | 6 myndir

Skilgreining vega tímafrekari en bygging Kárahnjúkavirkjunar

Fréttaskýring Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Hjá flestum sveitarfélögum sem liggja að hálendi Íslands er nú verið að ákveða hvaða vegi og vegslóða á hálendinu megi aka og hverja ekki. Sum eru reyndar búin og önnur alveg við að ljúka þessari vinnu. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 65 orð

Skjálftahrina norðaustur af Siglufirði

Skjálftahrina hófst norðvestur af Gjögurtá á sjötta tímanum í gærkvöldi. Urðu skjálftarnir norðaustur af Siglufirði, sá öflugasti var nærri fjögur stig. Fyrsti skjálftinn, um hálfsexleytið, var áberandi stærstur. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 77 orð | 1 mynd

Smávaxinn flugkappi með hvassan gogg

Krían er mikil prýði á Tjörninni í Reykjavík en hún verpir í svonefndum Litlahólma. Oftast eru eggin 1–3. Hún er lítil en ákaflega flugfim og ver egg og unga af harðfylgi. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 600 orð | 7 myndir

Spyrna fast við fótum

Fréttaskýring Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þingmenn í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði hvika ekki frá áskorun þingflokksins á ríkisstjórnina að leita allra leiða til að vinda ofan af einkavæðingu HS Orku. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 104 orð | 1 mynd

Starrar eru friðaðir

Fuglavernd skorar á meindýraeyða að fara að lögum og reglum og eyða ekki starrahreiðum á meðan egg og ungar eru í hreiðrinu, enda er fuglinn alfriðaður. Best er að koma í veg fyrir starravarp með því að loka glufum og rifum sem fuglarnir sýna áhuga. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 228 orð | 1 mynd

Stóla á innflutta stóla

Egill Ólafsson egol@mbl.is Innfluttir stólar frá Frakklandi verða í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni, en hins vegar verða stólar sem hannaðir eru og framleiddir hér á landi í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 91 orð

Styrktarsöfnun fyrir aðstandendur stúlku

Stúlkan sem lifði af bílslys í Reykjanesbæ 24. apríl sl., sem kostaði tvær stúlkur lífið, er á batavegi. Hún hefur verið flutt af gjörgæslu yfir á almenna deild. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 294 orð | 2 myndir

Sungið með eistunum

Fyrirtækið SS Byggir hefur keypt skika úr jörðinni Hlíðarenda ofan Akureyrar. Þar hyggst SS reisa frístundabyggð en málið er á frumstigi. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 223 orð | 1 mynd

Talsverðar truflanir á innanlandsflugi vegna ösku

Millilandaflug var með eðlilegum hætti í gær en er leið á daginn var aflýst áætlunarferðum Flugfélags Íslands til Egilsstaða og Ísafjarðar um kvöldið. Óljóst var hver staðan yrði í dag og voru farþegar hvattir til að fylgjast með fréttum. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 307 orð

Tvítugur piltur kærði nauðgun

Tvítugur piltur hefur lagt fram kæru til lögreglu vegna meintrar kynferðislegar misneytingar af hálfu rétt rúmlega þrítugs karlmanns. Sá var handtekinn í gærmorgun og var tekin af honum skýrsla í gærdag. Meira
20. maí 2010 | Erlendar fréttir | 517 orð | 3 myndir

Útgöngubann í Bangkok

VIÐTALIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hermenn stjórnarhersins vöktuðu hjarta Bangkok í nótt eftir að leiðtogar rauðliða voru þvingaðir til uppgjafar í áhlaupi hersins á vígi þeirra við helstu verslunargötu höfuðborgarinnar í gær. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 218 orð | 1 mynd

Vel hefur fiskast og strandveiðar bannaðar á vinsælasta svæðinu

Strandveiðar eru bannaðar frá og með deginum í dag, 20. maí og út mánuðinn, á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 98 orð | 1 mynd

Ætla að skoða betur söluna á HS Orku

„Ég reikna með að við munum halda áfram umræðum um þessi mál á næstunni og hvort það er með einhverjum hætti hægt að hafa áhrif á þróunina eins og hún blasir við í dag,“ sagði Árni Þór Sigurðsson, varaformaður þingflokks VG, en flokkurinn... Meira
20. maí 2010 | Innlendar fréttir | 76 orð

ÖBÍ gagnrýnir ríkisstjórnina

Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir því harðlega að enn á ný skuli þessi ríkisstjórn sem kennir sig við „velferð“ ráðast að félagslega kerfinu með því offorsi sem félags- og tryggingamálaráðherra boðaði á föstudag síðastliðinn. Meira

Ritstjórnargreinar

20. maí 2010 | Staksteinar | 183 orð | 1 mynd

Allt mjög sérstakt

Flestir kjósa sjálfsagt fremur að hlegið sé með þeim en að þeim. Og satt er það einnig að iðulega eru menn fyndnastir þegar það stendur ekki til. Meira
20. maí 2010 | Leiðarar | 277 orð

Evran við öndunarvélina

Einn hinna þekktari fréttaskýrenda um efnahagsmál, Martin Wolf, segir í blaði sínu Finacial Times að „alveg sé hugsanlegt að evran lifi af“. Þetta hefðu þótt ótrúleg ummæli fyrir fáeinum misserum eða jafnvel mánuðum. Meira
20. maí 2010 | Leiðarar | 294 orð

Gegnsær leikþáttur

Það verður seint sagt að ríkisstjórnin fari laumulega með þau áform sín að leggja auknar byrðar á sjávarútveginn svo hann riði til falls. Meira

Menning

20. maí 2010 | Fólk í fréttum | 201 orð | 1 mynd

Blús í Rangárvallasýslu

Blásið verður til þriggja daga blúshátíðar í Rangárvallasýslu um hvítasunnuhelgina, dagana 21.-24. maí. Hekla Blúsfélag stendur fyrir þessari viðamiklu hátíð sem nú er haldin í annað sinn og ber nafnið Norden Blues Festival 2010. Meira
20. maí 2010 | Fólk í fréttum | 25 orð | 1 mynd

Brúðuheimar opnaðir í Borgarnesi

Brúðuheimar, menningar- og listamiðstöð tengd brúðuleikhúsi, verða opnaðir í Borgarnesi í dag. Grunninn að miðstöðinni lögðu brúðugerðarmaðurinn Bernd Ogrodnik og eiginkona hans, Hildur Jónsdóttur. Meira
20. maí 2010 | Leiklist | 615 orð | 1 mynd

Brúðuheimar vígðir

Árni Matthíasson arnim@mbl.is Í dag verða Brúðuheimar, menningar- og listamiðstöð tengd brúðuleikhúsi, opnaðir í Borgarnesi. Meira
20. maí 2010 | Fólk í fréttum | 192 orð | 1 mynd

Crowe gekk reiður á dyr

Kvikmyndaleikarinn Russell Crowe yfirgaf bálreiður hljóðver útvarpsstöðvarinnar BBC Radio 4 í síðustu viku eftir að stjórnandi þáttarins Front Row , Mark Lawson, sagðist greina írskan hreim í máli hans í kvikmyndinni Robin Hood , eða Hrói höttur. Meira
20. maí 2010 | Fólk í fréttum | 139 orð | 1 mynd

Eiga von á barni

Leikarahjónin John Travolta og Kelly Preston sendu í fyrradag frá sér tilkynningu þess efnis að þau eigi von á barni. Travolta, sem er 56 ára, og Preston, 47 ára, eiga fyrir dótturina Ellu Bleu sem er tíu ára gömul. Meira
20. maí 2010 | Bókmenntir | 87 orð | 1 mynd

Ferðataska finnst á tröppum klausturs

Bókaforlagið Bjartur hefur gefið út skáldsögu Panos Karnezis, Klaustrið , í þýðingu Árna Óskarssonar og tilheyrir hún Neon-bókaflokknum. Í bókinni segir af Klaustri Vorrar frúar sem stendur afskekkt á spænskri sléttu. Meira
20. maí 2010 | Fjölmiðlar | 197 orð | 1 mynd

Fótbolti, fótbolti, fótbolti...

Nú styttist í stundina sem knattspyrnu-unnendur hafa beðið spenntir eftir í heil fjögur ár, heimsmeistaramótið sjálft. Meira
20. maí 2010 | Leiklist | 224 orð | 1 mynd

Heimilistækjasirkus

Leikritið Af ástum manns og hrærivélar verður frumsýnt í kvöld kl. 20:00 í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins. Meira
20. maí 2010 | Kvikmyndir | 314 orð | 6 myndir

Hlátur, grátur og kossaflens á Cannes

Nokkrar af skærustu stjörnum kvikmyndaheimsins hafa verið í miklu stuði á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes sem hófst 12. maí sl. Sumar hafa gerst fjölþreifnar og vart getað hamið sig í kossalátum. Meira
20. maí 2010 | Bókmenntir | 139 orð | 1 mynd

Hnokkinn Cullen

Twilight-bókaröðin eftir Stephenie Meyer er gríðarlega vinsæl meðal ungra kvenna, svo vinsæl reyndar að æ fleiri gefa börnum sínum nöfn eftir sögupersónum bókanna. Meira
20. maí 2010 | Bókmenntir | 90 orð | 1 mynd

Hollensk verðlaunabók í kilju

Út er komin skáldsagan Kvöldverðurinn eftir Hermann Koch. Um bókina segir m.a: „Bræðurnir Paul og Serge sitja á glæsilegu veitingahúsi ásamt eiginkonum sínum. Á yfirborðinu virðist allt slétt og fellt. Þau spjalla um kvikmyndir, sumarleyfi ... Meira
20. maí 2010 | Kvikmyndir | 383 orð | 2 myndir

Krúttlegur véldrengur

Leikstjóri David Bowers, handrit Osamu Tezuka og Timothy Harris. Raddir meðal annars Nicolas Cage, Kristen Bell og Donald Sutherland. Bandaríkin 2009. Meira
20. maí 2010 | Kvikmyndir | 240 orð | 1 mynd

Kvikmyndanámskeið á Eiðum

„Þetta byrjaði nú þannig að ég bjó til verkefni sem heitir Cinema Maximus og fékk peninga til að efla kvikmyndagerð á Austurlandi með námskeiðahaldi til að auka þekkingu heimafólks á tæknimálum og öðru sem snýr að kvikmyndagerð,“ segir... Meira
20. maí 2010 | Fólk í fréttum | 758 orð | 2 myndir

Leðurlungun lokast

AF MÁLMI Orri Páll Ormarsson orr@mbl.is Enginn maður, lífs eða liðinn, ber meiri ábyrgð á því að ég ánetjaðist málmi en Ronnie James Dio, sem hélt á fund feðra sinna síðastliðinn sunnudag, 67 ára að aldri. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 87 orð | 1 mynd

Myrkt og magnað

Ef það væri hægt að deyja úr hamingju yfir útgáfu eins geisladisks, hefði ég dáið eftir að ég hlustaði á High Violet í fyrsta skipti. Þvílíkt meistaraverk. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 144 orð | 1 mynd

Námskeið fyrir unga söngvara

Um hvítasunnuna, 22. og 23. maí, heldur Hrólfur Sæmundsson óperusöngvari námskeið fyrir unga söngvara í sal Söngskólans í Reykjavík. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 109 orð | 1 mynd

Nóg að gera hjá Hvanndalsbræðrum í sumar

* Í dag kemur ný plata frá hinum hressu Hvanndalsbræðrum í verslanir. Á plötunni er að finna 12 lög og þar á meðal eru „LA LA lagið“, „Fjóla“, „Vinkona“ og Evróvisjónlagið „Gleði og glens“. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 73 orð | 1 mynd

Nýstárleg blanda á Sódómu í kvöld

* Í kvöld á Sódómu Reykjavík munu tónlistarmennirnir Matthew Collings og Mikael Lind flytja frumsamda tónlist sína. Collings er breskur gítarleikari og lagasmiður. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 104 orð | 1 mynd

OkiDoki með Maíhem á Venue næstu dagana

* Fjögurra daga tónleikaveislan Maíhem á vegum OkiDoki hefst á skemmtistaðnum Venue í kvöld. Veislan er haldin í tilefni þess að skemmtistaðurinn hefur nú fjárfest í nýjum tónleikagræjum og mun fjöldi hljómsveita koma fram á staðnum í tilefni þess. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 145 orð | 2 myndir

Pottþétt, Evróvisjón og Dikta

Platan Pottþétt 52 heldur fyrsta sætinu á Tónlistanum þessa vikuna með sínum margvíslegu smellum og í næsta sæti er plata með lögunum sem keppa í Evróvisjón í ár. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 43 orð

Snorri á JaJaJa og semur fyrir Klæði

Snorri Helgason heldur tónleika með hljómsveit sinni á norrænu tónlistarhátíðinni JaJaJa í London á tónleikastaðnum The Lexington í kvöld kl. 19. Meira
20. maí 2010 | Myndlist | 80 orð | 1 mynd

Suðurland í öllu sínu veldi

Ljósmyndaklúbburinn Blik á Suðurlandi stendur að ljósmyndasýningu í Hótel Selfossi í tilefni af héraðshátíðinni Vor í Árborg. Á sýningunni, sem ber heitið Suðurland í öllu sínu veldi , eru 92 ljósmyndir eftir félagsmenn. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 78 orð | 1 mynd

Sum lög hreinlega ofhugsuð

Stundum vinnur dýrara liðið ekki kappleikinn og stundum gefa hljómsveitir skipaðar snillingum ekki út bestu plöturnar. Í The New Pornographers er mikið af kláru tónlistarfólki, eins og AC Newman, Dan Bejar og söngkonan Neko Case. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 64 orð | 1 mynd

Vel unnin rokktónlist

Meðlimir The Hold Steady lýsa tónlist sinni sem klassísku rokki. Heaven Is Whenever er fimmta platan sem þeir senda frá sér. Á plötunni má finna skemmtilega og melódíska rokktónlist sem er vel útfærð og þétt í alla staði. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 787 orð | 2 myndir

Þjóðlagasöngvari með meiru

Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarmennirnir Benni Hemm Hemm og Alasdair Roberts munu koma fram á tónleikunum Ryk á Book , ásamt Blásarasveit Reykjavíkur undir stjórn Tryggva M. Baldvinssonar, hinn 3. júní nk. Meira
20. maí 2010 | Tónlist | 37 orð

Þórarinn býður til sumartónleika

Dixielandband Árna Ísleifssonar og Stórsveit Öðlingaklúbbs FÍH munu halda sumartónleika í Bókasafni Seltjarnarness á morgun kl. 16. Þórarinn Óskarsson, básúnuleikari í Dixielandbandi Árna Ísleifssonar og fastagestur safnsins, býður upp á tónleikana. Meira

Umræðan

20. maí 2010 | Aðsent efni | 336 orð | 1 mynd

Af hverju nýtt framboð í Garðabæ – Fólkið – í bænum?

Ragný Þóra Guðjohnsen: "Framboðið Fólkið – í bænum býður nú fram í fyrsta sinn í Garðabæ. Frambjóðendur þess eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á málefnum og velferð Garðabæjar og vilja efla þar skapandi og gagnrýna umræðu um bæjarmálin." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 646 orð | 1 mynd

Boðsferðirnar og ábyrgðin

Eftir Helga Laxdal: "Þá er ekki öðrum um að kenna en viðkomandi stjórn sem þá ber að stíga til hliðar ef hún metur það svo að boðsferðirnar hafi keyrt úr hófi fram." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 635 orð | 1 mynd

Félagsmálaráðherra stingur ályktunum aldraðra undir stól

Eftir Björgvin Guðmundsson: "Afnema þarf allar skerðingar hér á landi og færa almannatryggingar hér í sama horf og í hinum norrænu löndunum." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 704 orð | 1 mynd

Flyst fjárveitingarvaldið líka til Brussel?

Eftir Einar Kristin Guðfinnsson: "Teljum við það koma til greina að fjárveitingarvaldið, sem stjórnarskráin okkar hefur falið Alþingi, verði framvegis úti í Brussel?" Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 309 orð | 1 mynd

Frjáls sameining með skýrum samningsmarkmiðum

Eftir Snorra Finnlaugsson: "Í þeirri stöðu sem sveitarfélagið Álftanes er hefur umræðuna um sameiningu borið hátt. Við frambjóðendur D-listans ætlum að eiga frumkvæði að formlegum sameiningarviðræðum við önnur sveitarfélög með hagsmuni Álftnesinga að leiðarljósi." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 782 orð | 1 mynd

Hver er grínistinn?

Eftir Halldór Armand Ásgeirsson: "Forsvarsmenn alvarlegu flokkanna ættu kannski að byrja á því að endurskoða sínar eigin stefnuskrár. Óskýrari og andlausari plögg eru vandfundin." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 240 orð | 1 mynd

Hverjum treystið þið fyrir velferðinni?

Eftir Helgu Þórðardóttur: "Það er erfitt að spara þegar maður er góðu vanur en flestir draga úr óþarfa en halda í nauðsynjar þegar að kreppir. Við í Frjálslynda flokknum teljum velferðina vera nauðsyn og ætlum að verja hana." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 639 orð | 1 mynd

Jarðvegur og líffræðileg fjölbreytni

Eftir Önnu Maríu Ágústsdóttur: "Hérlendis hefur stöðvun jarðvegsrofs og uppgræðsla þar sem vel hefur tekist til að stöðva eyðingu og snúa við hnignun gróðurlenda, verið mikilvæg til að vernda, viðhalda og endurreisa líffræðilega fjölbreytni." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 324 orð | 1 mynd

Kirkjusandsfangelsi leysir allan aðkallandi vanda

Eftir Ágúst Má Garðarsson: "Það er ófremdarástand í fangelsismálum landsins, eins og fram kemur í fréttum síðustu vikna eru menn ekki teknir til afplánunar í lengstu lög." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 317 orð | 1 mynd

Kópavogsbrú vinstriflokkanna er rugl

Eftir Gunnar I. Birgisson: "Ekki blæs byrlega í atvinnumálum þjóðarinnar um þessar mundir. Yfir sextán þúsund manns eru atvinnulausir og lítil batamerki sjást. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er algert." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 319 orð | 1 mynd

Með mannvirðingu að leiðarljósi

Eftir Önnu Guðný Júlíusdóttur: "Margt hefur breyst í íslensku samfélagi á síðustu misserum. Ríkjandi gildismat var orðið brenglað þar sem mikil áhersla á efnishyggju varð til þess að önnur lífsgildi féllu í skuggann." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 770 orð | 1 mynd

Mikilvægasti leikurinn er framundan

Eftir Ragnar Önundarson: "Sá leikur sem við sjáum fram undan er „landsleikur“ þar sem við stöndum öll saman og höfum sigur. Förum heim bæði með gull og silfur." Meira
20. maí 2010 | Aðsent efni | 583 orð | 1 mynd

Múlagöngin ólögleg

Eftir Guðmund Karl Jónsson: "Of mörg dæmi eru til um að flutningabílar sem fara inn í göngin úr báðum áttum loki inni vegfarendur, lögreglu, slökkviliðs- og sjúkrabíla þegar mínútur skilja milli lífs og dauða." Meira
20. maí 2010 | Pistlar | 425 orð | 1 mynd

Skilaboð til stjórnmálamanna

Hinn mikli stuðningur Reykvíkinga við framboð Besta flokksins stafar ekki af því að borgarbúar hafi svo einstaklega mikla kímnigáfu að þeir vilji gera lýðræðislegar kosningar að sprelli. Meira
20. maí 2010 | Velvakandi | 309 orð | 1 mynd

Velvakandi

Gróður í hrjóstrugu landi Enn er ráðist gegn lúpínunni ( einnig skógarkerfli, sitkagreni og öspinni), þeim gróðri sem hefur kraft til þess að festa rætur í einu hrjóstrugasta landi á byggðu bóli heimsins, sem hinu versta illgresi. Meira

Minningargreinar

20. maí 2010 | Minningargreinar | 1141 orð | 1 mynd

Anna Barbara Þorleifsson

Anna Barbara Þorleifsson fæddist í Hamborg-Altona 17. apríl 1937. Hún lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 13. apríl 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 691 orð | 1 mynd

Benny Hrafn Magnússon

Benny Hrafn Magnússon fæddist í Kaupmannahöfn 2. október 1925. Hann lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Boðaþingi, aðfaranótt 11. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Elly Magnússon, f. Larsen 1905, d. 1966, og Þórarinn Magnússon, f. 1897, d. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 836 orð | 1 mynd

Einar Haukur Eiríksson

Einar Haukur Eiríksson fæddist á Ísafirði 8. des. 1923. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. maí sl. Útför Einars Hauks Eiríkssonar var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 19. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1163 orð | 1 mynd

Elísabet Jónsdóttir

Elísabet Jónsdóttir fæddist á Breiðabólstað í Miðdalahreppi í Dalasýslu hinn 11.10. 1924. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. maí síðastliðinn. Útför Elísabetar fór fram frá Seljakirkju 19. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 978 orð | 1 mynd

Erla Lára Guðmundsdóttir

Erla Lára Guðmundsdóttir fæddist í Stykkishólmi 8. júlí 1930. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 7. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson, kaupmaður í Stykkishólmi, f. í Dúná í Hörðudalshreppi í Dalasýslu 25. feb. 1888, d. 8. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 135 orð | 1 mynd

Gísli Ólafur Emilsson

Gísli Ólafur Emilsson, f. 16. september 1924, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Garðvangi 28. apríl 2010. Útför Gísla fór fram í kyrrþey frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 6. maí sl. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 639 orð | 1 mynd

Guðríður Halldórsdóttir

Guðríður Halldórsdóttir fæddist 9. maí 1915 í Bolungarvík. Hún lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, 11. maí 2010. Útför Guðríðar var gerð frá Akraneskirkju 19. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 440 orð | 1 mynd

Halldóra Daníelsdóttir

Halldóra Daníelsdóttir fæddist í Súðavík 30. ágúst 1929. Hún andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði að morgni þriðjudagsins 20. apríl 2010. Útför Halldóru fór fram frá Ísafjarðarkirkju 27. apríl 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 4503 orð | 1 mynd

Hallgrímur Skúli Karlsson

Hallgrímur Skúli Karlsson fæddist í Reykjavík 20. maí 1960. Hann lést 9. maí á heimili sínu Bugðutanga 9 í Mosfellsbæ. Skúli var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík 18. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 617 orð | 1 mynd

Henny Torp Kristjánsson

Henny fæddist á Borgundarhólmi í Danmörku hinn 25. mars 1937. Hún lést á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn 27. apríl 2010. Útför Hennyjar fór fram frá Fossvogskirkju 10. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 2280 orð | 1 mynd

Huld Kristmannsdóttir

Huld Kristmannsdóttir fæddist í Steinholti, Vestmannaeyjum, 19. febrúar 1917. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 10. maí 2010. Útför Huldar fór fram frá Fossvogskirkju 19. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1198 orð | 1 mynd

Inga Þorgeirsdóttir

Inga Þorgeirsdóttir fæddist á Hlemmiskeiði á Skeiðum 2. febrúar 1920. Hún lést 30. apríl 2010. Útför Ingu fór fram frá Hallgrímskirkju 10. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 435 orð | 1 mynd

Ingibjörg Sigríður Hjörleifsdóttir

Ingibjörg Sigríður Hjörleifsdóttir fæddist á Sólbakka í Önundarfirði 20. ágúst 1928. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 5. apríl 2010. Útför Ingibjargar fór fram frá Holtskirkju í Önundarfirði 21. apríl 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 208 orð | 1 mynd

J. Grétar Þorvaldsson

J. Grétar Þorvaldsson fæddist í Hlíð í Garði 21.9. 1933. Hann lést 5.5. 2010. J. Grétar var jarðsunginn frá Grensáskirkju 17. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1312 orð | 1 mynd

Kristín Bryndís Björnsdóttir

Kristín Bryndís Björnsdóttir fæddist á Skálum á Langanesi 10. mars 1924. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 10. maí sl. Útför Bryndísar fór fram frá Grafarvogskirkju 17. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 945 orð | 1 mynd

Lilja Bjarnadóttir

Lilja Bjarnadóttir fæddist í Háu-Kotey í Meðallandi, Vestur-Skaftafellssýslu 26. júlí 1919. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 27. apríl 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Pálsson frá Prestbakka á Síðu, f. 28. júlí 1884, d. 22. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 904 orð | 1 mynd

Magnús Þórðarson

Magnús Þórðarson fæddist 9. september 1925 á Staðarhóli í Höfnum. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 11. maí 2010. Útförin fór fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 19. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 2850 orð | 1 mynd

Margrét Gunnlaugsdóttir

Margrét Gunnlaugsdóttir fæddist í Reykjavík 5. apríl 1927. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 10. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Gunnlaugur Indriðason veðurfræðingur, fæddur á Keldunesi í Kelduhvefi 14.4. 1894, d. 25.1. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 526 orð | 1 mynd

Margrét Jósefína Ponzi

Margrét Jósefína Ponzi fæddist í Reykjavík 2. maí 1961. Hún lést á sjúkrahúsi í Bologna á Ítalíu 18. mars síðastliðinn. Minningarathöfn um Margréti var haldin í Mosfellskirkju, Mosfellsdal, 2. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1701 orð | 1 mynd

Markús Kristmundur Stefánsson

Markús Kristmundur Stefánsson fæddist á Móum í Keldudal í Dýrafirði hinn 23. janúar 1928. Hann lést á líknardeild Landakots hinn 8. maí síðastliðinn. Útför Markúsar fór fram frá Bústaðakirkju 17. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1027 orð | 1 mynd

Ólafur Hólm Einarsson

Ólafur Hólm Einarsson fæddist í Reykjavík 17. júní 1914. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 6. maí 2010. Ólafur var jarðsunginn frá Háteigskirkju 19. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1009 orð | 1 mynd

Sigfríður Theódórsdóttir Bjarnar

Sigfríður Theódórsdóttir Bjarnar kennari fæddist í Reykjavík 10. ágúst 1920. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 9. maí sl. Útför Sigfríðar fór fram frá Kópavogskirkju 19. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 686 orð | 1 mynd

Sigrún Á. Kristjánsdóttir

Sigrún Á. Kristjánsdóttir fæddist 26. apríl 1936 að Vestara-Landi í Öxarfirði. Hún lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri þann 20. apríl sl. Foreldrar Sigrúnar voru hjónin Kristján Jónsson, f. 15. október 1895 í Ási í Kelduhverfi, d. 14. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 488 orð | 1 mynd

Sigtryggur Jónsson

Sigtryggur Jónsson fæddist í Reykjavík 9. júní 1954. Hann lést í Bandaríkjunum 25. apríl 2010. Útför hans fór fram í Brewster, NY, 1. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 501 orð | 1 mynd

Sigurbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir

Sigurbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir fæddist á Rútsstöðum í Svínadal, A-Hún., 27. september 1917. Hún andaðist á dvalarheimilinu Grund hinn 8. maí síðastliðinn. Útför Sigurbjargar var gerð frá Dómkirkjunni 18. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1861 orð | 1 mynd

Sýrus Guðvin Magnússon

Sýrus Guðvin Magnússon fæddist 27. desember 1931 á Hellissandi. Hann lést á Landakoti 8. maí síðastliðinn. Foreldrar Sýrusar voru hjónin Ásta Gilslaug Sýrusdóttir, f. 16.4. 1890, d. 31.7. 1966, og Magnús Ólafsson, f. 19.9. 1890, d. 10.2. 1969. Meira  Kaupa minningabók
20. maí 2010 | Minningargreinar | 1319 orð | 1 mynd

Victor Hans Halldórsson

Victor Hans Halldórsson bifreiðastjóri fæddist í Reykjavík 26. mars 1923. Hann lést á líknardeild Landspítalans á Landakoti 1. maí 2010. Útför Victors Hans fór fram frá Fossvogskirkju 10. maí 2010. Meira  Kaupa minningabók

Daglegt líf

20. maí 2010 | Daglegt líf | 101 orð | 1 mynd

...farið á sýninguna Heklað í herberginu í Kirsuberjatrénu

Í dag verður opnuð í Kirsuberjatrénu á Vesturgötu 4 sýningin Heklað í herberginu. Það eru nítján listamenn sem eiga myndir á sýningunni og eru þær allar heklaðar. Verkin eru í stærðinni 25x25 og eru fjölbreytt og skemmtileg. Meira
20. maí 2010 | Daglegt líf | 684 orð | 2 myndir

Heimsyfirráð eða dauði fyrir ferskan fisk á disk

Hún er baráttukona og ætlar að leggja sitt af mörkum til að almenningur geti keypt ferskt fiskmeti á útimarkaði í sumar. Erna Kaaber er ein þeirra sem standa að þessu tilraunaverkefni við gömlu verbúðirnar við Reykjavíkurhöfn í sumar. Meira
20. maí 2010 | Daglegt líf | 308 orð | 1 mynd

Heimur prjónsins á einum stað

Fyrir þá sem hafa áhuga á að prjóna og hekla er vefsíðan Prjóna.net ómissandi félagi. Tilgangur síðunnar er að vera upplýsingatorg prjónara og á henni á að vera hægt að fylgjast með öllu því sem er að gerast í heimi prjónsins á Íslandi sem og á netinu. Meira
20. maí 2010 | Neytendur | 605 orð

Helgartilboð

Bónus Gildir 20.-23. maí verð nú áður mælie. verð Bónus ferskar kjúklingabr. 1.598 1.998 1.598 kr. kg Bónus vængir, eldaðir, 460 g 459 498 459 kr. kg Merrild kaffi 103, 500 g 495 594 990 kr. kg Bónus kleinur, 15 stk. 298 359 20 kr. stk. Meira
20. maí 2010 | Daglegt líf | 160 orð | 1 mynd

Kryddjurtafylltur kjúklingur á grillið

Þessi uppskrift byggist á því að troða kjúklinginn út af kryddjurtum og sítrónum og grilla hann svo lengi á óbeinum hita. „Fyllingin“ er ekki borðuð en safinn úr sítrónunum og rósmarínið gefa honum einstaklega gott bragð. Meira
20. maí 2010 | Daglegt líf | 79 orð | 2 myndir

Skemlauppboð í Gylfaflöt

Gylfaflöt er dagþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16-25 ára sem rekin er í Bæjarflöt 17 í Kópavogi. Þar hafa ungmennin meðal annars unnið að því undanfarið að skreyta fótskemla sem seldir verða á uppboði á föstudaginn kl. 15. Meira

Fastir þættir

20. maí 2010 | Í dag | 166 orð

Af svefni og skítaklessu

Gylfi Þorkelsson horfði út um gluggann á nýsleginn blettinn. Þegar tíkin kom inn varð honum að orði: Nú er úti veður vott, vex allt hratt í þessu. Við augum blasir flötin flott með fúla skítaklessu. Meira
20. maí 2010 | Fastir þættir | 160 orð

Brids - Guðmundur S. Hermannsson | ritstjorn@mbl.is

8 spil betri en 10 Norður &spade;ÁKD4 &heart;9752 ⋄932 &klubs;106 Vestur Austur &spade;52 &spade;1076 &heart;6 &heart;KG ⋄D875 ⋄G106 &klubs;ÁKG943 &klubs;D8752 Suður &spade;G983 &heart;ÁD10843 ⋄ÁK4 &klubs;– Hvað á norður að... Meira
20. maí 2010 | Fastir þættir | 367 orð

BRIDS - Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

Tuttugu pör í sumarbrids 20 pör mættu til leiks fyrsta spilakvöld sumarbrids miðvikudaginn 12. maí. Efstar voru Guðrún Jóhannesdóttir og Arngunnur Jónsdóttir með rúmlega 63% skor. Efstu pör voru: Guðrún Jóhannesd. - Arngunnur Jónsd. 66 Soffía Daníelsd. Meira
20. maí 2010 | Árnað heilla | 34 orð | 1 mynd

Demantsbrúðkaup

Frú Unnur Axelsdóttir og sr. Hjörtur Hjartarson, fyrrverandi sóknarprestur, eiga sextíu ára brúðkaupsafmæli í dag, 20. maí. Þau halda upp á þessi tímamót í faðmi fjöskyldunnar á heimili sonar síns Sveins Hjartar í... Meira
20. maí 2010 | Árnað heilla | 185 orð | 1 mynd

Nóg að gera í Sæferðum

„Það er þakkarvert að ná þessum áfanga,“ sagði Hafsteinn Ingólfsson, kafari og annar eigandi Sjóferða Hafsteins og Kiddýjar á Ísafirði. Hann er sextugur í dag. Sumarvertíðin hjá Sjóferðum er að byrja og stendur fram í september. Meira
20. maí 2010 | Í dag | 21 orð

Orð dagsins: Enginn er þinn líki, Drottinn! Mikill ert þú og mikið er...

Orð dagsins: Enginn er þinn líki, Drottinn! Mikill ert þú og mikið er nafn þitt sakir máttar þíns. (Jeramía 10, 6. Meira
20. maí 2010 | Árnað heilla | 27 orð | 1 mynd

Reykjavík Brynjar Sveinn Austmann fæddist 18. október kl. 5.35. Hann vó...

Reykjavík Brynjar Sveinn Austmann fæddist 18. október kl. 5.35. Hann vó 1.880 g og var 44 cm langur. Foreldrar hans eru Sif Sveinsdóttir og Björgvin Austmann... Meira
20. maí 2010 | Fastir þættir | 154 orð | 1 mynd

Skák - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. d4 f5 2. Rf3 Rf6 3. g3 e6 4. Bg2 d5 5. 0-0 Bd6 6. c4 c6 7. b3 Rbd7 8. Bb2 0-0 9. Re5 Bxe5 10. dxe5 Rg4 11. cxd5 cxd5 12. Dd4 Rb8 13. f4 Rc6 14. Dc5 Bd7 15. h3 b6 16. Dc1 Rh6 17. Rc3 Hc8 18. Dd2 De7 19. Hfd1 Hfd8 20. Hac1 Ra5 21. e3 Be8 22. Bf3 Db4... Meira
20. maí 2010 | Fastir þættir | 293 orð

Víkverjiskrifar

Peningar eru ekki bara af skornum skammti á Íslandi. Meira
20. maí 2010 | Í dag | 103 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

20. maí 1944 Þjóðaratkvæðagreiðsla um lýðveldisstofnun hófst, en hún stóð í fjóra daga. Kjörsókn var 98,4%, sem mun vera einsdæmi í lýðræðisríki. Um 97,4% samþykktu sambandsslit við Dani og 95,0% lýðveldisstjórnarskrána. 20. Meira

Íþróttir

20. maí 2010 | Íþróttir | 480 orð | 2 myndir

Anton vill semja aftur við Val

Kristján Jónsson kris@mbl.is Upp er komin heldur sérkennileg og óvenjuleg staða varðandi samningsmál handknattleiksmannsins efnilega, Antons Rúnarssonar. Valur gerði samning við Anton árið 2008 og gildir hann til ársins 2011. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 349 orð

„Er að fara aðeins á svig við regluna“

„Eiður Smári [Guðjohnsen] verður ekki í leikhæfu ástandi 29. maí. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 146 orð

„Ég verð að skilja við Val núna“

„Það var auðvitað alltaf stefnan að koma heim og spila með Val en ég verð að skilja við félagið núna. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 561 orð | 2 myndir

„Gott að stinga upp í spekingana“

Viðtal Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Sif Atladóttir landsliðskona í knattspyrnu hefur tekið stór stökk á ferlinum frá því hún lék með Þrótti R. fyrir fjórum árum. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 447 orð | 1 mynd

„Ólafur beið eftir rétta tækifærinu“

Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Mér gekk náttúrulega mjög vel í vetur þannig að maður vonaðist eftir því að verða valinn sem fyrst. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 121 orð | 1 mynd

Boston er á siglingu

Boston Celtics stefnir hraðbyri í NBA-úrslitin eftir annan útisigur á Orlando Magic, 95:92, í úrslitum Austurdeildarinnar í fyrrinótt og meistararnir frá 2008 eru þar með komnir í 2:0. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 194 orð | 1 mynd

Fimmti bikarmeistaratitill Sevilla

Sevilla hrósaði sigri í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöld en Andalúsíuliðið hrósaði 2:1 sigri gegn nýkrýndum Evrópumeisturum Atletico Madrid í úrslitaleik sem háður var á Camp Nou í Barcelona. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 407 orð | 3 myndir

Fólk sport@mbl.is

Vignir Svavarsson skoraði tvö af mörkum Lemgo þegar liðið sigraði Hannover-Burgdorf , 31:25, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 298 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Usain Bolt, sprettharðasti maður veraldar, sigraði í 100 metra hlaupi á móti sem haldið var í Daegu í S-Kóreu í gær en þar fer heimsmeistaramótið fram á næsta ári. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 452 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

David Villa verður sóknarmaður Spánarmeistara Barcelona á næstu leiktíð en hann kemur til félagsins fyrir 40 milljónir evra, tæplega 6,5 milljarða, frá Valencia. Þetta staðfesti Manuel Llorente forseti Valencia á blaðamannafundi í gær. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 156 orð | 1 mynd

Hjörtur Júlíus setti tvö í fyrsta sigri ÍA

Skagamenn komust loks á sigurbraut en eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni báru þeir sigurorð af liði KFG úr Garðabæ, 5:0, í 2. umferð bikarkeppninnar í knattspyrnu. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 129 orð

Ísland beint á EM í Slóvakíu

Mótanefnd Handknattleikssambands Evrópu hefur ákveðið að Ísland skuli fara beint í úrslitakeppni EM 20 ára landsliða karla í Slóvakíu í sumar en ekki var hægt að leika undanriðil keppninnar hér á landi 16.-18. apríl vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 492 orð

KNATTSPYRNA VISA-bikarinn Bikarkeppni karla, 2. umferð: Skallagrímur...

KNATTSPYRNA VISA-bikarinn Bikarkeppni karla, 2. umferð: Skallagrímur – Víkingur R . 0:6 Dofri Snorrason 2, Þorvaldur Sveinn Sveinsson, Kjartan Baldursson, Halldór Smári Sigurðsson, Jakob Spangsberg. KB – KFR 2:1 Álftanes – Þróttur R. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 181 orð | 6 myndir

Special Olympics á KR-svæðinu

Íslandsleikar Special Olympics í fótbolta fóru fram síðasta sunnudag á íþróttasvæði KR-inga. Leikarnir eru samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra og KSÍ og eru haldnir tvisvar á ári. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 155 orð

Stóru þjóðirnar bíða ekki í röðum

Karlalandslið Íslands mun aðeins leika tvo æfingaleiki áður en undankeppni EM 2012 hefst í haust með leikjum við þrjár sterkar knattspyrnuþjóðir; Portúgal, Danmörku og Noreg. Fyrst er leikið við Andorra 29. maí og svo gegn Liechtenstein 11. Meira
20. maí 2010 | Íþróttir | 292 orð

Toppslagurinn fer fram á Njarðvíkurvellinum

Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld en þá fer fram þriðja umferð deildarinnar. Meira

Viðskiptablað

20. maí 2010 | Viðskiptablað | 150 orð | 1 mynd

Aðhaldsáhrif vaxta vanmetin

Einn nefndarmanna peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands lagði til á síðasta fundi nefndarinnar að vextir bankans yrðu lækkaðir um 1,0%, en niðurstaðan varð sú að lækka þá um 0,5% að tillögu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 89 orð | 1 mynd

Atlantic Petroleum skilar 440 milljóna hagnaði

Hagnaður af rekstri færeyska olíufyrirtækisins Atlantic Petroleum nam 20,5 milljónum danskra króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins, jafnvirði 440 milljóna íslenskra króna. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 255 orð | 1 mynd

Ástæður fyrir frekari veikingu krónunnar

Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst undanfarið. Lítið er að marka verðmyndunina þar sem gjaldeyrishöft eru við lýði. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 268 orð | 1 mynd

Erlend krónueign minnkar um fjórðung

Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Seðlabanki Íslands og Evrópski seðlabankinn í Lúxemborg (BCL) undirrituðu samkomulag í gær um að 120 milljarða króna skuldabréfasafn yrði selt til Seðlabanka Íslands fyrir 437 milljónir evra. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 59 orð | 1 mynd

Fundur um sæstreng

Í dag verður haldinn í Arion banka fundur um það hvort lagning sæstrengs til rafmagnsflutnings frá Íslandi til Evrópu sé vænlegur kostur. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 531 orð | 1 mynd

Hvað varð um áhyggjulausa ævikvöldið?

Grundvallarhugsunin á bak við lífeyrissjóðakerfið er, eins og gefur að skilja, sú að sjóðirnir tryggi öldruðum mannsæmandi tekjur með því að ávaxta iðgjöld þeirra yfir langan tíma. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 613 orð | 4 myndir

Krónubréf keypt fyrir evrur

*Seðlabanki Íslands losaði Evrópska Seðlabankann í Lúxemborg við 120 milljarða af íslenskum skuldabréfum í gær *Erlend staða þjóðarbúsins batnar um sem nemur 3,5% af vergri landsframleiðslu *Skuldir ríkisins í erlendri mynt hækka hins vegar um ríflega 400 milljónir evra Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 197 orð

Kyngreind peningastefna

Vegna hugmynda þingmannanefndar um rannsóknarskýrsluna um að hún verði greind með „kynjagleraugum“ hefur átaksráð karlahóps viðskiptadeildar Morgunblaðsins kyngreint peningamálastefnu Seðlabanka Íslands. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 1035 orð | 2 myndir

Leikið á slitna hörpustrengi

*Byggingarkostnaður við tónlistarhúsið Hörpu nú áætlaður 27,5 milljarðar *Þar af eru 25,5 milljarðar fjármagnaðir með lántöku *Fjármagns- og rekstrarkostnaður líklega þrír milljarðar hið minnsta *Upphaflega var gert ráð fyrir 12,5 milljarða króna byggingarkostnaði Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 684 orð | 1 mynd

Leitarvélar skila íslenskum fyrirtækjum milljörðum

Íslendingar byrja á því að googla þegar þeir leita að upplýsingum um vöru og þjónustu. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 337 orð | 1 mynd

Ótrúlega gaman að skapa eitthvað nýtt

Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Fyrirtækið Lava Productions hefur gert það gott undanfarna daga við að selja ösku úr Eyjafjallajökli, en nokkrar íslenskar verslanir hafa öskuna til sölu. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 339 orð | 1 mynd

Saga Capital heldur sjó við erfiðar markaðsaðstæður

Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Þó svo aðstæðum á fjármálamörkuðum í fyrra verði seint lýst sem hagstæðum varð hóflegur hagnaður af reglulegri starfsemi Saga Capital Fjárfestingarbanka. Hann nam tæplega 18 milljónum króna. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 117 orð

Samið við þekkt tölvufyrirtæki

Skrifað verður undir samning við heimsþekkt tölvufyrirtæki þegar íslenska gagnaverið Thor verður tekið í notkun á morgun. Meira
20. maí 2010 | Viðskiptablað | 657 orð | 2 myndir

Skortsölubann skekur markaði

*Fát á mörkuðum eftir að þýsk stjórnvöld takmörkuðu skortsölu ákveðinna fjármálagerninga og verðbréfa * Önnur Evrópuríki fylgdu ekki í kjölfarið *Markaðir óttast það sem býr að baki bannsins *Stjórnvöld réttlættu skortsölubannið með því að vísa til &bdquoóeðlilegra sveiflna“ Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.