Tæplega tvöfalt fleiri innflytjendur voru á íslenskum vinnumarkaði í september en í sama mánuði 2014. Þá hefur þeim fjölgað um rúm 50% frá janúar 2016.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þótt meirihluti sveitarstjórnar Reykhólahrepps hafi ákveðið að velja Teigsskógarleið ÞH fyrir Vestfjarðaveg er ekki þar með sagt að Vegagerðin geti sent gröfur og bíla vestur til að hefja framkvæmdir.
Meira
„Ef það tekst að framkvæma þessar hugmyndir eða bróðurpartinn af þeim mun það vera risastórt skref í átt að lausn kjaradeilunnar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um tillögur átakshópsins um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir...
Meira
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Alls bárust Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 153 kærumál á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðatölum sem fengust hjá nefndinni í gær. Tekist hefur að fækka óafgreiddum málum hjá nefndinni.
Meira
Magnús Heimir Jónasson, Ómar Friðriksson og Jón Birgir Eiríksson Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að fjármögnun tillagna átakshóps um aukið framboð á húsnæði, sem snúa að ríkinu, sé á byrjunarreit.
Meira
Samdráttur varð í framleiðslu á eldisfiski á síðasta ári. Aukning í laxi náði ekki að vega upp mikinn samdrátt í eldi á regnbogasilungi. Segja má að þetta hafi verið millibilsár vegna breytinga því framleiðsla er að hefjast af krafti hjá tveimur nýjum fyrirtækjum í sjókvíaeldi og fiskeldismenn reikna með að framleiðslan fari úr 19 þúsund tonnum á síðasta ári í yfir 30 þúsund tonn á árinu 2019.
Meira
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Málsmeðferð styttist töluvert í kjölfar nýrrar reglugerðar og umsóknum frá þessum ríkjum fækkaði í raun samstundis.
Meira
Matvælastofnun barst í gær tilkynning frá Arnarlaxi um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Hringsdal í Arnarfirði. Gatið uppgötvaðist við skoðun kafara í gærmorgun og lauk viðgerð síðar um daginn.
Meira
Kaupmannahöfn. AFP. | Rannsóknir á bráðnun Grænlandsjökuls benda til þess að ísinn þar hafi bráðnað fjórum sinnum hraðar árið 2013 en tíu árum áður, samkvæmt grein sem vísindamenn birtu í gær.
Meira
Heimavellir, stærsta leigufélag landsins, hefur verið að endurskipuleggja eignasafnið sitt en á síðasta ári seldi félagið alls 210 íbúðir fyrir 6,2 milljarða króna. Þar af var eignasala á fjórða ársfjórðungi 2,9 milljarðar króna.
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það er talsvert um fyrirspurnir. Margir hafa að undanförnu sótt um aðild að Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH),“ segir Birgir Guðjónsson, formaður félagsins. Margir nýir félagsmenn komi úr VR.
Meira
Átakshópurinn telur að Keldur og eftir atvikum Keldnaholt gætu nýst sem byggingarland þar sem m.a. ákveðinn hluti íbúða yrði hagkvæmar leiguíbúðir fyrir tekjulága og einnig almennar íbúðir og veittur yrði afsláttur af lóðarverði.
Meira
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að tillögu Minjastofnunar Íslands að friðlýsa ljóskastarahús við Urð á Suðurnesi á Seltjarnarnesi.
Meira
„Við vitum af tugum hjóna þar sem heilbrigður maki veikist vegna álags við umönnun á veikum maka. Fólk segir ekki frá þar sem um viðkvæm persónuleg mál er að ræða.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er allt komið á fullt og þetta er farið að taka á sig fallega mynd,“ segir Steingerður Þorgilsdóttir, einn eigenda Mathallar Höfða sem opnuð verður í lok næsta mánaðar á Bíldshöfða 9.
Meira
Í tillögum átakshópsins er sett fram sú hugmynd að ríki og sveitarfélög taki upp viðræður um að lögfesta skyldu sveitarfélaga til að taka þátt í uppbyggingu á almennum leiguíbúðum og að ráðstafa í skipulagi 5% af byggingarmagni á nýjum reitum og hverfum...
Meira
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, undirrituðu í gær nýjan vináttusamning milli ríkjanna sem sætt hefur gagnrýni í báðum löndunum.
Meira
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Breiðholt verður eitt prestakall með þremur sóknum verði breytingartillaga þess efnis samþykkt á kirkjuþingi í haust.
Meira
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna, skipuð tónlistarnemum úr tónlistarskólum á suðvesturhorni landsins, heldur árlega tónleika sína kl. 20 í kvöld í Langholtskirkju að loknu þriggja vikna námskeiði í hljómsveitarleik.
Meira
Átakshópurinn leggur til skráningu leigusamninga í opinbera gagnagrunna og að útfærðar verði leiðir til að hvetja aðila til að gera upplýsingar um leiguverð og lengd leigusamninga aðgengilegar. Þetta yrði t.d.
Meira
Ekki er útlit fyrir að snjókomu muni linna á næstu dögum, samkvæmt veðurspám. Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur verið hæg sökum snjókomu og þá hafa rútur lent í vandræðum víða um land vegna mikilla vinda og úrkomu.
Meira
Þorrinn byrjar á föstudag og undirbúningur þorrablóta víða um land stendur sem hæst. Á Borgarfirði eystra er bóndadagur upphaf nýs árs. „Hér tölum við um fyrir og eftir þorrablót og annállinn miðast við það,“ segir Kristjana Björnsdóttir, formaður þorrablótsnefndar.
Meira
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Framleiðendur Áramótaskaups Sjónvarpsins hafa síðustu ár getað sótt sér endurgreiðslu til íslenska ríkisins vegna laga um endurgreiðslu framleiðslukostnaðar.
Meira
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Góður gangur er í framkvæmdum við byggingu Brúarvirkjunar í Tungufljóti í Biskupstungum og um 60 manns eru þar nú að störfum.
Meira
Á aukafundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps í gær var samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur að fara Teigsskógarleið, eða Þ-H leið, í aðalskipulagi hreppsins. Þrjár tillögur voru lagðar fram á fundinum.
Meira
Alþingi kom saman á ný í vikunni að loknu jólaleyfi. Líflegar umræður voru á þingi í gær en þar var m.a. kosið um tvo viðbótarvaraforseta inn í forsætisnefnd en verkefni þeirra verður að fjalla um Klaustursmálið og koma því í viðeigandi farveg.
Meira
Valdís Óskarsdóttir, einn þekktasti og farsælasti kvikmyndaklippari landsins, var ein þeirra sem hlutu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag og ein þriggja listamanna en hinir voru Páll Óskar Hjálmtýsson og Þórhallur Sigurðsson, Laddi. „Þegar ég kom á Bessastaði var Laddi fyrsti maðurinn sem ég kom auga á og svo Páll Óskar sem var við hliðina á honum og ég varð svo óheyrilega glöð að sjá þá tvo í hópnum, heiður minn jókst um helming,“ segir Valdís.
Meira
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Sjálfsmyndin kemur mikið við sögu í doktorsritgerð Kristínar Valsdóttur, deildarforseta listkennsludeildar Listaháskóla Íslands, sem hún ver kl. 13 föstudaginn 25. janúar í Hátíðarsal Háskóla Íslands.
Meira
Emilía Rós Sigfúsdóttir frumflytur Flautukonsert eftir Jón Ásgeirsson á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu annað kvöld kl. 19.30 undir stjórn Ligiu Amadio.
Meira
Kvikmyndirnar The Favourite og Roma hlutu flestar tilnefningar, eða tíu hvor, þegar tilkynnt var í gær hvaða kvikmyndir væru tilnefndar til Óskarsverðlaunanna í ár. Fast á hæla þeirra komu myndirnar A Star is Born og Vice með átta tilnefningar hvor...
Meira
„Meginniðurstöður eru þær að sú vegferð að tileinka sér nýja sjálfsmynd sem listkennari, meðfram því að vera listamaður, krefst tíma. Lenging kennaranáms hefur því töluvert að segja.
Meira
Leikararnir John Travolta, Melissa McCarthy, Bruce Willis, Jennifer Garner og Bandaríkjaforseti, Donald Trump, eru meðal þeirra sem hljóta tilnefningar til Razzie-verðlaunanna svokölluðu, bandarísku kvikmyndaskammarverðlaunanna sem eru iðulega afhent um...
Meira
Eftir Tómas I. Olrich: "Á hundrað ára afmæli fullveldis Íslands er ljóst að hugsjónin um fullveldi þjóðarinnar gæti verið að breytast í það ósjálfstæði og framtaksleysi að bíða eftir hjálpræðinu frá Evrópusambandinu."
Meira
Eftir Svein Björnsson: "Er þetta ekki algert skilningsleysi á því hlutverki sem ISAVIA-menn eiga að hafa – að reyna ekki að liðsinna Herði Guðmundssyni á erfiðum og viðkvæmum tíma, í stað þess að beinlínis valda flugfélaginu skaða og gera því erfiðara en ella að greiða skuld sína."
Meira
Í tengslum við læknadaga sem nú standa yfir var haldið málþing í Hörpu undir yfirskriftinni Útrýming lifrarbólgu C: Íslenska forvarnarverkefnið í kastljósi umheimsins.
Meira
Eftir Sighvat Björgvinsson: "Tilmælunum til dómarans varð að fylgja rökstuðningur læknisins, sem hafði fengist við vandamál sjúklingsins og lagt til að nauðungarvistunar yrði leitað. Engan úrskurð mátti dómari (sýslumaður) upp kveða nema allar röksemdir lægju fyrir."
Meira
Aðalheiður Halldóra Arnþórsdóttir (Heiða) fæddist 29. janúar 1963. Hún andaðist 13. janúar 2019. Útför Aðalheiðar fór fram 22. janúar 2019.
MeiraKaupa minningabók
Ágústa Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 2. janúar 1929. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 17. desember 2018. Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Einarsson, f. 28. september 1893, d. 3. maí 1973, og Ingveldur Einarsdóttir, f. 10. ágúst 1889, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Hulda Árnadóttir fæddist 3. október 1934 á Akureyri og ólst þar upp. Hún lést á dvalarheimilinu Grund 7. janúar 2019. Faðir hennar var Árni Ólafsson sýsluskrifari, síðar bóndi á Kjarna á Galmaströnd og skrifstofumaður hjá Rafveitu Akureyrar, f. 26.
MeiraKaupa minningabók
Stefán Helgason fæddist 30. mars 1929 á Hrappsstöðum í Vopnafirði. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði 13. janúar 2019. Foreldrar hans voru Helgi Gíslason bóndi á Hrappsstöðum og kona hans Guðrún Óladóttir.
MeiraKaupa minningabók
Svanur Arnar Jóhannsson fæddist 15. júní 1935 í Djúpuvík. Hann lést á öldrunarheimilinu Skjóli 13. janúar 2019. Foreldrar hans voru Jóhann Ingibjartur Guðbjartsson, f. 20.6. 1907 á Flateyri, d. 4.8. 1998, og kona hans Guðrún Guðbjarnadóttir, f. 7.4.
MeiraKaupa minningabók
Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis vinnur nú að hlutafjáraukningu og hefur í því skyni nálgast núverandi hluthafa sína. Skv. upplýsingum sem Morgunblaðið hefur undir höndum er stefnt að því að afla fyrirtækinu 7,5 milljóna dollara, jafnvirði ríflega 900 milljóna króna, með útgáfu nýs hlutafjár. Enn sem komið er liggur ekki fyrir á hvaða gengi hið nýja hlutafé verður selt en miðað við nýleg viðskipti með óverulegan hlut í félaginu er heildarvirði fyrirtækisins fyrir hlutafjáraukninguna 9,5 milljarðar króna.
Meira
Í bréfi til hluthafa kemur fram að keppinautur MiMedx, eigi nú í verulegum vanda vegna brotthvarfs helstu stjórnenda þess, forstjóra, framkvæmdastjóra og fjármálastjóra, afskráningar af NASDAQ-hlutabréfamarkaðnum og yfirstandandi sakamálarannsóknar.
Meira
Frekar rólegt var um að litast í Kauphöll Íslands í gær, en Úrvalsvísitala aðallista lækkaði um 0,24%. Mest hækkuðu bréf tryggingafélagsins VÍS , eða um 1,01% og næstmesta hækkunin varð á bréfum leigufélagsins Heimavalla, en bréf þess hækkuðu um 0,88%.
Meira
Að stunda íþróttir er börnum mikilvægt og þroskandi en fötlunar eða annarra ástæðna vegna finna sum sig ekki á hefðbundum æfingum. Þeim hópi er nauðsynlegt að mæta og allir eru velkomnir til okkar,“ segir Hildur Arnar hjá Íþróttafélaginu Ösp.
Meira
Í átaki Samgöngustofu og fleiri sem ber yfirskriftina Höldum fókus eru farnar nýjar leiðir til að minna ökumenn á hversu hættulegt það er að nota símann undir stýri.
Meira
6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll, Jón Axel og Kristín Sif rífa landsmenn á fætur með gríni og glensi alla virka morgna. Sigríður Elva les traustar fréttir á hálftíma fresti. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn.
Meira
Kristinn Adólf Gústafsson , málarameistari í Hafnarfirði, er áttræður í dag. Börn hans eru Þröstur Róbert, f. 1963, Gunnar Páll, f. 1965, Bragi Björn, f. 1988, og Sigrún Svanhvít, f. 1991.
Meira
40 ára Arnþór er Reykvíkingur og rafvirki og vinnur hjá Héðni Schindler lyftum. Maki : Katrín Helga Óskarsdóttir, f. 1980, lífeindafræðingur á Landspítala. Börn : Birgitta Dögg, f. 2002, Daníel Smári, f. 2007, og Stefán Kári, f. 2009.
Meira
Ísland vaknar fékk upplýsingar um að fulltrúar Mannvirkjastofnunar hefðu haft samband við útlærðan rafvirkja og bannað honum að auglýsa þjónustu sína á síðunni „Vinna með litlum fyrirvara“ á Facebook.
Meira
40 ára Hafdís er frá Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit en býr á Akranesi. Hún er félagsliði hjá Búsetaþjónustu Akraness. Maki : Þorvaldur Ingi Guðjónsson, f. 1976, vinnur hjá Alcan. Börn : Anna Lilja, f. 1999, Mikael Aron, f. 2003, og Írena Rut, f. 2009.
Meira
Popp-prinsinn Justin Bieber var handtekinn á þessum degi árið 2014. Ástæðan var ofsaakstur á gulum Lamborghini sportbíl sem hann leigði í Miami, Flórída. Kom svo á daginn að hann var einnig undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Meira
Fróðleikskorn úr Ísl. orðabók: „bein með glerungshúð í munni (flestra) hryggdýra (hjá fullorðnu fólki venjul. 32 alls), notað til að bíta og tyggja.“ Jamm, þetta er tönn . Íslenskan er stórauðug að tannorðasamböndum og -orðtökum.
Meira
30 ára Símon er Akureyringur og vinnur hjá Lemon á Akureyri. Maki : Birta María Guðmundsdóttir, f. 1996, vinnur í fiskvinnslu hjá Útgerðarfélagi Akureyrar. Börn : Nathan Óli, f. 2016, og Embla Nótt, f. 2017. Foreldrar : Ólafur Hreinsson, f.
Meira
Svava Jónsdóttir fæddist 23. janúar 1884 á Akureyri. Foreldrar hennar voru Jón Kristinn Stephánsson, f. 1829, d. 1910, timburmeistari, dannebrogsmaður og bæjarfulltrúi á Akureyri, og seinni kona hans, Kristjana Magnúsdóttir, f. 1855, d. 1926, húsfreyja.
Meira
Þuríður Sigurðardóttir fæddist 23. janúar 1949 heima hjá sér í Laugarnesi í Reykjavík og ólst þar upp. Hún gekk í Laugarnesskóla, Gagnfræðaskóla verknáms, Fjölbraut í Breiðholti (listabraut) og Listaháskóla Íslands og brautskráðist þaðan með BA gráðu 2001.
Meira
23. janúar 1907 Togarinn Jón forseti, fyrsti botnvörpungurinn sem Íslendingar létu smíða, kom til landsins. „Fyrirtaks-vandað skip,“ sagði blaðið Reykjavík. 23. janúar 1973 Eldgos hófst í Heimaey, um kl. 2 að nóttu.
Meira
Björninn vann óvæntan 2:1 sigur gegn Skautafélagi Reykjavíkur þegar liðin áttust við í Hertz-karla í íshokkíi í Skautahöllinni í Laugardalnum í gærkvöld. Björninn komst yfir undir lok fyrsta leikhluta þegar Edmund Induss kom þeim yfir.
Meira
„Brasilíumenn hafa farið vaxandi á mótinu og virðast öflugri en í byrjun mánaðarins,“ sagði Ólafur Gústafsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, í samtali við Morgunblaðið í gær fyrir síðustu æfingu landsliðsins áður en liðið leikur við...
Meira
Alþjóðafrjálsíþróttasambandið hefur tekið þá ákvörðun að leyfa fjörutíu og tveimur íþróttamönnum frá Rússlandi að keppa á alþjóðlegum mótum á innanhússtímabilinu í vetur.
Meira
„Þetta var sameiginleg ákvörðun á milli mín og félagsins að rifta samningnum. Ég átti eitt og hálft ár eftir af samningi mínum en við náðum samkomulagi um starfslokasamning.
Meira
Argentínski knattspyrnumaðurinn Emiliano Sala, sem Cardiff keypti frá franska liðinu Nantes fyrir metfé um síðustu helgi, er talinn hafa farist en hann var farþegi í lítilli einkaflugvél sem hvarf af ratsjám í fyrrakvöld.
Meira
HM 2019 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Mikið leikjaálag hefur verið til umræðu í kringum HM í handknattleik karla sem nú stendur yfir í Þýskalandi og Danmörku.
Meira
Hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir flutti aftur heim til Íslands í ágúst eftir tvö ár í Hollandi, þar sem hún einbeitti sér að hlaupaferlinum. Hún segir heimþrá fyrst og fremst ástæðu þess að hún flutti heim. Auk þess er auðveldara að sinna námi meðfram keppni í fremstu röð í hlaupi hér heima.
Meira
Geysisbikar karla 8-liða úrslit: Tindastóll – Stjarnan 68:81 *Stjarnan, KR, ÍR og Njarðvík eru komin í undanúrslit og verður dregið til þeirra í dag.
Meira
Í Köln Ívar Benediktsson iben@mbl.is Landslið Brasilíu, sem íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir í lokaleik sínum á HM kl. 14.30 í dag, hefur fram undir þetta ekki verið tekið alvarlega sem handknattleikslið á alþjóðlegan mælikvarða.
Meira
Oft er rætt hvernig skipulagið og stjórnsýslan í handboltaheiminum, þá sérstaklega innan Alþjóðasambandsins IHF, er furðuleg. Þetta hefur komið greinilega í ljós á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir.
Meira
*Portúgalska knattspyrnustjarnan Cristiano Ronaldo mætti í gær í réttarsal í Madríd þar sem hann svaraði fyrir ákæru er varðar skattalagabrot hans.
Meira
Stjarnan varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum í Geysisbikarkeppni karla í körfuknattleik. Stjörnumenn gerðu góða ferð til Sauðárkróks þar sem þeir lögðu ríkjandi bikarmeistara Tindastóls 81:61.
Meira
Á Hlíðarenda Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Valskonur voru ekki í miklum vandræðum með Stjörnuna þegar liðin mættust á Hlíðarenda í 13. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í gær en leiknum lauk með þægilegum þriggja marka sigri Vals, 19:16.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.